Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Blaðsíða 4
4~- Fimmtudagur 29. maí 1997 íDagur-®httmn : Icefox Alvöra Qallahjól Míssuri 18 gíra, aöeins 18.980,- Alpinge 18 gíra, aöeins 22.900,- Visa/Euro raögreiðslur Furuvöllum 13 • Símí 462 7878 Oldungar Æfingar fyrir Pollamót hefjast þriðjudaginn 27. maí kl. 20.30 á íþróttasvæði Þórs. Aðalfundur Skautafélags Akureyrar verður haldinn í G arðrælctinni fimmtudaginn 5. júní ld. 20. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Byggingarmál. Stjómin. F R É T T I R Samgöngur Borgin lánar ríkinu Mynd: Hilmar Vegagerðin fær 5 milljóna kr. lán vegna Gullinbrúar. Vega- áætlun tekur ekki mið af umferðar- öryggi á höfuð- borgarsvæðinu. Til að flýta fyrir undirbún- ingi að breikkun Gullin- brúar hefur borgarráð ákveðið að veita 5 milljóna króna lán til Vegagerðar ríkisins vegna hönnunarkostnaðar. Jafn- framt lýsir borgarráð yíir von- brigðum sínum með það hvernig Alþingi stóð að nýsamþykktri vegaáætlun. í bókun borgarráðs um vega- áætlun Alþingis kemur fram að framlög til höfuðarborgarsvæð- isins eru 190 milljónum króna lægri en gert var ráð fyrir í upp- haflegri vegaáætlun og tæplega 800 milljónum króna lægri en tillögur sveitarfélaga gerðu ráð fyrir. Þetta gerist þrátt fyrir að sveitarfélögin á svæðinu hafi sýnt fram á að árlegt framlag til þjóðvegaframkvæmda á svæðinu þurfi að aukast um 20-30% til að ná fram viðunandi ástandi í umferðaröryggismálum. Þar fyrir utan gagnrýnir borgarráð Alþingi fyrir að hafa ekki haft nægilegt samráð við sveitarstjórnarmenn vegna vegaáætlunar. Síðast en ekki síst mun það valda verulegri óvissu og óþægindum fyrir þá uppbygg- ingu íbúða- og atvinnusvæða sem á sér stað á höfuðborgar- svæðinu að vegaáætlunin gildir aðeins í eitt og hálft ár í stað fjögurra eins og áður. Sérstak- lega þegar haft er í huga að um- bætur á stofnbrautakerfinu verða að vera í takt við þróim nýrra hverfa. -grh Létt spjall á laugardegi Morgunkaffi með Guðmundi ogValgerði laugardaginn 31. maí kl. 10-12 í Framsóknarhúsinu. Framsóknarfélag Akureyrar Elskulegur eiginmaður minn, EGGERT ÓLAFSSON, bóndi, Þorvaldseyri, Austur-Eyjafjöllum, lést á heimili sínu þann 24. maí sl. Útför hans fer fram frá Eyvindarhólakirkju, laugardaginn 31. maí kl. 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vildu minnast hans láti Heilsugæsluna í Vík njóta þess. Reikningsnr. í Landsbanka íslands í Vik. Ingibjörg Ólafsson. Maðurinn minn, sonur og bróðir, JÚLÍUS GÍSLASON, sjómaður, frá Hóli á Langanesi, Þingholtsstræti 23, Reykjavík, sem lést 22. maí, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 30. maí kl. 15. Inga S. Þorsteinsdóttir, Sigríður Hólm Samúelsdóttir, Sara Hólm og aðrir vandamenn. Knattspyrna Guðmundur Benediktsson og Andri Sigþórsson munu skerpa sóknina hjá KR. Andri tilbúinn í Andri Sigþórsson, fram- herjinn efnilegi hjá KR, er tilbúinn í slaginn. Andri, sem lék með unglingaliði Byern Munchen síðustu árin, hefur verið meiddur í langan tíma en er nú loks búinn að ná sér aftur. Hann verður í leik- mannahópi KR gegn Val í kvöld og mun væntanlega fá að spreyta sig í leiknum. Þá er Guðmundur Benedikts- son allur að hressast. Hann, eins og Andri, lék bikarleikinn við ÍH og skoraði 2 mörk og stóð sig vel. Þeir félagar hafa æft vel í vor, fyrst á einstaklingsæfingum slagiim og nú með liðinu undanfarnar vikur og næsta mál hjá þeim er að koma sór í leikform. „Ég er allur að koma til og það er alltaf gaman að byrja að spila leiki aftur, jafnvel þó mót- staðan hafi ekki verið mikil,“ sagði Guðmundur Benediktsson í spjalli við Dag-Tímann. gþö Norðurland Leitað að fyrirsætum Skóli John Casablancas er nú á yfirreið um Norður- land í leit að ungu hæfi- leikafólki í fyrirsætustörf, en skólinn hefur staðið fyrir ferð- um til New York í keppni þar. Mörg starfandi módel í út- Iöndum hafa hafið feril sinn á þennan hátt, s.s. Geir Magnús- son hjá Success í París, Guðrún Þorgrímsdóttir hjá Metropolit- an, Ásdís María Franklín og Ragnheiður Guðnadóttir. Tals- verður áhugi er fyrir þessari módelleit en fulltrúar skólans verða á ferðinni á föstudag og laugardag. Á föstudag verða þeir á Pizza ’67 Dalvík milli kl. 15:00-16:00; á Grillbarnum Ól- afsfirði kl. 17:00-18:00; og Pizza ’67 Akureyri kl. 20:00- 21:00. Á laugardag fá Húsvík- ingar tækifæri á Hótel Húsavík milii kl. 14:00-15:00.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.