Dagur - Tíminn - 30.11.1996, Page 4

Dagur - Tíminn - 30.11.1996, Page 4
Laugardagur 30. nóvember 1996 - IV Hagur-HImrám SÖGUR O G SAGNIR AMosfelli í samnefndri sveit er digur silfur- sjóður í jörðu, sem leit- að hefur verið en ekki fundist. En vafalaust kemur hann í leitirnar, eins og Mið- húsasilfrið og fleiri sjóðir sem fornmenn létu eftir sig. Einn er samt mestur og er það silfur Egils Skallagrímssonar, sem hann gróf í Mosfellssveitinni. Þar í eru mörg dýrmæti, því Eg- ill var fengsæll í ránsferðum sínum og þáði gersemar af stór- höfðingjum. Kæmi ekki á óvart þótt gull og dýrir steinar séu innanum silfur Egils. En það kemur í ljós þegar sjóðurinn finnst, hvenær sem það verður. Fleira er verðmætt í jörðu í Mosfellssveitinni. Þar er gnótt af heitu vatni, sem er sannköll- uð auðlind og nú er farið að grafa eftir gulli í sóknum Mos- fellspresta. Gullleit hófst þar fyrr á öld- inni, en var hætt. Nú er byrjað aftur að grafa og nýtt gullæði er skollið á. Segja þeir sem kunna skil á jarðvísindum og tækni að námagröftur þarna sé arðbær og er nú verið að setja gull- vinnsluna í gang. fundist. Fundvísir á glópagull Miðhúsasilfrið hefur vakið deilur og illindi og sýnist Iftil gæfa hafa fylgt þvi að grafa það úr jörðu. Gullleit hefur víða farið fram, en með misjöfnum ár- angri. Leitin að gullskipinu í sandinum fyrir austan hefur reynst ríkissjóði dýr, en hins vegar mun ekki þurfa að leita lengi í sjálfum sandinum að málminum dýra. í honum er svolítið gull, en ekki meira en svo að ekki svarar kostnaði að vinna það. í sjónum er líka gull, ef út í það er farið. En gullleitarmenn kæra sig h'tið um annað gull en það sem glittir á í árfarvegum, í bergi eða kistum víkinga og annarra sjóræningja. Mikil gullleit fór fram við rætur Öskjuhk'ðar upp úr alda- mótunum síðustu og hið næsta sem leitarmenn komust hinum dýra málmi var að flnna leifar af látúni í borholum sínum. En þær voru úr hvellhettum sem þeir notuðu sjálfir þegar þeir sprengdu sér leið gegnum berg- ið í leit að gullæðum. Glópagull er heiti á kristals- myndun í tilteknum bergteg- undum. Það h'tur út eins og gljáandi málmur, en eðliseigin- Vœttir vernda mœtin í jörðu leikar þess eru allt aðrir. Mikið er af shku gulli í Drápuhlíðar- fjalli í Helgafellssveit og hefur það freistað margra til að hefja gullleit í fjallinu. En grjótið það- an er verðlítið, nema hvað fólk sem langar til að sýnast efnað, lætur hlaða Drápuhh'ðargrjóti kringum eldstæði í stássstofum sínum. Þar ljómar það eins og glópagull. Málmskortur var landlægur Námagröftur og málm- vinnsla hafa löngum verið mikl- um erfiðleikum bxmdin á ís- landi, enda jarðefni hér ólík því sem gerist í flestum öðrum löndum. En málið sýnist það, að hér hafa vættir falið málma fyr- ir mönnum og láta þá ekki hirða frá sér silfur, gull né dýra steina. Málmskortur var landlægur og kvað svo rammt að, að leður var notað í mynt vegna vöntun- ar á hæfara efni. Oddur biskup Einarsson víkur að þessu vandamáli í íslandslýsingu sinni: Kannski mœtti ráða bót á þessum myntskorti, ef íslend- ingar þekktu og nœðu til þeirra málma, sem ísland er einmitt I Mosfellssveit er grafið eftir gulli og er vonast til að það beri rfkulegan ávöxt. talið auðugt af. Margir telja nefnilega sennilegt, að hér sé ekki aðeins natrón og brenni- steinn í jörðu, heldur einnig aðrir málmar, að minnsta kosti rœða eyjarskeggjar stöðugt um járnkennt efni, sem menn nefndu rauða, enda var fyrr meir grafið upp þó nokkuð magn af honum sums staðar á íslandi, svo kom að notum. En furðulegt er það, sem sögur herma að átti hafi sér stað, er verið var að leita hans, sem sé að þar sem gnægð var af honum einn daginn, þar fannst ekki urmull eftir nœsta dag, er leitarmenn komu til að hreinsa hann eða brœða, klyfj- aðir belgjum og óðrum smíðaá- höldum. Hyggja menn að þetta hafi orðið fyrir tál og pretti ein- hverra jjallvœtta, sem almennt eru taldir leynast í slíkum málmœðum og gera mönnum sjónhverfingar. Af þessum sök- um eru íslendingar vanir að kalla þessi skyndilegu og ó- vœntu umskipti rauðaundur. Sagt er að finnist votta fyrir silfri á tveimur stöðum við sjó, sem nánast er ókleift að kom- ast að, og nefnist annar þeirra Krýsuvík, en hinn er nálœgt Hvalfirði, við Bláskeggsá, en þar lesum vér, að einhvern tíma hafi verið með miklum erfiðis- munum og ekki minni hættu blásið nokkuð af silfri og smíð- að eitthvað úr því í Borgarfirði. Þá er og sagt, að fundist hafi efni nokkurt, ekki mjög ólíkt gulli, hjá bœnum Kalmanns- tungu, þar sem koma í Ijós smáagnir líkar gulli í malar- jarðvegi. En hvernig sem annars hátt- ar til um málmana, þá má sannarlega segja, að fyrir ein- hverja leynda ákvörðun náttúr- unnar eru þeir svo rœkilega faldir, að menn fá ekki unnið þá, að undanteknum brenni- steininum. Bæir í björtu báli Ætla má að Oddur hafi samið lýsingu sína undir lok 16du ald- ar og er þá greinilega almenn trú að bergbúar hafi geymt dýra málma og steina og varn- að mennskum mönnum að nálgast þá. Eftirmaður hans á biskupsstóli, Gísh Oddsson, var einnig vel að sér í náttúrufræð- um og er vitneskja hans og skoðanir í stórum dráttum svip- uð og hjá fyrirrennara hans. í riti hans um undur íslands er kafli um málma og annar um dýra steina. Um málma segir Gísli: Auk brennisteinsefnis, sem sums staðar var fullt af gleri og jarðbiki, notuðu fornmenn einnig járn, sem þeir söfnuðu saman úr gröfum sínum, og gekk það þó illa og ekki J'yrir- burðalaust. Þegar þeir reyndu það, voru þeir að sögn almenn- ings hrœddir frá verkinu af ó- náttúrlegum sjónum, nema þeir kepptust við svo ákaft, að þeir litu aldrei af verkinu, því ann- ars sýndist þeim kot þeirra, eða einhverjir nálœgir staðir standa í björtu báli, en ef þeir hlupufrá verkinu og œtluðu að slökkva eldinn, áður en þeir höfðu náð öllum málmkökkum úr gröfunum, þá er sagt, að þeir hafi ekkert fundið af þeim

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.