Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1981, Page 2
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981.
Dregfö ígetrauninni
áþrettándanum
-skilafresturtil
4. janúar
Þá er komið að lokum þessa jóla-
leiks okkar með lesendum. Þegar
þið hafið krossað við rétt svar í dag
setjið þið öll svörin í umslag og
merkið það: Jólagetraun Dagblaðsins
& Vísis, Siðumúla 12, 105 Reykjavík.
Svörin mega ekki berast hingað’
seinna en að kvöldi 4. janúar 1982.
Dregið verður úr réttum lausnum
þann 6. janúar, eða á sjálfum þrett-
ándanum.
j Vegna færðar viðs vegar um landið
igetum við ekki dregið fyrr i getraun
■ okkar. Þeir sem búa við erfiðar fiug-
! samgöngur skulu því póstleggja um-
slag sitt þegar í dag til að vera vissir
um að lausnirnar berist á réttum tíma
til okkar.
Og ekki sakar að minna á vinning-i
ana svona i lokin. Tveir aðalvinning-
ar eru i boði. Eru það sjónvarpsleik-
tölvur frá Philips — fullkomnustu
tæki sem framleidd hafa verið. Meði
hvorri fylgir ein kassetta og er verðl
slíkrar tölvu með kassettu rúmarj
, fjögur þúsund krónur.
Tölvuna er hægt að tengja við
, hvaða litsjónvarp sem er. Henni er
aðeins stungið i samband við loft-
netsstungu sjónvarpsins, kassettunni
■ stungið í og leikurinn getur hafizt.
. Hjá Heimilistækjum er hægt að fá 36
mismunandi kassettur og inniheldur;
hver þeirra 4—6 leiki. Frá einum upp|
1 í fjóra geta leikið í einu.
| Leikir þeir sem hægt er að fá eru
1 t.d. fótboltaleikir, golf, keiluspil,]
1 hornabolti, tuttugu og einn, skíða-j
I leikir, kappakstur og orrustulcikir
^ margs konar. Fyrir utan alla hina;
leikina sem ómögulegt er að nefna
hér. Þá býður sjónvarpsleiklölvan
einnig upp á þann möguleika að vera
heimilistölva. Hún getur kennt
yngstu börnum heimilisins að reikna
og skrifa. Þá getur hún leysl reikn-
ingsþrautir margs konar.
Auk þessara glæsilegu vinninga
bjóðum við tíu íslenzkar hljómplölur
að eigin vali frá verzluninni Skífunni
áLaugavegi. -ELA.
— Nei, óg œt1a mór ekki að hafá þig í jólamatinn, gæsamamma. Ég ætia að skrrfafítið
ævintýri um fítinn búóffsem fíýgur ó bakinu ó þór um landið okkar...
JÓLAGEIRAUN DV -10. HLim
Þá er komið að lokum þessarar jólagetraunar okkar. Við vonum að allir hafi hafi gaman af ferðalaginu með jólasveininum en
nú er kominn timi fyrirhann að fara heim og hvíla sig til nœsta árs. En svona að lokum skulum við finna út hvaða frœgi rithöf
undurþað ersem fœrslðasta pakkann frá jólasveininum okkar.
iSlíkt tæki er vlnningur okkar númer
eitl og tvö. Þetla er sjónvarpsleik-
tölva sem sett er í samband við sjón-
varpstæki, kassettu stungiö í tölvuna
og leikurinn birtist á skerminum.
Með fjarstýringu geta allt frá einum
og upp i fjóra leikið i einu.
DB-mynd Einar Ólason. I
A) Selma Lagerlöf „Nilli B) Jules Verne „Kringum
I 1 Hólmgeirsson og j I jörðina á 80 dögum”.
JlflRuintvrafiir hans um J—J'
'ævintýraför hans um
Svíþjóð"
0 Guðrún Helgadóttir
ia úr fjöllunum". *
Nafn
Heimilisfang
Sveitarfélag
Og þá er aö krossa við rétt svar og ktippa getraunina úu Nú hafið þið í höndunum tíu úrlausnir sem þið merkið vel og setjið í
umslag.
mmmmmmummmmmmmmmmmmm—mmmm
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Hröflur Vigdbar «ykit sJMK. Nú «HI
Vikan g«ra hana afl foraata Norag-
aga og SvlþfOðar.
Vigdís forseti
Noregs og
Svíþjóöar?
Hróður Vigdisar forseta'
hefur farið ótrúlega viða á
ekki lengri valdaferli en
tæpu einu og hálfu ári.
Okkur þótti engu að síður
nóg um er við rákumst á
fyrirsögn á forsiðu Vlkunnar
þar sem sagði: Vigdis forseti
i Noregi og Svfþjóð. Nei, svo
valdamikil er hún nú ekki
orðin, drengir.
Vatnid sótt yfir
lækinn
Flugleiðir tóku nýveriö á
leigu Boeing 727-100 þotu
frá Afganistan og leígðu
hana síðan áfram til Kaboi
Air i Nígeríu með íslenzkum;
áhöfnum. í sjálfu sér er'
ekkert athugavert að leigjal
þotu, en að fara alla leið til
byltingarríkisins Afganistam
til þess að endurleigja flug-
vélina þykir mönnum að
sækja vatniö yfir lækinn.
Pyisusali vill !
verða lestar-
stjóri
Ásgeir Hannes Eiriksson
pylsusali hyggur á frekari
umsvif. Auk þess sem hann
tekur viö Borgaranum við
Lækjartorg um áramótin,
thefur hann nú sótt um lóði
undir veitingasölu. Hefur
hann hug á lóð við Skeiöar-
vog á milli Miklubrautar ogl
Suöurlandsbrautar. Þarj
ætlar hann að setja upp
járnbrautarvagn á teinum og
starfrækja matsölu í honum.
Pylsusalinn verður þvi eini!
lestarstjórinn á íslandi, fáij
hann leyfiö.
i
„Ég hef taakin"
{ Einn laufléttur, sem okkur
barst inn á borð:
Maður nokkur (þó ekki i
Hafnarfirði) var handteldnn
fyrir nokkru og var honum
gefið að sök að hafa stundað
ólöglega bruggun. Fundust
tækin við húsleit hjá mann-
inum.
Hann vildi ekki una við
þessi málalok og sagði
iögregluna fullt eins geta
'tekið sig fastan fyrir
nauðgun.
Lögreglumennirnir hváðu.
„Nú, ég hef tækin” sagði|
hann og benti á rnilli fóta
sér.
r, . v~i vm
VBhfélmur var akkl énaagflur mafl
KSiagiöggia hana Péla Haiðara. |
Jólaglogg kvölds
jafnt sem
morgna
Jóiaglögg Páls Heiðars i
Morgunvökunni fór fyrir
brjóstlð á Vilhjálmi
Hjálmarssyni, formanni út-
varpsráðs á dögunum. Vil-
hjálmur er stakur bindindis-
maður og taldi það með öllu
óverjandi að ala á drykkju-
skap í sjálfum þjóðarfjöl-
miðlinum, útvarpinu.
Segir sagan að hann hafi
morguninn eftir lesið Páli
Heiðari pistiiinn. Hvort það
var gert til að storka VII-
hjálmi eða ekki hélt Slgmar
B. Hauksson mikla tölu þá
um kvöldið um jólaglögg.
Kaldir karlar i útvarpinu.
Blessað barnalðn
ð
Þeir á Siglufirðl eru ekki
neitt blávatn. Á vinnu-
nefndarfundi þar i bæ fyrir
nokkru lagði veitunefnd það
tii við bæjarstjórnina að hún
samþykkti lán til handa Raf-
veitu Siglufjarðar að upp-
hæð 7 milljón nýkrónur. Er
hér um að ræða endurlán af
láni er rikissjóður tók í Bret-
landi og var það nefnt
„barnalán”. Þá má þvi með
sanni segja að það sé bless-
að barnalániö hjá þeim á
Sigló.
Sigurður Sverrisson j
eii
Niðursoðnir ávextir
Ananas:
ISI-bitar 1/1 ds...........49,80
ISI-bitar 1/2 ds...........33,75
ISI-sneiðar 1/2 dl.........42,00
Heaven Temple-sneiðar 1/1 ds ... 36,45
Heaven Temple-sneiðar 1/2 ds ... 27,30
Diadem-sneiðar 3/4 ds......44,55
Red & White-sneiðar........55,35
Red & White-mauk...........55,35
Dole-bitar 3/4 ds..........40,50
Dole-sneiðar...............46,35
#3
Perur
Del Monte 1/1 ds...........58,95
Coop 1/1 dl ...............55,35
Coop 1/2 ds................34,05
Ligo 1/1 ds................67,05
Wheatsheaf 1/2 ds..........29,85
Tom Piper 1/2 ds......... 34,50
Ky 1/1 ds..................59,85
Ky 1/2 ds..................40,80
Monarch 1/1 ds.............80,55
Monarch 1/2 ds.............51,30
Rcd and White 1/1 ds.......76,65
Red and White 1/2 ds.......37,20
Barttett 1/4 ds............14,10
Hearts delight 1/1 ds......58,80
Flying Wheel 1/1 ds........53,10
#3
Blandaðir ávextir
Monarch 1/1 ds.............80,55
Monarch 1/2 ds.............52,80
Red and White 1/1 ds.......77,40
Red and White 1/4 ds.......32,85
Shopwell 1/4 ds............18,15
Tom Piper 1/2 ds........ 40,20
Tim Piper 1/1 ds...........70,05
Red and White 1/2 ds.......52,05
Cockothe walk 1/2 ds.......43,20
Ky 1/2 ds..................47,40
Hearts delight 1/2 ds......43,20
Ann Page 1/1 ds............85,35
4j3
Jarðarber
Bulgar 1/1 ds..............55,95
Veluco 1/1 ds..............80,85
Samodan 1/2 ds.............54,00
Royal Norfolk 1/2 ds.......40,65
Lockwoods 1/2 ds...........46,35
Lockwoods 3/4 ds...........68,25
Lockwoods 1/4 ds...........31,05
Opið allan daginn.
Sparimarkaðurim
Austurveri