Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Blaðsíða 7
jDagur-'QRmtmt Fimmtudagur 29. maí 1997 - 7 Sigríður Bragadóttir er sú alharðasta í bransanum. Hún er einstæð þriggja barna móðir og viðurkennir að aðstandendur hafi haft áhyggjur að undan- förnu enda hefur Sigríður lagt sig í töluverða hættu í þágu málstaðarins. að þegar við erum farin að flytja inn útlendinga til að vinna grunnafurðir þjóðarinnar sem standa undir stærstum hluta gjaldeyrisöflunarinnar þá er eitthvað mikið að í þjóðfélag- inu. Framleiðni er vandamálið segja kóngarnir en það er ekk- ert að íslensku verkafólki því að það vinnur alveg eins í dönsk- um fískverkunarhúsum og þar er ekki minni framleiðni. Það er hins vegar eitthvað mikið að stjórnun fyrirtækja hérna.“ Sú al- harðasta Sagt var á bryggjunni um Sig- ríði Bragadóttur að hún væri „alhörðust“. Hún var stödd á Hvammstanga í fyrradag, fékk þar pústra og lagði sig í tölu- verða hættu. „Þeir lönduðu bara fyrir ofan hausinn á okk- » ur. Settu gaffl- ana á lyfturun- um í hæstu stöðu og keyrðu á okkur ef við stóðum í vegi þeirra," segir Sigríður. Það var létt yfir henni í gær eftir að hafa beðið ósigur í fyrradag. „Þetta er áfangasigur og við þökkum það því hve við vorum snögg á staðinn. Við vor- um aftur klukkutíma of sein á Hvammstanga til að koma í veg fyrir verkfallsbrotið." Dapurlegt á Hvammstanga Um „kollegana" á Hvamms- tanga segir hún mjög dapurlegt hvernig verkalýðshreyfingin hafi svikið Vestfirðinga, það sama hafi gerst og á Drangs- nesi. „Á Hvammstanga virtust þeir mjög hrifnir af því að fá rækju frá Vestíjörðum til að styrkja eigið atvinnulíf. Einn þeirra sagði við mig að hann vonaði í atvinnubótaskyni að verkfallið stæði til áramóta. Svona var tónninn í þeim!“ Sigriður kallar þetta eigin- hagsmunastefnu Hvamms- tangabúa og segir varaformann verkalýðsfélagsins á staðnum hafa skýlt sér bak við Kaupfé- lagið og síðan horfið á brott án þess að hún næði að tala við hann. Hann hafi meðal annarra verði aðili að samkomualagi sem brotið hafi verið sem og verkstjóri einn sem reyndist síðan á fullu við löndun og keyrði utan í Sigríði. „Maður skilur ekki að verkamenn séu að klóra augun hver úr öðrum. Við megum ekki við því, alþýð- an í landinu." Barátta kvenna Sú var tíðin að karlmenn voru forkólfar í baráttu sem þessari en nú eru breyttir tímar. Sigríð- ur sem og aðrar konur gefa köllunum hvergi eftir nema síð- ur sé og hún bendir á að rétt- indabaráttan sé miklu fleiri konum í hag en körlum. Það er eðlilegt að við berjumst fyrir okkar rétti. Ekki viljum við síður fá hærri laun en karl- arnir.“ Sigríður er einstæð móð- ir með þrjú börn og hún viður- kennir að þau sem aðrir að- standendur hafi áhyggjur. „Þær hafa allir en við ætlum ekki að gefast upp.“ Híttumst á Egilsstöðum! Aldey ÍS 440 lagði úr höfn um kl. 13.30 í gær. Þegar skipstjór- inn var spurður hvert förinni væri heitið kallaði hann: „Við erum að fara út en vitum ekki hvert.“ Verkfallsverðir ljós- mynduðu brottförina og þeyttu bílflautur fagnandi þegar skipið hélt út. „Hittum ykkur á Egils- stöðum!“ hrópaði kona úr hópnum. „Ég hef aldrei komið til Egilsstaða." Þannig var létt yfir fólki í augnablikinu því, en þungbúin ský hvíla yfir framtíð- inni ef ekki fer að nást sam- komulag í þessari langvinnu deilu. Þetta er áfangasigur sem við fögnum.“ ERLENDAR FRÉTTIR Mið-Austurlönd Landnemabyggðir teíja enn sættir Fundur ráðamanna Egypta og ísraela á þriðjudag varð til þess að byggja upp að nýju gagnkvæma virðingu og jafnvel svolitla hiýju milli Hosni Mubarak, forseta og Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra. Yasser Arafat, leiðtogi Pal- estínu, kom ekki á fund- inn og virðist engin lausn í sjónmáli á deilum hans og Netanyahu. Mubarak tók á móti Net- anyahu og leiddi hann fram á svahr með útsýni á Rauða hafið og þar veifuðu þeir til ítalskra ferðamanna sem áttu leið um ströndina. Á þriðjudag hringdi Mubarak svo tvisvar í Arafat á meðan á ráðstefnunni stóð, til að segja honum af framgangi mála. Að- stoðarmenn Arafats segja hann þverneita öllum samningaum- leitunum á meðan Netanyahu vill halda áfram byggingu 30.000 manna hverfis gyðinga í Austur-Jerúsalem, en Netanya- hu er fastur fyrir og ákveðinn í því að halda áfram með bygg- inguna. Palestínumenn vilja gera austurhluta Jerúsalem, sem ísraelar náðu á sitt vald árið 1967, höfuðborg sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. ísrael vildi semja um það 1993, en nú segir Netanyahu að engir samningar verði gerðir varðandi borgina helgu. Þegar svo Netanyahu hóf byggingu fyrsta stóra gyðinga- hverfisins í Austur-Jerúsalem fyrir 2 mánuðum, fóru út um þúfur 6 ára samningaviðræður ísraela og Palestínumanna. Nýja hverfið sem gyðingar kalla Har Homa, mun vera staðsett á hæð sem kölluð er Jabal Abu Gheneim á arabísku. „Það er engin framför í viðræðum, eng- in framför," segir Ahmed Abdel Rahman, talsmaður PLO, í við- tali á þriðjudagsnótt. „Framfar- ir munu heíjast þegar ekki eru lengur skurðgröfur í Abu Ghen- heim. Á blaðamannafundi voru þeir Netanyahu og Mubarak ekki til- búnir til þess að segja frá efni viðræðna sinna fyrr um daginn. Netanyahu sagði þær hafa byrj- að vel og Mubarak lofaði að efna til annars fundar fljótlega þar sem Arafat tæki þátt líka, en Abdel Rahman og fleiri kváðu Arafat ekki tilbúinn til að hugleiða fund með Netanyahu nema sá væri til í að stöðva byggingaframkvæmdirnar. Mubarak vill hvorki játa né neita því að upp hafi komið hugmyndir um að byggja svipað hverfi Araba við hlið ísraelska hverfisins. Hann segir þá hafa skipst á skoðunum og að frek- ari viðræður væru nauðsynleg- ar og þeir myndu hittast aftur innan nokkurra vikna. Þeir myndu reyna að fá Arafat með ef hægt væri. Egypski utanríkisráðherrann Amr Mousa, sagði í viðtali við arabíska fréttastofu að „Palest- ínumenn geti ekki sætt sig við áframhaldandi uppbyggingu hverfa, sérstaklega ekki í Jerúsalem." svalirnar og bílskúrinn. Mjög hagstæð verð. ...eitt mesta flísaúrval landsins á einum stað... TILBOÐ A SMAAUGLYSINGUM - besti tími dagsins! FYRSTA BIRTING jOO KR. ENDURBIRTING400 KR. Ofangreind verð miðast við staðgreiðslu eða VISA / EURO Simi auglýsingadeildar er 460 6100 - Fax auglýsingadeildar er 460 6161

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.