Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.05.1997, Blaðsíða 11

Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.05.1997, Blaðsíða 11
©agur-®ímtmt Þriðjudagur 27. maí 1997 -11 Eftir tvær rólegar umferðir í Sjóvá-Almennra- deildinni brustu allar gáttir í þeirri þriðju. Fleiri mörk voru skoruð í henni en hinum báðum til samans, 21 mark nú á móti 18 mörkum úr fyrstu tveim umferðunum. HANDBOLTI • HM í Kumamoto Þórhallur meiddist Þórhallur Dan Jó- hannsson meiddist illa í leiknum við Skallagrfm. Jafnvel var talið að hann væri ökkla- brotinn og sumarið þar með úti hjá honum. Nú er komið í ljós að hann er óbrotinn en mikið blæddi inn á ökklann. Þórhallur verður því frá í rúma viku og getur leikið á móti Leiftri í 5. umferðinni. Það styttist nú óðum í að KR geti stillt upp sínu sterkasta liði. Guðmundur Benediktsson og Andri Sigþórsson eru báðir komnir á gott ról og léku með KR-undir 23 í Coca Cola bik- arnum í gærkvöldi. Jafnvel er talið að þeir muni leika með að- alliðinu á móti Val á fimmtu- daginn. gþö MareltilKR Eins og Dagur-Tíminn sagði frá fyrr í vor er fyrirliði körfuknattleiksliðs Grindvíkinga, Marel Guðlaugsson, genginn yfir í KR. Frá þessu var endanlega gengið um helgina. Þá geta KR- ingar einnig glaðst yfir því að hinn nýkvænti fyrirliði þeirra, Hermann Hauksson, hefur ákveðið að halda sig á heimaslóð og leika með KR næsta vetur. Hann var orðaður við bæði Grindavík og Njarðvík, auk þess sem fleiri lið höfðu áhuga á að nýta krafta hans. gþö Valur-Leiftur: 0-5 Mörk Leifturs: Þorvaldur Mak- an á 35. mín. Rastislav Lazorik á 38., 45. og 51. mín. og Hörður Már Magnússon á 55. mín. Það er skemmst frá því að segja að eftir frekar slaka byrj- un beggja liða tóku Leifturs- menn öll völd á vellinum þegar Þorvaldur Makan opnaði markareikning þeirra á 35. mínútu. Boltinn gekk mjög vel á milli manna og allt heppnaðist sem „milljónamæringarnir" reyndu. Valsmenn voru aftur á móti arfa slakir. Þeir voru seinir í öllum sínum aðgerðum, töp- uðu boltanum oft klaufalega og voru nánast eins og lömb á leið til slátrunar. Þrátt fyrir að hafa fengið fimm mörk á sig var markmaður þeirra, Lárus Sig- urðsson, þeirra besti maður. Leiftursmenn voru að vonum kátir í leikslok og Andri Mar- teinsson hafði þetta að segja: „Þetta var frábært. Það gekk allt upp og við mættum fastir fyrir og ákváðum það númer eitt, tvö og þrjú að fá ekki á okkur mark frekar en í síðasta leik. Við unnum út frá því. Við byrjuðum illa en höfum verið í framför með hverjum leik. Við fengum sjálfstraustið á Skagan- um og það gekk mjög vel nú.“ ÍA-Fram: 3-2 Mörk ÍA: Pálmi Haraldsson á 4. mín. Haraldur Ingólfsson, víti á 25. mín. og Bjarni Guðjónsson á 45. mín. Mörk Fram: Ásgeir Ásgeirsson á 71. mín. og Ásgeir Halldórs- son á 86. mín. Skagamenn eru nú heldur að hressast eftir dapra byrjun. Það er þó langt frá því að liðið sé að leika þá knattspyrnu sem það hefur verið þekkt fyrir undan- farin ár og alveg ljóst að þeir halda ekki titlinum nema til komi stökkbreyting á liðinu. Iv- an Golac vinnur ekki íslands- mótið á yfirlýsingunum einum saman. Framarar geta nagað sig í handarbökin að hafa ekki í þáð minnsta náð jafntefli í leiknum. Þær geta vegið þungt vítaspyrnurnar sem menn klúðra í jöfnum leikjum. Fyrir vikið situr Fram nú í fallsæti með aðeins eitt stig eftir þrjár umferðir. Mikil vonbrigði það. Leikið í sextán liða úrslitum Keflavík-Grindavík 2-0 Mörk Keflavíkur: Ragnar Steinarsson á 23. mín. og Jó- hann Guðmundsson á 42. mín. Keflvíkingar eru spútniklið sumarsins til þessa. Þeir hafa unnið alla leiki sína til þessa og eru að leika góða knattspyrnu. Grindvíkingar voru engin hindrun fyrir heimamenn í Keflavík að þessu sinni. Leikir þessara liða hafa alltaf verið harðir og spennandi og þessi leikur var engin undantekning frá því. Lengstum var leikurinn barátta og aftur barátta. Kefl- víkingar sýndu þó betri leik og verðskulduðu sigurinn. Grind- víkingar verða að gera betur en þetta ætli þeir ekki að vera í sama strögglinu og á síðasta sumri. Þeir hafa marga góða leikmenn í liði sínu og hafa nú öðlast þá reynslu sem til þarf að halda sér deildinni. Það á jafnt við um bæði þessi lið og Ólafur Gottskálksson markvörð- ur Keflvíkinga sagði: „Við feng- um þá reynslu af fallbaráttunni í fyrra að enginn strákanna hefur áhuga á því aftur. Það er ein ástæðan fyrir sterkri liðs- heild nú.“ Riðlakeppni heimsmeist- aramótsins lauk um helg- ina og eins og handbolta- áhugamönnum ætti að vera kunnugt, þá sigraði íslenska Iandsliðið í A- riðlinum. Ekki er kunnugt um úrslit í leik íslands og Noregs, sem fram fór snemma í morgun, en eftirtalin lið leika í sextán liða ilrslitum HM í dag. 1. ísland (A!)-Noregur (B4) kl. 4.00 2. Spánn (Cl)-Króatía (D4) kl. 4:00 3. S.Kórea(B3)-Júgóslavía (A2) kl. 6:00 4. Kúba (D3)-Egyptaland (C2) kl. 6:00 5. Litháen (A3)-Svíþjóð (B2) kl. 6:00 6. Tékkland (C3)-Ungverjaland (D2) kl. 6:00 7. Frakkland(Bl)-Japan(A4) kl. 8:00 8. Rússland(Dl)-Túnis (C4) kl 8:00 Leikir í undanúrslitunum fara fram á morgun og fimmtu- daginn. Sigurvegarar úr leik 1, þ.e. viðureign lslands og Nor- egs, leika gegn sigurvegurum úr leik 6, viðureign Tékklands og Ungverjalands. Sá leikur fer fram klukkan 18 að japönskum tíma, sem er klukkan 9 í fyrra- málið að íslenskum tíma. Leik- tímar eru þessir á leikjunum í 8-liða úrslitunum. ÍBV-Stjarnan: 5-0 Mörk ÍBV: Steingrímur Jóhann- esson á 13. og 39. mín. Tryggvi Guðmundsson á 28. mín. Sverr- ir Sverrisson á 52. mín og Guðni Rúnar Helgason á 85. mín. Vestmannaeyingar eru komnir á gott skrið aftur eftir að hafa hikstað lítið eitt á móti Fram í annarri umferðinni. Þeir tóku Stjörnuna í kennslustund að þessu sinni. Gott gengi Eyja- manna þarf ekki að koma nein- um á óvart. Þeir eru með feikna sterkan leikmannahóp og leika hraðan og skemmtilegan bolta. Liðið vinnur vel saman og með- an þeir halda slíku áfram auk þess að hafa gaman af því sem þeir eru að gera verður tilkall þeirra um titilinn sjálfsagt. Stjarnan, sem skein skært í Frostaskjólinu í fyrstu umferð- inni, er nú tekin að fölna veru- lega og taki þeir sig ekki saman í andlitinu er ekkert annað en Stjörnuhrap framundan. Skallagrímsmenn fengu á baukinn á KR-vellinum á sunnudagskvöldið. Reykjavíkurliðið, sem ekki hefur gert mikið af því að skora mörk í fyrstu leikjum mótsins, vaknaði til lífsins í síðari hálfleiknum og skoraði þá fjögur mörk. Mynd: Hilmar KR-Skallagrímur: 4-0 Mörk KR: Einar Þór á 57. mín. Þorsteinn Jónsson á 68. mín. Ríkharður Daðason á 69. mín. og Arnar Jón Sigurgeirsson á 85. mín. Nú hlýtur þungu fargi að vera létt af KR-ingum. Eftir skelfilega reynslu á móti Stjörn- unni hafa Vesturbæingarnir nú fundið taktinn og eru teknir til við að skora mörk. Og mörk KR-inga voru af glæsilegri gerð- inni á sunnudagskvöldið. Einar Þór Daníelsson, Þorsteinn Jóns- son og táningurinn Arnar Jón skoruðu allir gullfalleg mörk, sem ættu að skila þeim sjálfs- traustinu aftur. Fram til þessa hefur KR-ingum gengið herfi- lega að skora mörk. Þeir hafa verið að fá íjölmörg færi sem ekki hafa nýst. Þeir hafa fengið tvær vítaspyrnur í leikjunum sem báðar hafa farið forgörð- um. Innkoma Ólafs Kristjánsson- ar var frábær í þessum leik. Sendingar hans sköpuðu ávallt hættu við mark Skallanna og hann var óheppinn að kóróna ekki góðan leik sinn með marki. Ólafur og Einar Þór voru pott- urinn og pannan í öllum leik liðsins, sem reyndar lék allt vel að þessu sinni. Skallarnir hafa nú hrokkið í fyrsta gírinn eftir mjög góða byrjun gegn Leiftri á dögunum. Þeir mæta næst topp- liði Keflvíkinga á heimavelli sínum og þá verður þjálfari þeirra, Ólafur Jóhannesson, væntanlega búinn að stoppa í götin sem myndast hafa í síð- ustu leikjum. gþö Kl. 9: 00 9. ísl./Nor.-TékklAJngverjal. 10. Spánn/Króatía-Litháen/Svíþj Kl. 11:00 11. Kórea/Júgósl.-Rússl/Túnis 12. Kúba/Egypt.-Frakkl/Japan Tapliðin í 8-liða úrslitunum leika um 5.-8. sæti á föstudag og laugardag, en síðari daginn fer fram keppni í undanúrslit- um keppninnar. Þá mætast sig- urliðin úr leikjum 9 og 10 ann- ars vegar og 11 og 12 hins veg- ar. Keppninni lýkur síðan á sunnudaginn, þegar leikið verð- ur um 1. og 3. sætið á mótinu. Patrekur Jóhannesson hefur leikið vel með íslenska liðinu í Japan. Mynd': BG KARFA KNATTSPYRNA í

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.