Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1981, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1981.
Bílasmiðja Sturlu Snorrasonar
Dugguvogi 23 — Sími 86150
Byggjum yfir Toyota pick-up bíla.
Fallegarog vandaðar innréttingar.
Ath. Nú oigum við húsin á lager
og menn geta sett þau sjðlfir á
ef þeir vilja.
Ýmsar gerðir af kýraugum fyrirliggjandi:
VIDEO
Video — Tæki— Fiimut
Leiga — Saia — Skipti
Kvikmyndamarkaðurinn —. Simi 15480.
Skólavörðustig 19 (Klapparstígsmegin).
KVIKMYNDIR
HJÓLBARÐAR
Kínverskir vörubílahjólbarðar,
verð frá kr. 2.540,00.
Umboðsmenn víða um land.
Sendum í póstkröfu hvert á land sem er.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI: SF
SÍMI 95-4400, BLÖNDUÓSI.
VEKJARAKLUKKA
Góður gripur
fyrir lítið verð.
Vekur með tóni eða laglfnu. Ýtir við svefnpurkunum
á 4 mínútna fresti. Stillanlegur styrkur vekjara.
Innbyggt Ijós. Gengur fyrir rafhlöðum — óháð
rafmagnsloysi. Rafhlöðurnar endast yfir 1 ár.
HMA
Útlönd Útlönd Útlönd
Á reki um-
kringdur
hákörlum
Fyrsti vélameistarinn á vestur-þýska
flutningaskipinu Elma Tres, sem fórst
á Atlantshafi í síðustu viku, var sá eini
sem komst af. Hann bjargaðist upp á
kjöl björgunarbáts sem hvolft hafði og
hafðist þar við á reki í 26 klukkustundir
áður en honum var bjargað. Mestan
tímann voru hákarlar á hringsóli
umhverfis bátinn.
Á skipinu var 24 manna áhöfn, sjö
Þjóðverjar, sextán Filippseyingar og
íri, sem var loftskeytamaður. Hefur
enginn þeirra fundist þrátt fyrir mikla
leit af sjó og úr lofti.
1. meistari fannst á floti töluvert
austur af Bermúdaeyjum, þegar
Líberíu-skipið Royal Eagle kom að
honum. Þyrla flug með hann til
Hamilton, þar sem hann var lagður á
sjúkrahús, lerkaður eftir hrakninginn.
Hann segist hafa séð allmarga félaga
sína í sjónum eftir að skipinu hvolfdi í
stjórsjó og hvassviðri. Einn skipsfélaga
hans, háseti, hafðist lengi við í loft-
rúminu undir bátnum á hvolfi og
neitaði að koma undan honum og upp
á kjöl til vélameistarans. — „Hann
hlýtur að hafa dáið skömmu áður en
hjálpin barst,” sagði skipbrotsmaður-
inn.
Natalie Wood hvarf
í húmi nætur
Fannst drukknuð ísmábátahöfn Hollywood-stjarnanna
Natalie Wood og Robert Wagner öðluðust hamingjuna öðru sinni, uns dauðinn
skildi þau að.
Bankastræti 8 — Sími 27510;
Kvikmyndaleikkonan Natalie Wood eyjarinnar Katalínu undan
fannst í gær látin, fljótandi í ióni Kaliforníuströnd. — Þar eiga kvik-
Vilhjálmur
Vilhjálmsson
Sjálístœðisíólk
ég óska eftir stuðningi
ykkar.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
mánudag.
Upplýsingasímar
eru 86301 og 86263.
myndastjörnur Hollywood sér smá-
bátahöfn, enda stutt sigling frá Los
Angeles.
Lögreglan segir, að hin 43 ára gamla
leikkona hafi drukknað og að því er
virðist af slysförum. — Natalie hafði
horfið um nóttina af skemmtisnekkju
sinni og eiginmanns síns, Roberts
Wagners, og leit verið gerð að henni.
Um borð í snekkjunni voru maður
hennar og Christopher Walken,
meðleikari hennar í kvikmyndinni
'„Brainstorm”, sem Natalie vann að
um þessar mundir. Hún hafði búið sig í
háttinn upp úr miðnættinu en reyndist
nokkru síðar horfin. Leituðu þeir
félagar að henni um borð en
uppgötvuðu svo að skjöktbátur
snekkjunnar, gúmbátur með
utanborðsmótor, var einnig horfinn og
gerðu þásundvörðumvið lónið viðvart.
Leikkonan fannst undir birtingu.
Bar maður hennar kennsl á líkið, en
það fékk svo á hann að hann var fluttur
undir læknishendi í flugvél til
meginlandsins.
Natalie hefur leikið í meir en 35
kvikmyndum, enda byrjaði hún á
barnsaldri. Þrívegis varð hún tilnefnd
itil óskarsverðlauna en frægasta hlut-
verk hennar var vafalítið María í West
Side Story. — Hún og Robert Wagner
gengu í annað sinn i hjónaband 1972 en
fyrra hjónaband þeirra hafði endað
meðskilnaði.
Ráögjafinn
til rannsóknar
Richard Allen, öryggisráðgjafi
Reagans forseta, segist nú gjalda
gleymsku sinnar, en hann hefur vikið
úr embætti meðan rannsókn fer fram á
meintu misferli hans i starfi í Hvíta
húsinu.
Það er þúsund dollara greiðsla
japanskra blaðamanna, sem Allen
hafði milligöngu um iað fengju viðtal
við Nancy Reagan 21. janúar, er málið
snýst um. Allan tók við greiðslunni og
segist hafa ætlað að afhenda ríkissjóði,
en stungið henni til að byrja með inn í
peningaskáp, þar sem hann síðan
gleymdi henni.
Urðu peningarnir eftir þegar Allen
skipti um skrifstofu, komu ekki í ljós
fyrr en núna á dögunum, þegar
grúskað var í skápnum.