Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1981, Síða 12
12
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981.
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Demantssfld frá Reyðarfirði:
Feit og falleg sild
á iólaboröiö
Demantssíld er nú til sölu á nokkr-
um stöðum í Reykjavík. Er þetta síld
austan af Reyðarfirði sem hefur verið
grófsöltuð, slógdregin og hausuð en
er heil að öðru íeyti. Hana er gott að
flaka og marinera. Sildin er einstak-
lega stór og falleg ogvelfeit.
Friðjón Vigfússon á Reyðarfirði
sagði að þessi síld hefði verið sett á
markað í tilraunaskyni. Ekki væri til
neitt óskaplegt magn af henni en
verið væri að kanna hvernig fólk
tæki þessari nýjung.
Síldinni er pakkað í lofttæmdar
umbúðir og er það kjötiðnaðarstöðin
á Reyðarfirði sem sér um pökkunina.
Á pökkunum er alveg einstaklega
skemmtileg áletrun. Mættu fleiri
framleiðendur taka hana sér til fyrir-
myndar. Hún hljóðar svo:
„Demantssíld er valin úrvalssíld af
vertíðinni nú í haust. Síldina veiddi
Skúmur GK 22 en skipstjórinn var
aflaklóin Ómar Einarsson. Síldin
veiddist á Reyðarfirði aðfaranótt 26.
október 1981 og var samdægurs
„cutsöltuð” af síldarsöltunarstúlk-
um á Reyðarfirði. Síldin hefur verk-
azt vel við rétt hitastig iog er nú til-
búin til marineringarískammdeginu. ”
Á umbúðunum eru einnig leið-
beiningar um marineríngu og hvernig:
matreiða má síldina á ýmsa vegu.
Kílóverð á síldinni út úr búð er 37
krónur og 50 aurar. Hún fæst meðal
annars i S.S. i Glæsibæ, Straumnesi
og víðar. Verktakar hf. á Reyðarfirði
standa fyrir þessari skemmtilegu
nýjung. -DS.
Eins og sjú mú er síldin að austan bæðifeit ogfalleg. Sannkölluð
jólasíld.
/ DV-mynd Einar Ólason.
Efþað vefst fyrir einhverjum hvernig skuli koma skreytingu á piparkökurnar er
hér ein tillaga. Þið búið til kramarhús úr smjörpappír, setjið glassúr í og lokið
kramarhúsinu með límbandi.
Sjö og hálff aldur verðmunur á kolum í rafal:
Ástæður kunna að vera margar sádýrarí
FÖSTUDAGSKVÖLD
IJIiHUSINUl IJI!HUSINU
OPK) DEILDUM TIL KL10 I KVÖLD
NÝJAR VÖRUR IÖLLUM DEILDUM
MATVÖRUR
FATNAÐUR
HÚSGÖGN
BYGGINGAVÖRUR
TEPPI
RAFTÆKI
RAFLJÓS
REIÐHJÓL
Ótrúlaga hagstæflir
greíðsluskilmálar 6
flestum vöruflokkum.
Allt niflur 1 20% út-
bórgun og lánstími ailt
afl 9 mánuðum.
JB
iSBÍSil
issai
Jfln Loftsson hf. __________
Hringbraút 121 ,SMH
MUNIÐ! OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD 0G ANNAÐ KVÖLD
Haraldur Steingrimsson hringdi til
að vekja athygli á furðulega miklum
verðmun milli tveggja verzlana á litl-
um hlut. Hluturinn var kol í rafal í
Volvo Amason frá árinu 1966 og
munaði að sögn Haralds rúmum
hundrað krónum á vérðinu, annars
vegar í Velti og hins vegar i Bílanausti
Við könnuðum málið og sáum að
reyndar munar ekki alveg svo miklu
en munurinn er mikill eigi að síður. 1
Bílanausti kosta kolin 13 kr. en
97,90 i Velti. Er verðið í Velti því sjö
og hálffalt það sem það er i Bíla-
nausti.Fannst okkur munurinn mikill
og spurðum þá sem fyrir svörum
urðu á báðum stöðum um ástæðuna.
Afgreiðslumaðurinn í Bílanausti
sagðist enga skýringu kunna á þessu
ákveðna dæmi. Hins vegar hefði
Bílanaust oft getað boðið lægra verð
en aðrir á hvers kyns rafmagns-
vörum. í þessu dæmi væri ekki um
að ræða gamlar birgðir því líklega
væru kolin um mánaðar gömul.
Afgreiðslumaður í Velti sagði að
skýringarnar kynnu að veta margar. í
fyrsta lagi gæti það komið til að
Volvo-verksmiðjurnar framleiddu
þennan hlut ekki sjálfar og þyrfti að
fá hann frá annarri verksmiðju,
jafnvel í öðru landi. Slíkt hækkaði
auðvitað verðið.
Önnur hugsanleg skýring taldi
hann að gæti verið gæðamunur.
Volvo byði aðeins fyrsta flokks vara-
hluti og gilti það jafnt um kol og
annað. Þar sem hann hafði ekki séð
kolin frá Bílanausti vildi hann hins
vegar ekki fullyrða um hvort sú væri
skýringin.
Hann sagði að síðustu að Veltir
hefði oft getað boðið lægra verð en
aðrir á ýmsum vörum sem ört seldust
og því væri unnt að gera hagstæð
innkaup. En þegar um svona hlut
væri sem hreyfðist lítið væri það ekki
unnt. DS.
Fimmfall verð á Sunday Times:
Verzlunin græðir
minna en ekki neitt
— aðeins þjónusta
Áhugasamur blaðalesandi hringdi:
Mig langar til að segja frá háu
verði á erlenda blaðinu Sunday
Times. Ég hef keypt það nokkrum
sinnum í Bókaverzlun Sigfúsar
Eytnundssonar á 30 krónur. Þetta
þykir mér fáheyrt verð. í Englandi
kostar blaðið 35 pens (5,35 kr.) og 15
krónur í Danmörku. Hér er það sem
sagt meira en helmingi dýrara en í
Danmörku og fimm sinnurn dýrara
en í Englandi. Mér þætti i lagi að
borga þetta 18—20 krónur en 30 er of
mikið.
Raddir neytenda
Svar: Ég hafði samband við Einar
Óskarsson í bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar. Hann sagði að þarna
væri um rétt verð að ræða og væri
manninum velkomið að koma og sjá
verðútreikninga sem of langt mál
væri að skýra frá í blaðinu. En hluti
af skýringunni væri að oft kæmi
blaðið það seint til landsins að aðeins
örfáir keyptu það. Því yrðu mikil af-
föll af því. Verzlunin hefði ekki neitt
og jafnvel minna en það fyrir að selja
þessi erlendu dagblöð, en þetta væri
þjónusta við fólk sem ákveðið hefði
verið að veita samt. Einar sagði að
aðeins ein önnur verzlun í bænum
seldi nú þessi blöð. Aðrar hefðu
hreinlega gefizt upp á því að fá ekkert
fyrir snúð sinn.
-DS.