Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1981, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ & VfSIR. MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1981.
13
Lone og sonur hennar Thomas. Eftír að hún gerði þessa mynd slö hún f gegn sem
leikstjóri á „Elskaðu mig” (eftír Vitu Andersen) i Bristol-leikhúsinu við Strikið.
Gagnrýnendur fordæmdu sýninguna en almenningur varð svo hriOnn að i heilt ár
var slegizt um miða á hana.
Framlag Háskólabíós á listaviku fatlaðra:
Kvikmynd dönsku leik-
konunnar Lone Hertz um
einhverfa barnið sitt
Tomas er danskur drengur, tæpra 15
ára, sem er einhverfur, flogaveikur og
geðveill. Það þarf að passa hann eins
og lítið barn, því hann gerir í sig og
getur ekki klætt sig hjálparlaust.
Hann er sonur dönsku leikkonunnar
Lone Hertz og leikarans Axels Ströbye.
Þau höfðu hann heima þangað til hann
var níu ára gamall en neyddust þá til að
setja hann á stofnun. Skömmu síðar
brast hjónaband þeirra.
Nú hefur Lone Hertz gert kvikmynd
um soninn og fékk hún mjög góða
dóma í dönskum blöðum. Mæðginin
fóru saman i viku i sumarbústað á
Skagen í Jótlandi með duglegt kvik-
myndafólk sem fylgdarlið. Það fylgdist
síðan með tilraunum Lone til að ná
sambandi við soninn, sem eins og fyrr
segir er mjög þroskaheftur. Hann er
mállaus en svarar þó spurningum með
kortum, sem merkt eru ,,já” eða
„nei”.
Lone leikur sjálfa sig i þessari mynd
og gagnrýnendur segja að hún hafi
aldrei leikið betur.
Myndin verður sýnd í kvöld og
annað kvöld kl. 5, 7 og 9 í Háskólabíói
og er framlag þess til listaviku fatlaðra.
-IHH.
Féll í f jörunni
Vegna fréttar sem var i blaðinu á
föstudag um bílslys á Akranesi hefur
verið beðið fyrir eftirfarandi athuga-
semd. Ástæða útafaksturs mun ekki
hafa verið of hraður akstur heldur það
að sprakk á framhjóli bílsins. Stúlkan
sem slasaðist hlaut meiðslin við byltu i
fjörunni á leið frá bilnum en ekki vegna
slyssins.
KOMDU OG REYNSLUGAKKTU NÝJU
K-BUXURNAR FRÁ KÓRONA, ÞÆR ERU FÁAN-
LEGAR í FLANNEL-FLAUELS-OG TWILL VEFNAÐI.
BANKASTRÆTI 7 • AEJALSTRÆTI4
í rétta stólnum situr þú rétt og í réttri hæð við borðið.
Þannig þreytist þú síöur.
PE 82 er þægilegur stóll framleiddur hérlendis í tveimur
útfærslum, fyrir byrjendur (skólafólkið) og þá sem lengra
eru komnir í lífinu. PE 82 stóllinn er bólstraður, á hjólum
og með gaspumpu. Einnig fáanlegur með örmum og
veltusæti.
Og verðiö er aðeins kr. 823,—
— Já, það ættu allir að hafa efni á að eignast slíkan stól.
Hver hefur annars efni á að eyðileggja heilsu sína vísvit-
andi með rahgri setu?
tjMSKRIFSJŒU^ HUSGÖG N|||p::
HALLARMÚLA 2 - SÍMI 83211
Nuhefurþú
efiii á að kavqpa
rétta stólinn
Tryggjum öryggi barnanna í bílnum,
-með Klippan barnabílstólum.
Sænski Klippan barnastóllinn hef-
ur staðist próf umferðaryfirvaida
og slysavarnarmanna með á-
gætiseinkunn. En við hönnun
stólsins var ekki einungis hugsað
um öryggi og þægindi, heldur einn-
ig um útlit og tvöfalt notagildi.
Kiippan er fáanlegur í allar
tegundir bifreiða.
Klippan er festur eða losaður á
örskammri stundu.
Klippan fylgir leikborð fyrir börnin.
Klippan kostar aðeins 888,75.-
með festingum
Komdu og kynntu þér Klippan og annan öryggisbúnað
í barnahorninu hjáokkur.
SuÓurlandsbraut 16 • Simi 35200
AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF. 7.161