Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981.
9
Útlönd Útiönd Útlönd Útlönd
Rauðu herdeildimar
ræna bandarískum
hershöfðingja
Rauðu herdeildirnar ítölsku rændu í
gærkvöldi æðsta herforingja Banda-
ríkjahers í Suður-Evrópu af heimili
hans í Veróna.
Fjórir vopnaðir menn, grímubúnir,
villtu á sér heimildir og þóttust vera
pípulagningarmenn. Tróðu þeir James
L. Dozier, brigadier-hershöfðingja,
ofan í kistu og höfðu með sér á brott.
Kona hans, Judith (47 ára), var
skilin eftir kefluð og bundin. Henni
tókst að vekja athygli nágrannanna
nokkrum stundum siðar með því að
berja höfðinu í vegg íbúðarinnar.
Nafnlaus maður lýsti þessu verki á
hendur Rauðu herdeildunum i síma og
sagði að skrifleg yfirlýsing mundi
birtast síðar. — Er þetta fyrsta meiri-
háttar mannrán Rauðu herdeildanna
síðan þeir rændu og myrtu Aldo Moro
árið 1978.
Dozier hershöfðingi er yfirmaður
reiknings- og stjórnunardeildar NATO
í Veróna. Hann er fyrsti útlendingurinn
sem menn Rauðu herdeildanna ræna.
Um leið er hann fyrsti bandaríski her-
höfðinginn sem lendir í klóm
mannræningja í V-Evrópu.
Hryðjuverkamenn í V-Þýzkalandi
sýndu Frederick Krösen, yfirmanni
bandariska herliðsins í Evrópu, hins
vegar banatilræði fyrir þrem
mánuðum.
Giovanni Spadolini forsætisráðherra
kvaddi þegar á sinn fund í nótt þegar
hann fékk fréttirnar; innanríkis-
ráðherrann, varnarmálaráðherrann og
yfirmenn leyniþjónustunnar.
. Lögreglan setti upp götutálmanir í
miðborg Veróna og jók mjög vörzlu á
vegum á stóru svæði Norður-Ítalíu. En
þá voru þrjár kiukkustundir frá því að
rænrngjarnir óku brott frá íbúð hers-
höfðingjans.
Síðustu sex mánuði hefur verið
SKRIÐUR Á BENSÍN-
HNEYKSLISMÁLIÐ Á ÍTALÍU
Fyrrum yfirmaður tollgæzludeildar
fjármálaráðuneytis Ítalíu var hand-
tekinn í gær. Hann er sakaður um spill-
ingu í tengslum við bensínsvikahneyksl-
ið.
Erneste del Gizzo (50 ára) var látinn
víkja úr embætti í janúar síðasta þegar
rannsóknir voru hafnar á svikum og
skatti af olíuframleiðslu. — Yfir 100
manns, þar á meðal yfirmaður toll-
gæzlunnar á Ítaliu, hafa verið í haldi
lengri eða skemmri tíma vegna þessa
hneykslismáls.
Talið er að ríkissjóður hafi verið
'syikinn um tvo milljarða dollara yfir
tíu ára bil í þessum skattsvikum.
hljótt um Rauðu herdeildirnar.Fyrr á
þessu ári tóku þær sex ítalska gísla og
drápu tvo þeirra. Margir meintir
Rauðu herdeildarmenn hafa verið
handsamaðir á síðustu mánuðum og
yfir standa nokkur réttarhöld í málum
margra þeirra.
Barðist
íVíetnam
James Dozier, brigadier-hers-
höfðingi, er háttsettasti foringi
bandariska herliðsins i Suður-
Evrópu. Hann er fimmtugur að
•aldri, yfirmaður „logistick and
administration”, hins sameinaða
herafla NATO í Veróna.
Hann hefur þjónað í 25 ár í
Bandaríkjaher og barðist í Víet-
nam 1968 og 1969. Síðan var
hann með skriðdrekadeildum í V-
Þýzkalandi.
Hann tók við störfum í
Veróna í fyrra.
Dozier er frá Arcadia í
Flórída og hefur verið sæmdur
fjölda heiðursmerkja í her-
þjónustu sinni. Þar á meðal silf-
urstjörnunni fyrir hreystilega
framgöngu. Hann útskrifaðist frá
West Point, lauk einnig
verkfræðiprófi í háskóla Arisona
og nam við háskóla hersins.
Skófavörðustíg
ÚTSÖLUSTAÐIR:
VÉLSM. STÁL, Seyðisfirði
VERSL. ÖGN, Siglufirði
VERSL. SKÓGAR, Egilsstöðum
SPORTBORG, Kópavogi
BÓKAV. ÞÓRARINS STEFÁNSS.,
EINAR GUÐFINNSS., Bolungarvik
HAGKAUP, Reykjavík
SPORTHLAÐAN, ísafirði
FALKINN VERSL. BJARG, Akranesi VÉLSM. SINDRI, Ólafsvík KAUPFÉLAG SKAGF., Sauðárkróki K.E.A. Akureyri VIÐAR GARÐARSSON, Akureyri
Húsavík SKÍÐAVÖRUDE/LD