Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Blaðsíða 8

Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Blaðsíða 8
S°- fifHiútutíagWr 29rjúaff99f' ©aijtta-lStatiitý? PJÓÐMÁL iDaaur-Œtmtrat Útgáfufélag: Dagsprent hf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Stefán Jón Flafstein Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson Framkvæmdastjóri: Marteinn Jónasson Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Flúsavík og Þverholti 14, Reykjavík Símar: 460 6100 og 800 7080 Netfang ritstjómar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjaid m. vsk. 1.600 kr. á mánuði Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja Grænt númer: 800 70 80 Fax augiýsingadeildar: 460 6161 - Fax ritstjórnar: 460 6171 Frelsi til íjár í fyrsta lagi Metið til fjár er frelsi meira hér á landi en víðast annars staðar. Þetta kemur fram í nýrri alþjóðlegri skýrslu. Þar sést að á lista yfir ríki heimsins eru aðeins fjögur Evrópulönd ofar fslandi þegar lagður er „mælikvarði á frjálsræði í efnahagsmálum". Á síðasta áratug hefur orðið stökkbreyting í þessum efnum; liðin er sú tíð að ríkisstjórnarfundur ákveði verð á snúðum, bankar skammti gjaldeyri og þeim hefur fækkað fyrirtækjunum sem njóta beinnar pólitískrar verndar. Margt er vel í þeim efnum. öðru lagi Það er til marks um annmarka þessarar mælingar að hún leggur lítið upp úr alfa og ómega markaðs- kerfisins: frjálsri samkeppni. Hvar ætli ísland lenti ef lagt væri mat á virka samkeppni í lífæðum hag- kerfisins: í flutningum innanlands og til útlanda, í ijármálastarfsemi, tryggingum? Skýrsluhöfundar hafa áhyggjur af ríkisumsvifum - jafnvel velferð - en engar af ríkisvernduðum einokunarkapítal- isma! Og ekki er allt gull sem glóir á mælikvarða skýrslunnar: Salan á SR-mjöli og Útvegsbankanum verður stórkostlegt framfaraspor á sama hátt og niðurskurður í heilbrigðismálum. Eiga geðfötluðu börnin sem fá ekki læknisþjónustu að hrópa húrra? Með nýjum eigendum SR-mjöls sem fá arð af fyrirtækinu áður en þeir byrja að borga það? í þriðja lagi Skýrslan reynir að meta hversu „frjálsir einstakl- ingar eru til að ráðstafa þeim verðmætum sem þeir skapa“. Vestfirskir útgerðarmenn sem hóta að ráðstafa „þeim verðmætum sem þeir skapa“ burt frá verkfallsfólkinu, sem vill sinn hlut í sameigin- legri auðlind landsmanna, eru í Hong Kong skýrsl- unnar: fyrsta sæti. Við þurftum að leysa markaðsöflin úr læðingi. En stóð einhvern tfmann til að þau færu með okk- ur á annan stað á hnettinum? V Stefán Jón Hafstein. _______________________J Hefur forsætisráðherra með orðum sínum haft óviðurkvæmileg áhrif á verkfallið á Vestflörðum? Björn Snæbjörnsson form. Verkalýðsfél. Einingar Ummæli Davíðs voru í það minnsta ekki vel til þess fallin að leysa málið, sem mér finnst vera f alvarlegum hnút. Aðalsteinn Á. Baldursson form. Verkalfél. Húsavíkur og fiskvinnslud. VSÍ S Eg skildi almennt ekki tilganginn hjá Davíð Oddssyni að koma inn í málið með þeim hætti sem hann gerði. Uppi hafa verið hugmyndir hjá landsbyggð- arfólki að fá ríkisvaldið til að lækka til dæmis húshit- unarkostnað og fleiri kostn- aðarliði, sem tengjast lífs- baráttu almenns launafólks, og ef ríkisvaldið kemur þarna inn hefði það að mínu mati tromp á hendi til að höggva á hnútinn á Vest- fjörðum. ♦ ♦ Gunnlaugur Sigmundsson þingmaður Framsóknarflokks á Vestjjörðum Eg get ekki séð það og tel að forsætisráð- herra hafi ekkert gert eða sagt sem fiækir stöðuna, meira en orðið er. Guðmundur J. Guðmundsson fv. formaður Dagsbrúnar S Eg tók þetta ekki þannig hjá Davíð heldur að hann óttaðist á eftir kæmu frystihúseigendur og heimtuðu styrki. Af tali við einn að vestan hef ég heyrt að þeir taki þetta sem dylgjur eða árás á sig. Hafa verður í huga að þarna á fólk í hlut sem þrælað hefúr árin tvenn, langan vinnudag og fengið lítið kaup og vill fara að fá sinn hlut. Að mæla á svona stundum, þótt forsætisráð- herra eigi í hlut, er eins og að sigla skipi á tundurduflabelti. Langbestur „Það er meira horft á mig en bíó- myndir á kvöldin og Melrose Place samkvæmt öllum könnunum.“ - Eiríkur Jónsson í Alþýðublaðinu í gær. Nœstbestur „Ég er þess fullviss að ef veiði- gjald verður lagt á, munu Eyja- menn í fullri alvöru fara að huga að sjálfstæði sínu, og það verður gaman að bjóða íslendingum til „útlanda" út í Eyjar með fyrstu viðkomu í fríhöfninni okkar.“ - Guðjón Hjörleifsson í Útvegi. Glatkistan „Hefðbundin sagnfræði fjallaði nánast aldrei um persónulegt líf einstaklinga af alþýðustétt. Spurningar um það þóttu hrein- lega aldrei skipta neinu máli.“ - Sigurður Gylfi Magnússon í Mbl. í gær. Borgaraleg skylda „Mér hefur alltaf fundist það vera hluti af borgaralegri skyldu minni að vera í stjórnmálaílokki og láta tii mín taka. Mér íinnst þessi þátttaka vera jafn eðlileg og að borða og sofa.“ - Svanfríður Jónasdóttir í Alþýðublað- inu í gær. Leifs-saga „Árásin á Alþingishúsið 30. mars 1949 var tilraun til bylt- ingar. Hindra átti alþingismenn í störfum. Það var háð orusta á Austurvelli, lýðræðissinnar gegn byltingarmönnum. Varið land eða Sovét-ísland.“ - Leifur Sveinsson í Mbl. í gær. Þegar dónalegt orðbragð fékkst gratís Ekki mun ofmælt að sfldarplönin á Siglufirði voru með líflegustu vinnustöðum á þeim árum þegar síldin óð á Grímseyjarsundi. Þar sýndi kvenþjóðin dug og kjark sem í henni bjó og þónaði vel á að margfalda verðgildi þess silfurs sem þá var kennt við hafið. Þarna fékk mörg stúlkan sína eldskírn í lffsbaráttunni þar sem erflðið og lífs- nautnin héldust í hendur. Og strákarnir gengust undir manndómsraunir, sem kokhreystin ein forðaði þeim frá að við- urkenna að væri þeim ofviða. Það var í verkahring sjómanna að landa síldinni og keyra hana í vögnum til stúlknanna, sem voru svo ótrúlega fljótar að hausskera og salta, að ætíð sýndist standa upp á karlana að sjá þeim fyrir nægum verkefnum. Burðarminni stráklingar voru gjarn- an hafðir til að ýta síldarvögnunum til hamhleypanna, sem aldrei þóttust hafa nóg í trogum sínum. Aukageta á plönunum Ekki var að sökum að spyrja þegar síld- arstúlkunum vantaði allt til alls. Þær þurftu salt, tómar tunnur og að þær fullu væru teknar frá þeim og siðast en ekki síst nóga síld að salta. Þá fengu karlaum- ingjarnir orð í eyra og við sem vorum að reyna að hafa við að aka silfurgljáandi fiskinum til óþreyjufullra kvennanna, fengum heldur betur að heyra hvílíkar mannleysur við vorum. Ekki var beinlínis kvartað yfir að ekki hefðist við að landa, heldur voru ásak- anirnar miklu alvar- legri. Gefin voru góð ráð um hvemig gagn- ast mætti konum og hvað til þess þyrfti. Ekki létu allar síldar- stúlkur svona en nógu margar til að annað umræðuefni komst varla að á meðan á löndun stóð. Orðgnóttin og mælskan sem einstaka síldarstúlka réði yfir var aðdáunarverð og ef einhver græninginn asnaðist til að fara að svara í sömu mynt fékk hann yfir sig slíkar gusur að hann hefur ekki reynt að klæmast síðan. Allt var þetta galsi og gaman og orð- hákarnir á síldarplönunum gátu allt eins verið dagfarsprúðar og orðvarar konur þegar þær voru búnar að spúla svunturn- ar sínar og þvo af sér síldarbrækjuna. Vel lukkuð markaðssetning Bersöglar kynh'fslýsingar fengust gratís á sfldarplönunum í gamla daga og þegar best tókst til voru þær vel úti látnar. Nú er öldin önnur því farið er að markaðs- setja dónalagt orðbragð og er greitt stór- fé fyrir að hlusta á stúlku klæmast í gegnum síma. Af auglýsingum að dæma eru það for- kunnarfagrar ungar stúlkur sem gefinn er kostur á að hringja í og eru gefin fyrirheit um að þær séu í besta lagi kjaftforar og djarfar. Stúlkurn- ar í auglýsingunum eru með brjóstin ber og seiðandi ástarblik í auga og hlýtur að vera unun að heyra gyðjurnar stynja upp dónaskap í símtólið fyrir kr. 66.50 á mínútuna, sem er ríflega tíu sinnum meira en greitt er fyrir handtakið í fisk- vinnslunni. Miðað við það auglýsingamagn sem dónaþjónustan lætur frá sér fara hljóta viðskiptavinirnir að vera margir og ánægðir. Samkvæmt markaðslögmálinu er því full þörf fyrir að konur tali af ber- sögli við karla um kynlíf. Svo lengi sem menn eru fúsir til að borga stórfó fyrir að hlusta á einhvers konar kynlífsóma í sfma Ijölgar símaklámið „atvinnutækifær- um“ og eykur hagvöxtinn og ýtir okkur upp frjálsræðislistann í efnahagsmálum. En greiðslan fyrir að hlusta á konur fara með kynlífshjal minnir á, að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Á síldarplönunum datt engum í hug að orðbragð stúlknanna væri verðmæti sem meta mætti til peninga. Þá var markaðs- kerfið heldur ekki orðið eins fullkomið og nú og aldrei datt manni í hug að blessað- ar kerlingarnar væru að gefa óborganleg verðmæti fyrir ekki neitt. Og þegar manni verður litið á þær Önnu og Nínu, sem gáfu svo fögur fyrir- heit í Degi-Tímanum í gær, kemur ósjálfrátt upp í hugann sú spurning, hvort þær búa yfir þeirri yfirþyrmandi orðgnótt sem sfldarstúlkurnar veittu gratís af örlæti hjartans, í þann tíð sem sfldin óð á Grímseyjarsundi. OÓ

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.