Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Blaðsíða 6

Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Blaðsíða 6
iiiiu 6 - Fimmtudagur 29. maí 1997 iDitgur-'ClImmm F R É T T I R Verkfallsvörður veifar í áhöfn Aldeyjar þegar skipið fór frá landi án þess að afianum yrði landað á Sauðárkróki í gær. uyndm gs Verkamenn að klóra augun hver úr ððrumP Trausti Ágústsson og Aðalheiður Steinsdóttir saka Hvammstangabúa um brot á gerðu samkomulagi. Um 20 verkfallsverðir frá Vestfjörðum voru þreytulegir en sigur- reifir þegar Aldey ÍS 440, rækjuskip frá Súðavík, sigldi úr höfn á Sauðárkróki í gær. Verkfallsvörðunum hafði tekist að koma í veg fyrir löndun á tæplega 60 tonnum af frystri rækju, en í fyrradag lutu þeir í lægra haldi á Hvammstanga þar sem ísaðri rækju var land- að þrátt fyrir aðgerðir þeirra. Reyndar er munur á hagsmunum útvegsaðila á Sauðárkróki og Hvamms- tanga sem e.t.v. hefur einhverju máli skipt í gær. Rækjan á Hvammstanga fór beint í vinnslu í bæjarfélag- inu en öðru málí gegnir með aflann úr Aldeynni. Þá er ekkert sérstakt löndun- argengi eða verktaki á Sauðárkróki. En hvort sem þessar staðreyndir skipta máli fýsti Dag-Tímann að kynnast lífi verkfallsvarð- anna sem keyra á milli staða og leggja líf sitt og lími í hættu. Fólkið á bryggjunni á Sauðárkróki hafði orðið og var engan bilbug á því að finna. Tvíræður túrismi „Þetta er ágætt, ég hef t.d. aldrei komið hingað áður,“ sagði Aðalheiður Steinsdóttir frá ísafirði og brosti, en bætti svo við: „Nei, þetta er rosalega þreytandi en blessunarlega virðist ekki ætla að koma til átaka í dag. Þetta er orðið nóg í bili.“ Hún taldi stuðning þjóðfé- lagsins við aðgerðir og kröfur þeirra vera fyrir hendi en dró þó í efa að fólk þekkti í raun um hvað væri barist. Trausti Ágústsson var sam- mála því og benti á að krafan um 100.000 kr. lágmarkslaun hefði aðra þýðingu fyrir vestan en annars staðar á landinu vegna þess að 70.000 kr. lág- markslaun væru ekki greidd þar. Trausti og Aðalheiður sem supu á kaffi af hitabrúsa sögðu um samstöðu verkafólks á landsvísu að hún væri góð, en hver er þá skýringin á fjölda meintra verkfallsbrota? „Þetta eru bara örfáir menn sem hafa svikist undan merkjum. Á Hvammstanga gerðum við sam- komulag fyrir viku við varafor- mann verkalýðsfélagsins og tvo verkstjóra um að ekki yrði landað aftur upp úr vestfirskum skipum. Síðan kemur þetta i bakið á okkur þegar verkalýðs- forystan á Hvammstanga hring- ir í Vinnuveitendasambandið til að fá að vita hvað gera skuli. Auðvitað voru svörin gefin fyr- irfram.“ Býrí jeppanum „Ástand hér er afleitt nú. Er þvífyrir bestu að um landið byggjum brú brœðralags og festu. “ Þessa vísu las Heiðar Guð- brandsson, verkfallsvörður frá Súðavík, upp í gær og sagði eignaða B. Jónssyni einhverjum sem skrifaði í gestabók verk- fallsvaktarinnar til að sýna stuðning. Heiðar er búinn að vera mikið á ferðinni að undan- förnu og fengið litla hvfld. „Ég er búinn að sofa eina nótt í rúmi frá því á hvítasunnudag, annars hef ég bara hent mér í jeppann. Sætin eru reyndar ekki gerð fyrir svefn en þetta er ágætt. Heima á Súðavík eru heitar laugar og pottar þar sem maður hefur getað baðað sig í þannig að maður er nú ekki al- veg laus við þægindin. Þetta er svipað og að vera á sjó í gamla daga,“ sagði Heiðar og bar sig garpslega. Ónýtir stjórnendur Talið barst að því hvort halda ætti byggð um allt landið eða „útrýma" strjálbýlustu plássun- um. Þar varð Heiðari ekki svarafátt. „Stjórnendur fyrir- tækja hafa sagt að ef við Iátum okkur ekki nægja sömu laun og aðrir þá verði þeir að flytja burt. Ég held þeir ættu að fram- kvæma það og skilja okkur eftir með fyrirtækin. Þá fyndum við kannski loks stjórnendur sem gætu unnið þeirra störf af einhverju viti.“ Viðar fluttst til Súðavíkur gagngert fyrir 25 árum vegna þess að þar sá hann sér betur farborða en í Reykjavík. „Nú hefur það snúist til verri vegar en ég er hins vegar farinn að trúa því að það sé mun betra að búa í Súðavík en Reykjavík." En þarf að borga fólki auka- lega fyrir að búa á Vestijörðum? „Kannski ekki, en hitt er ljóst Heiðar Guðbrandsson gefur lítið fyrir stjórnun fiskvinnslufyrirtækja. Hann hefur ekki sofið nema eina nótt í rúmi frá hvítasunnudegi.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.