Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.06.1997, Qupperneq 5

Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.06.1997, Qupperneq 5
©agm-(Eíntmn Föstudagur 27. júní 1997 - 5 Verður j arðarberj arækt ný búgrein á fslandi? Örn Einarsson sýndir hér kassa með jarðarberjum frá Silfurtúni, tilbúnum á markaðinn. MyntMr. FREYR, Matthlas Eggertsson. Einn íslenskur bóndi ræktar berin fyrir ís- lenskan markað og reisti gróðurhús eingöngu fyrir þeim. g tel að einhverjir bændur gætu hagnýtt sér þetta, en hingað til hafa vandamál verið á ferð, til dæmis að geyma plönturnar yfir veturinn. Hjá mér urðu töluverð afföll á plöntum síðastliðinn vetur vegna veðurfarsskilyrða,“ segir Örn Einarsson, garðyrkjubóndi í Silfurtúni í Hrunamanna- hreppi, í viðtali við búnaðar- blaðið Frey. Örn, sem er eini íslenski framleiðandinn á markaðnum, segir í viðtali við ritstjórann, Matthías Eggertsson, að hann hafi fiktað við jarðarberjarækt síðustu 3-4 árin. Hann hefur reist sérstakt 1.500 fermetra gróðurhús þar sem hann rækt- ar jarðarber eingöngu. Fyrir aldarfjórðungi reyndi hann lítil- lega fyrir sér með ræktun undir plasti, eins og þá var venjan. Örn segir að það séu ekki lið- in nema 7-8 ár síðan farið var að rækta jarðarber í gróður- húsum í Evrópu. Innflutningur hingað hafi ekki verið stundað- ur nema í 3-4 ár. Frá Hollandi í ræktunina kaupir Örn plöntur frá Hollandi. Og ekki nóg með það. Þegar til þarf sérstakar, innfluttar flugur. Örn lýsir þessu ferli svo: „Síðan þegar blómgun hefst verður að setja inn flugur, sem er sama flugutegundin og gamla íslenska randaflugan, Innfluttar flugur annast um frjóvg- un plantnanna og gegna stóru hlutverki. nema hvað þær hafa verið vandar við að búa í búi. í hverju búi eru um 140 þernur og ein drottning. Þetta er sama flugan og notuð er í tómata- rækt, en þar eru mikið færri þernur í hverju búi.“ Örn segir að munurinn á að nota flugur og blástur sé eins og svart og hvítt. Ef ekki sé frjóvgað verði að minnsta kosti 50 til 60% berjanna vansköpuð og ljót söluvara. Hvert flugnabú endist í 6-8 vikur, sem er sami tími og blómgunin stendur. Örn telur að íslensk jarðar- ber geti höggvið í innfluttu ber- in, enda njóti þau nálægðar við markaðinn, meðan ferill inn- fluttu berjanna er langur og áhættusamur. Samstöðuleysi íslenska garðyrkjubændur segir Örn sundurleita stétt sem ekki hefur borið gæfu til að standa saman um sín mál. „Ég tel að garðyrkjubændur verði að hætta að kroppa augun hver úr öðrum í von um að ná- granninn fari á hausinn og snúa sér að faglegum vinnu- brögðum í skipulagi ræktunar og afsetningu vöru, eins og gert er í nágrannalöndum okkar. Ég tel að hið opinbera geti að svo stöddu fátt gert í jarðarberjum, frekar en í öðrum greinum garðyrkju,“ segir Örn Einarsson að lokum í viðtalinu við Matthí- as Eggertsson. - JBP Flygillinn verður í Sajhaðarheimilinu Ljóst er hinn frægi flygill, sem Tónlistarfélag Akureyrar safnaði fyr- ir í vetur, verður staðsettur i Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Eftir vandlega íhugun hefur stjórn Tónlistarfélagsins ákveðið að tónlist- arlífi Akureyringa sé best borgið með því að staðsetja flygilinn áfram í Safnaðarheimilinu. Stjórnin vill þó taka fram að ekkert hús er í bænum sem hentar flyglinum fullkomlega. Akureyri Norðurland Sól og suiinanvindiir Nú er í vændum sumar- blíða einsog Norðlend- ingar þekkja hana besta. Ég geri ráð fyrir því að fram á helgina verði ríkjandi hæg SV- átt með allt að 20 stiga hita um allt norðanvert landið," sagði Einar Sveinbjörnsson. Eftir kalda daga á Norður- landi að undanförnu er nú að hlýna. Vindur hefur snúist til suðlægra átta og fyrir sunnan landið er hlýtt loft. Fyrir utan kuldaloft á daginn á Norður- landi hefur að undanförnu ver- ið kalt á nóttinni á Norðurlandi, og í fyrrinótt var þriggja stiga gaddur á Staðarhóli í Aðaldal. En nú er betri tíð í vændum. -sbs. Akureyri Hús skjálfa og leirtau glamrar búar Norðurgötu segja hraða strætisvagna of mikinn. Fulltrúi bifreiða- stjóra kennir þrengslum í götunni og slæmu undirlagi um, fremur en of miklum hraða. Kvarlað undan þungri umferð um Norður- götu. Strætisvagnar fara of hratt. Skipulagsnefnd á Akureyri hefur borist erindi þar sem kvartað er undan þungri umferð um Norðurgötu. Sér- staklega er kvartað yflr strætis- vögnum og bent á að aksturslag þeirra sé með hraðasta móti. Sé hraðinn svo mikill að hús titri og leirtau glamri. „Það hefur verið kvartað und- an þessu áður í Norðurgötunni. En ég held að bifreiðastjórar keyri ekki hratt þarna í gegn. Fólki finnst það bara. Gatan er þröng og því myndast bergmál,“ segir Helgi Friðjónsson, bifreiða- stjóri og verkstjóri hjá Ferliþjón- ustu Akureyrar sem sér um rekstur Strætisvagnanna. -Hvað með þú ásökun að hraðinn sé svo mikill að hús titri og leirtau glamri? „Það er ekki vegna hraða. Vagnarnir eru þungir og þegar þeir lenda ofaní brunnlokum eða í misfellum í götunni þá nötrar allt. Undirbyggingin er ekki góð og því eðlilegt að allt titri.“ Sjálfur býr Helgi í timburhúsi og verður oft var við titring þeg- ar stórar rútur keyra framhjá. Hann skilur vel að fólk verði pirrað á þessum hávaða en ítrekar að ekki sé hraða um að kenna og því geti bifreiðastjórar lítið gert til að bæta ástandið. AI Leiklist Norræn leiksýning um ásatrú Ungmenni frá Norður- löndum sefja upp leik- sýningu um ásatrú. Leikklúbburinn Saga hefur fengið eina og hálfa millj- ón króna í styrk vegna þátttöku klúbbsins í norræna leiklistarverkefninu „Fenris". Styrkurinn er frá samtökunum „Ungt fólk í Evrópu“ sem eru innan Evrópusambandsins. „Fenris“ er verkefni sem leikklúbbar á Norðurlöndum standa fyrir á ijögurra ára fresti og er leikklúbburinn Saga fulltrúi íslands. Nú er enn ein slík ferð að renna upp og hefst hún á íslandi í næstu viku. Á fimmtudag er því von á 75 nor- rænum ungmennum til Akur- eyrar sem ætla að setja upp sýningu um ásatrú. Ungmennin munu dvelja í tvær vikur á Ak- ureyri og er hugmyndin að þau dvelji í heimahúsum. Enn vant- ar pláss fyrir fimm krakka og vilja fulltrúar leikklúbbsins Sögu nota tækifærið og auglýsa eftir Qölskyldum. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við Kjartan Smára Höskuldsson í síma 462 3640. AI

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.