Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.06.1997, Page 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.06.1997, Page 4
4 - Föstudagur 27. júní 1997 Akureyri Bæjarmála punktar • Páll Alfreðsson hefur sótt um breytingu á gildandi skipulagi þannig að byggja megi 5-7 hæða íbúðarhús með bflageymslu á svæði á mótum Akurgerðis og Mýrarvegar. ilugniyndinl er að þar verði íbúðir fyrir eldri borgara. • Skólanefnd liefur samþykkt að veita 40 þúsund króna styrk vegna ferðar nemenda 8. bekkjar Síðuskóla til Danmerk- ur í september. Þá verður El- ínu S. Jónsdóttur, Glerárskóla, veittur 18.000 króna styrkur vegna námskeiðs á vegum Greiningarstöðvar ríkisins, Lundarskóli fær 100.000 krón- ur vegna fjölþjóðlegs verkefnis um víkinga og Olga Ellen Ein- arsdóttir sænskukennari fær 35.000 krónur í styrk til að sækja námskeið í Svíþjóð. • Samtökin Heimili og skóli hafa skrifað skólanefnd bréf þar sem vakin er athygli á stöðu vélritunarkennslu og þeim möguleikum sem nýtt ís- lensk kennslutæki, ritþjálfinn, veitir. Keypt hefur verið hálft bekkjarsett af nýjustu útgáfu ritþjálfa og verður það notað til áframhaldandi tilrauna- kennslu í skólum bæjarins næsta vetur. • Stefán Yngvason, yfirlæknir endurhæfingardeildar FSA, hefur sent íþrótta- og tóm- stundaráði bréf þar sem fram kemur að aðgengi að tóm- stundamiðstöðinni Punktinum er ekki gott fyrir fólk sem á erfitt með að hreyfa sig. For- stöðukona Punktsins ásamt íþrótta- og tómstundafulltrúa eru að leita leiða til að úr ræt- ist. Reykjavík Starfsþj álfun og skiptiverkefni Frá útskrift í Lýðskólanum, en skólinn fær nú 3ja m. kr. stuðning. Tillögur um úrbætur vegna bótalausra ungmenna fela m.a. í sér starfsþjálfun hjá Hinu Húsinu. Svokölluð skipti- verkefni skila árangri fyrir langtíma- atvinnulausa. fundi borgarstjórnar þann 19. desember sl. var samþykkt að gera sérstakt átak í atvinnumálum langtímaatvinnulausra og at- vinnulausra ungmenna án bótaréttar. Félagsmálastofnun og Vinnumiðlun Reykjavíkur- borgar ásamt Hinu Húsinu, sem heyrir undir íþrótta- og tóm- stundaráð, var falið að gera til- lögur um verkefnið, en til þess voru veittar 18 milljónir króna. Þessir aðilar hafa nú skilað frá sér tillögum um úrbætur. Rætt við alla í janúar sl. voru atvinnulaus ungmenni á aldrinum 16-25 ára um 100 talsins en eru nú rúmlega 130. Ákveðið var að veita 730 þúsund króna til sér- stakrar þarfagreiningar en í því felst að rætt er við alla bóta- lausa einstaklinga og mun sú vinna vera vel á veg komin. Þá er jafnframt lagt til að Lýðskól- inn verði styrktur um 3 milljón- ir króna en mjög góð reynsla hefur verið af starfsemi Lýð- skólans fyrir ungt fólk, sem átt hefur í félagslegum erfiðleikum. í þarfagreiningunni hefur kom- ið fram að mikill áhugi er á starfsnámi Hins hússins og er lagt til að 15 bótalausum ung- mennum gefist kostur á slíku starfsnámi. Reiknað er með að 5 milljónir fari í það. Fleiri konur atvinnulausar lengi Skráðir langtímaatvinnulausir í Reykjavík voru í maí sl. tæplega 1200 og þar af eru konur nær tvöfalt fleiri en karlar. Með langtímaatvinnuleysi er átt við að einstaklingar hafi verið sam- fellt á skrá í sex mánuði eða lengur. Það úrræði sem talið er að skilað hafi bestum árangri fyrir langtímaatvinnulausa á undan- förnum árum er svokallað „skiptiverkefni starfsmanna- halds.“ En þetta var t.d. gert þegar tólf skrifstofukonur hjá Reykjavíkurborg fóru á 10 vikna endurmenntunarnám- skeið og til að leysa þær af, voru ráðnar 12 langtímaat- vinnulausar konur. Þetta hefur verið gert 4 sinnum. I’ lauslegri athugun hjá Vinnumiðlun Reykjavikurborgar í lok maí kom í ljós að 75% af þeim at- vinnulausu konum sem tóku þátt í verkefninu voru ekki lengur á atvinnuleysisskrá. Konur taki meirapróf í tillögum umsagnaraðila er gert ráð fyrir því að skiptiverk- efnið verði útfært fyrir aðra starfshópa. Þannig er íhugað að slíkt verði gert með næturverði hjá Reykjavíkurborg sem og á öðrum sviðum starfsmanna- halds Reykjavíkurborgar. Reiknað er með að rúmlega 7 milljónir fari í þessi skiptiverk- efni. Þá er jafnframt lagt til að veittir verði styrkir til sex kvenna til þess að taka meira- próf á bifreið en töluverð eftir- spurn hefur verið eftir bflstjór- um með meirapróf og SVR hef- ur lagt áherslu á að Ijölga kon- um í bílstjórastöðum hjá fyrir- tækinu. rm Sl AfiO Innlausnarverð vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Hinn 10. júlí 1997 er 25. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í l.fl.B 1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 25 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 5.000 kr. skírteini = kr. 582,30 Vaxtamiði með 10.000 kr. skírteini = kr. 1.164,60 Vaxtamiði með 100.000 kr. skírteini = kr. 11.646,00 Hinn 10. júlí 1997 er 23. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í l.fl.B 1986. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 23 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 5.205,30 Ofangreindar fjárhæðir eru vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. janúar 1997 til 10. júlí 1997 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. júlí 1997. Reykjavík, 27. júní 1997 SEÐLABANKIÍSLANDS Laugarás Heilsugæsla - líka fyrir Norðmenn! Nýbygging heilsugæslustöðv- arinnar í Laugarási í Bisk- upstungum var vígð á dögunum. Nýbyggingin, sem er rúmir 500 fermetrar að flatarmáli, kemur í stað 117 fermetra húsnæðis. Húsnæði stöðvarinnar í Laugar- ási hefur lengi staðið starfseminni fyrir þrifum, enda lítið og óhentugt til þeirrar víðtæku þjónustu sem þar á sér stað. Því hefur stjórn og starfsfólk stöðvarinnar unnið í mörg ár að undir- búningi að bygg- ingu nýrrar heilsu- gæslustöðvar. Fremstan meðal jafningja í því má telja Jón Eiríksson í Vorsabæ á Skeiðum, fyrrverandi stjórnar- formann og framkvæmdastjóra stöðvarinnar. Byggingameistar- ar nýju heilsugæslustöðvarinnar eru þeir Þröstur Jónsson og Gísli R. Magnússon á Flúðum í Hrunamannahreppi. „Hér hafa allir jafnan aðgang, jafnvel Norðmenn, aðeins spurn- ing um hærri þjónustugjöld, eða eigum við að segja: „nákvæmari" reikninga, þó að ég sé nú alfarið á móti þjónustugjöldum," sagði Ólafur Ólafsson landlæknir m.a. í ávarpi sínu. Hann ræddi eink- um stöðu heilsugæslunnar á ís- landi miðað við nágrannalöndin en lýsti einnig skoðunum til lausnar á starfsmannaskorti heilsugæslunnar á landsbyggð- inni. Meðal annarra er til máls tóku voru Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra, en fyrsta embættisverk hennar var að taka fyrstu skóflustunguna fyrir tveimur árum. Einnig Jón Eiríks- son í Vorsabæ, sem sagði 100 ára sögu heilsugæslunnar í hér- aðinu, Loftur Þorsteinsson, odd- viti Ilrunamannahrepps, sem greindi frá gjöfum sem bárust, og sr. Rúnar Egilsson sóknar- prestur í Mosfellsprestakalli, sem flutti blessunarorð. - SB/-Árnessýslu. Ólafur Ólafsson landlæknir Nú hafa allir jafnan aðgang, jafnvel Norðnumn. “

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.