Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1981, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981.
í hvernig veðri
kanntu bezt við
þig?
Alma Andrésdóttir: Að vetri til kann ég
bezt við mig í raka. Það er gott fyrir
húðina.
Spurningin
Sigurflur Grétarsson: Að sjálfsögöu
kann ég bezt við mig í sól og miklum
hita.
Guðmundur Grétarsson: Ég kann lang-
bezt við mig í sól og hita. Það er nú eitt-
hvað skárra veður en þessi eilífi næð-
ingur á veturna.
Páll Jónsson: Ég kann auðvitað bezt
við mig i sólskini og þá gildir einu hvort
um er að ræða vetur eða sumar. Alla-
vega leiðist mér þetta vetrarveður eins
og það hefur verið til þessa.
Hrafnhildur Sigurjónsdóttir: Eg kann
bezt við mig i sól og svoleiðis.
Elsa Tómasdóttir: Sól og blíöu náttúr-
lega.
Lesendur Lesendur Lesendur
Vegna ástandsins í El Salvador:
„Eru réttlæti og ranglætí
landfræðileg hugtök" —spyrlesandi
„1 E1 Salvador er fólk ekki aðeins drepið, heldur pyntað til dauða með viður-
styggilegum hætti,” skrifar George Drake.
Hljómsveitin
Friðryk til
fyrirmyndar
— framkoma og tónlist með ágætum
Frá stjórn Nemendafélags mennta-
skólans á Egilsstöðum:
Helgna 31. okt.-2. nóv. kom
hljómsveitin Friðryk ásamt hinum
landskunna gítarleikara Björgvin
Gíslasyni hingað i Menntakólann á
Egilsstöðum. Spiluðu þeir á dansleik
sem haldinn var i skólanum og á
almennum dansleik á ReyðarFirði.
Einnig héldu þeir hljómleika í M.E. á
sunnudagskvöld. Allt tókst þetta vel,
en þó var sorglega dræm aðsókn á
hljómleikana, sem voru mjög góðir.
Þessa daga hafði hljómsveitin
aðsetur hér í skólanum. Vorum við í
fyrtu hálf smeyk við að lofa þeim að
vera vegna slæmrar reynslu af hljóm-
sveitinni „Þey” sem spilaði hjá
okkur í fyrravetur, og var vægast
sagt mjög slæm í umgengni. Félag-
arnir i Þey voru tillitslausir gagn-
vart okkur og gengu um húsnæðið
eins og það væri þeirra heimili en
ekki okkar.
Friðryk sýndi hins vegar skilning á
þeim reglum sem gilda innan skólans
og misnotuðu ekki þá aðstöðu
sem þeir fengu. Voru því samskiptin
við þá i alla staði góð, og eru flestir
hér sammáia um ágæti Friðryks bæði
hvað tónlist og framkomu snertir.
Sendum við þeim hér með beztu
kveðjur og þakkir fyrir komuna hing-
að austur.
George Drake, 2566—4264, skrifar:
Nú berast váleg tíðindi frá
Póllandi. Fólk sem leitar
mannréttinda er barið á bak aftur
með hervaldi. Þessu er kröftuglega
mótmælt og tek ég heilshugar undir
þau mótmæli.
Hins vegar finnst mér vakna sú
spurning, hvort okkar siðgæði sé-
ekki tvöfalt. Okkur hafa borizt fréttir
af sannkölluðu þjóðarmorði i E1
Salvador, þar sem fólk er ekki aðeins
drepið heldur pyntað til dauða með
viðurstyggilegum hætti. Þetta fátæka
fólk, sem er að leita eftir
frumstæðustu mannréttindum, er
brotið niður með svo hroðalegum
hætti, að engu tali tekur, og virðist
helzt minna á aðfarir nazista.
Þegar Helförin var sýnd á sínum
tíma voru flestir slegnir óhug og
spurðu hvernig þetta hefði getað
viðgengizt. En nú eru atburðir af
þessu tagi að eiga sér stað, meðal
annars í E1 Salvador. Hvernig
stendur á því að þetta fólk á sér ekki
málsvara hér? Hvernig stendur á því
að stjórnmálaflokkar og verkalýðs-
félög rísa ekki upp og mótmæla?
Hvernig stendur á því að ráðherrar
og Alþingi gefa sér ekki tíma til þess
að ræða þessi mál?
Sagt var í fréttum að Bandarikja-
menn hefðu ákveðið að hætta mat-
vælasendingum til Póllands vegna
þess að mannréttindi hefðu verið
skert þar en á sama tíma senda þeir
ofbeldismönnunum í E1 Salvador
vopn sem notuð eru til þess að drepa
saklaust fólk.
Hvernig stendur á því að
fjölmiðlar ræða varla atburðina í E1
Salvador en verja ótakmörkuðu rými
til þess að fjalla um atburðarásina í
Póllandi? Nú eit ég að það er auðvelt
til þess að fjalla um atburðarásina í
Póllandi? Nú veit ég að það er
auðvelt að snúa út úr því sem hér er,
sagt og leggja þetta þannig upp að ég
vilji ekki láta mótmæla þvi sem er að
gerast í Póllandi. Þetta væri
ósanngjarnt, því þessi hugsun er mér
fjarri.
En yfirgang og ofbeldisverk á ekki
að dæma eftir böðulshendinni. Verk
hennar á að fordæma, hvort sem
henni er stjórnað að austan eða vest-
an.'Látum ekki komandi kynslóðir
horfa á heimildarmynd um helförina
í E1 Salvador og spyrja: hvernig mátti
þetta eiga sér stað, hví var ekki mót-
mælt? Eru réttlæti og ranglæti land-
fræðileg hugtök?
i'
I bréfi frá stjórn Nemendaféiags menntaskólans á Egilsstöðum stendur, að hljóm
sveitin Friðryk hafi virt reglur skólans og yfirleitt veríð aufúsugestir.
Sjónvarpsglap skemm- — sitthvað um „hjátrú sem illa
ir ekki sjónina gengurað uppræta"
Gamli Dagur skrifar:
„Gáðu að sjóninni, þinni, drengur
minn. Horfðu ekki svona inn í
lampaljósið — þú mátt ekki ofbjóða
augunum þínum, þau eru það dýr-
mætasta sem þú átt. ”
Eitthvað á þessa leið voru
aðvörunarorð til barna í gamla daga
um að misbjóða ekki sjóninni.
En hvað nú?
Hvað segja læknar og aðrir sér-
fræðingar um sjónvarpsgláp barna og
fullorðinna? Hvað segja þeir um hin
óskýru og smáu meginmálsletur, sem
„tölvusetningin” hefur rutt til rúms
meðal blaða og annarra prentgripa á
kostnað sjónarinnar? Hefur notkun
gleraugna aukizt?
Er hættan liðin hjá, sem spillt
getur sjóninni?
Gömul hjátrú
Blaðamaður DV bar þetta bréf
undir Guðmund Björnsson,
prófessor í augnlækningum.
Guðmundur sagði að hér væri á
ferðinni gömul hjátrú sem illa gengi
að uppræta.
,,Þú skemmir ekkert sjónina með
því að glápa á sjónvarp, lesa við
daufa birtu, eða horfa í sterkt ljós.
Þú bara þreytist. Þetta á ekkert skylt
við hávaðamengun, sem getur skert
heyrn,” sagði Guðmundur.
,,Ef þú horfir i sólina, hins vegar,
geturðu skemmt augun, vegna þess
að sú geislun er svo sterk og auga-
steinarnir verka eins og stækkunar-
gler, sbr. fólk, er verður blint af að
horfa i sólmyrkva, sem þó er mjög
sjaldgæft. { því sambandi getur það
hent fólk, sem er undir áhrifum eitur-
lyfja, eins og LSD, að stara í sólina
og verða blint af þvi.
Sjónin er að breytast alla ævi og
flestir þurfa að nota gleraugu við
nærvinnu og lestur um 45 ára aldur.
Notkun gleraugna hefur aukizt í
réttu hlutfalli við aukna skólagöngu
og breytta atvinnuhætti, þvi fólk
þurfti síður á gleraugum að halda við
þá starfshætti sem áður tíðkuðust.
Letur i dagblöðum, sumum bók-
um og tímaritum er allt of smátt fyrir
roskið fólk. Ég varð t.d. fyrir
miklum vonbrigðum með letrið í nýju
Biblíunni. Það er allt of smátt, að
mínum dómi,” lauk augnlæknirinn
máli sínu.