Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1981, Side 5
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1981.
ur i einkarekstri að leita svara við
þeim hættulega hugsunarhætti ein-
staklingsins í atvinnulífinu, sem vill
selja, að eini aðilinn sem geti keypt sé
Samband ísl. samvinnufélaga eða
dótturfyrirtæki þess. Þau praktísku
vandamál, sem eru samfara þessu sál-
ræna vandamáli verða ekki leyst,
nema hægt sé að byggja upp traust og
trú á, að einkaaðilar geti keypt og
það verður ekki gert, nema aðilar í
einkarekstri efli samtök sín og skapi
þann valkost, sem þarf að vera til
gagnvart Sambandsveldinu.
í þriðja lagi er eðlilegt, að einingar
i atvinnurekstrinum stækki og að
menn sameini krafta sina betur en
gert hefur verið og skapi þar með
einkarekstrinum möguleika á að
takast á við ný verkefni í atvinnu-
og viðskiptalifinu, sem kalla á
ákveðna stærð og það bolmagn, sem
stærðinni fylgir. Við þurfum ekki
alltaf að hokra hver í sínu horni. í
fjórða lagi hefur það úrslitaþýðingu
fyrir framtíð einkarekstrarins, að
forráðamenn hans geri sér ljóst, að
nú stendur yfir bylting í atvinnulífi
landsmanna. Hvers konar bylting,
má spyrja.
Stóriðjupólitík —
upplýsingabylting
Það má segja, að i öllum megin-
atriðum sé að skapast pólitísk sam-
staða um stórfellda orku- og iðnvæð-
ingu fram til næstu aldamóta. Á
þessu tímabili munum við byggja
a.m.k. þrjú stór orkuver og stóriðju-
fyrirtæki í tengslum við þau. Alþýðu-
bandalagið, sem í einn og hálfan ára-
tug hefur barizt gegn stórvirkjunum
og stóriðju, hefur gefizt upp á þeirri
baráttu og er að leita leiða til þess að
tilkynna þessa uppgjöf opinberlega.
Það er hins vegar alveg rétt, sem
forstjóri SÍS sagði i viðtali við Morg-
unblaðið fyrir skömmu, að lítið
leggst fyrir kappana, ef einkarekstur-
inn í landinu, sem hann teiur sam-
vinnuhreyfinguna vera part af, lætur
ríkisvaldið sitja eitt að þessari at-
vinnuuppbyggingu í samvinnu við út-
lendinga, þegar það á við.
Ég spyr nú fyrst, hvort þá umhugs-
un um framtíðina, sem fram kemur í
þessum orðum forstjóra SÍS, sé að
finna á samtökum einkarekstrarins í
Iandinu, en nefni að öðru leyti, að at-
vinnurekendur í einkarekstri verða að
finna leiðirtil þess að verða þátttak-
endur í þessari nýju aldamótabylt-
ingu í atvinnulífi okkar.
Annar þáttur þessarar byltingar er
tölvuvæðingin og sá nýi heimur, sem
hún er að opna fyrir okkur og í kjöl-
far hennar sjálfvirknin, sem er að
ryðja sér til rúms í iðnaði og eru ein
meginskýringin á því, að japanskur
iðnaður hefur um skeið skotizt fram
úr 100301 Vesturlanda. Það mun
skipta sköpum um stöðu einkarekstr-
ar á íslandi i upphafi 21. aldar,
hvernig þið, sem hér eruð inni og
samstarfsmenn ykkar í viðskipta- og
athafnalífinu, bregðizt við í þessum
efnum, nú á næstu árum. Ég nefni
aðeins eitt svið til þess að undirstrika
mikilvægi þess sem um er að tefla.
Að margra dómi verður á næstu
áratugum mikill vöxtur í nýrri at-
vinnugrein, sem kalla má upplýsinga-
iðnaðinn, þ.e. þeirri þjónustu að
koma upplýsingum á framfæri við
fólk og fyrirtæki, hvort sem það er
gert í dagblöðum og tímaritum, út-
varpi og sjónvarpi, eins og við höfum
kynnzt því fram til þessa, eða með ný
aðferðum, myndbandavæðingu,
samtengingu sjónvarps, simatölvu og
öðrum nýjungum, sem eru að ryðja
sér til rúms.
Hverjir stjórna þessum upplýsinga-
iðnaði, þegar kemur fram á næstu
öld? Verða margir upplýsingabank-
arnir i höndum margra einkaaðila,
þannig að neytendur eigi valkost eða
verður upplýsingabankinn einn í
höndum ríkisvaldsins? Þetta er
grundvallarspurning um það þjóðfé-
lag, sem við erum nú að móta fyrir
framtíðina.
Að lokum þetta:
Jafnvel þótt einakreksturinn taki
réttar ákvarðanir um þau viðfangs-
efni, sem ég hef hér gert að umtals-
efni, mun honum veitast erfitt að
snúa vörn í sókn á næstu árum, ef sú
stjórnmálahreyfing, sem í hálfa öld
hefur barizt fyrir frelsi í atvinnulífi
landsmanna, nær ekki tökum á
vandamálum sínum og ágreinignsefn-
um.
Afleiðing sundrungar þessarar
stjórnmálahreyfingar, sem sumir ótt-
ast, en aðrir telja blasa við, er ákaf-
lega einföld. Vinstri menn mundu
stjóma landinu fram til aldamóta. í
mesta lagi fengi eitthvert flokksbrot
af hægri og miðjuvængnum að þiggja
einhverja mola af borði þeirra, eins
og nú. Vinstri menn mundu móta
stóriðjupólitík okkar á næstu árum.
Visntri menn mundu færa upplýs-
ingabyltinguna í hendur rikisvaldsins
og þá er stutt í Stóra bróður. Vinstri
menn mundu halda einkarekstrinum í
heljargreipum og smátt og smátt
mola niður máttarstólpa hans einn af
öðrum.
Þess vegna eru þeir menn, i öllum
flokksörmum, sem nú taka þátt í því
að leggja í rúst, það sem byggt hefur
verið upp í hálfa öld, að leika sér að
eldi og afhenda ríkisafskiptamönnum
völdin til frambúðar.
Hagsmunamál frjáls athafnalífs
eru mörg, en ég efast um, að nokkurt
þeirra sé eins mikilvægt og það, að
takast megi að halda þeim stjórn-
málasamtökum saman, sem í senn
hafa verið brjóstvörn athafnafrelsis
og vígi til nýrrar sóknar.
Styrmir Gunnarsson,
ritstjóri.
NORDMENDE
Ekki vantar glassileikann né tækninýjungarnar, svo sem System Kalt 3, sem
er það allra nýjasta. Alltaf eru þeir frá Nordmende fyrstir með tæknibyltingar
til landsins, svo sem Transistor In-line-myndlampa, System Kalt 2 og nú
System Kalt 3. Þeir láta ekki að sér hæða Vestur-Þjóðverjar.
NORDMENDE
, Skipholti 19.
Sími 29800.
Þá eru það litsjónvörpin frá
eru ekki ódýrustu tækin í bænum. Gæðin kosta sitt en verðmunurinn er þó
sáralítill og kaupin borga sig. Auk þess bjóðum við mjög góð greiðslukjör,
þannig að þetta er ekkert mál: 2000 út og rest á 6 mánuðum.
Líttu inn og fáðu þér eitt
Það borgar sig
Teg. 1956
Litur: rústrautt 09 kakí gerviefni
Stærðir: 31—38
Verð kr. 193,-
Ný sending
Teg. 200
Litur: beige og rústrautt gerviefni
Stærðir: 28-38
Verð kr. 197,-
Teg.9308
Litur: hvrtt leður
Stærðir: 30—38
Verð kr. 334,- - 365,-
Teg. 2496
Litur: grátt og rústrautt rúskinn
Stærðir: 28-38
Verð kr. 221,- - 235,-
Teg. 2532
Litur:hvftt leður
Stærðir: 28—38
Verð kr. 264,- - 281,-
Teg. 420
Litur: brúnt og rústrautt leður
Loðfóðraðir
Stærðir: 24—33
Verð kr. 315,- - 340,-
Opið
laugardaga
kl. 10-12
STJÖRNUSKÓBÚDIN
Laugavegi 96 — Við hliðina á Stjörnubíói — Sími 23795