Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Page 1
Fréttir og þjóðmál
Bítlatónleikar
Verkfall
Georg Martín
í Háskólabíó?
Töluverð líkindi eru talin
vera fyrir því að Georg
Martin, útsetjari og upptöku-
stjóri Bítlanna, komi hingað til
lands í tengslum við Bítlatón-
leikana í Háskólabíói í næstu
viku. Það skýrist hinsvegar ekki
fyrr en í lok vikunnar.
Gísli Örn, einn af aðstand-
endum tónleikanna, segir að
menn hafi öll spjót úti til að fá
einhvern af þremur eftirlifandi
Bítlum til landsins. Meðal ann-
ars hafi þetta verið rætt per-
sónulega við Ringo Starr hvort
hann sé ekki tilkippilegur að
koma aftur til íslands.
Jafnframt hafa menn notið
liðveislu íslendinga í námi í tón-
listarskóla Paul McCartney’s í
Liverpool til að komast í sam-
band við þennan fyrrum bassa-
leikara í hljómsveit John Lenn-
ons. Hinsvegar hefur verið
dýpra á Georg Harrison þótt
skrifstofa hans hafi tekið vel í
óskir íslendinganna. Þetta skýr-
ist frekar á blaðamannafundi
sem haldinn verður í dag á
Hótel Sögu. Þegar er búið að
selja 2000 af 3700 miðum sem í
boði eru. -grh
Verkfallsvörðum frá Vestfjörðum tókst að koma í veg fyrir að landað yrði úr rækjuskipinu Aidey ÍS í gær. Myndin er tekin þegar skipið lét úr höfn á
Sauðárkróki í gær. Sjá ítarumfjöllun á bls. 6-7.
Sjálfsagt þrýst á „sátta“
Miðstjórn ASÍ fordæmdi á fundi sínum í gær tilraunir atvinnurekenda til að
brjóta niður verkfall á Vestfjörðum.
Ríkissáttasemjari
leggur í dag fram
miðlunarfillögu í
kjaradeilunni á Vest
fjörðum.
Mér finnst ekkert um
það,“ sagði Pétur Sig-
urðsson, forseti Alþýðu-
sambands Vestíjarðar, þegar
Dagur-Tíminn spurði hann í
gær um miðlunartillögu ríkis-
sáttasemjara. Hún verður lögð
fram í dag og atkvæði greidd
um hana á morgun. „Þetta er
auðvitað hans réttur samkvæmt
lögum. Hann hefur sjálfsagt
orðið fyrir þrýstingi einhvers
staðar frá að gera þetta. Við
getum ekkert við því gert. Við
verðum bara að bíða og vona
að hún innihaldi eitthvað," seg-
ir Pétur og vill ekki kannast við
að miðlunartillaga sé eini
möguleikinn í stöðunni.
„Okkar tilgangur hefur alltaf
verið sá að reyna að fá vinnu-
veitendur til þess að ræða við
okkur í fullri alvöru en það hafa
þeir aldrei gert. Þeir eru eins
strengjabrúður hjá Vinnuveit-
endasambandinu."
Pétur vill engu spá um
hvernig tillögu ríkissáttasemj-
ara verði tekið. „Þetta er víst
orðið eitt lengsta verkfall sög-
unnar og hefur verið erfitt. Það
virðast vera opnar allar gáttir
fyrir útgerðina til að stunda
sína starfsemi óáreitt. Félagar
okkar hafa ekki hjálpað okkur
við þetta og við ekki nógu mörg
til að stöðva þetta.“
Verkfallsbrot
fordæmd
Miðstjórn Alþýðusambands ís-
lands fordæmir tilraunir at-
vinnurekenda til að brjóta á
bak aftur löglega boðað verkfall
verkafólks á Vestíjörðum með
verkfallsbrotum. Hún telur að
samningaviðræður séu vænlegri
til lausnar en ögranir og verk-
fallsbrot.
í ályktun miðstjórnarfundar
ASÍ er jafnframt lýst yfir furðu
að samtök atvinnurekenda
skuli véfengja rétt stéttarfélaga
til að grípa til samúðaraðgerða
með verkfólki í vinnudeilum.
-vj/grh
Sandgerði
Tíu ára
fangelsi
fyrir
manndráp
Sigurgeir Bergsson, 20
ára gamall, var í gær
dæmdur í Héraðsdómi
Reykjaness í 10 ára óskil-
orðsbundið fangelsi fyrir
að bana sambýlismanni
móður sinnar á nýársnótt í
Sandgerði. Sigurgeir stakk
manninn í brjóstið á heim-
ili þeirra með byssusting
og blæddi honum út. í við-
tali við Dag-Tímann fyrir
skömmu, þegar Sigurgeir
sat í gæsluvarðhaldi í
Hegningarhúsinu við
Skólavörðustíg, sagði hann
sína sögu og bjóst þá við að
fá þungan dóm.
BÞ