Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1981, Side 32
Piltamir sem skrif uðu gúmmíf ékka fyrir 60 þúsund krónur:
UFÐU í ALLSHERJ-
ARSUKKI í TÍU DAGA
„Þeir voru í allsherjarsukki og
margir með þeim. Þeir lifðu hátl
þessa daga, ég held að það sé óhætt
að segja það. Þetta byrjaði fyrstu
dagana i desember, 3. eða 4.
desember, og lauk um síðustu helgi er
þeir voru teknir,” sagði Arnar
Guðmundsson, deildarstjóri hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins, um
mennina tvo sem nú hafa játað að
hafa gefið út innstæðulausar á-
vísanir fyrir 60 þúsund krónur, eins
og DV skýrði frá i gær.
Peningarnir fóru aðallega í áfengi
en einnig voru þeir með tvo bíla-
leigubíla til umráða á fyrrgreindu
tímabili. Buðu þeir mörgum félögum
að taka þátt í gleðskapnum.
Mennirnir, sem eru um tvítugt,
sendu m.a. hvor öðrum þrjár
innstæðulausar, símaávísanir og
höfðu lítið fyrir því. Tvær þeirra fóru
á milli pósthúsa í Reykjavík, en ein
var send í pósthús á Suðurnesjum.
Frá Pósti og síma náðu þeir þannig
20þúsund krónum.
Gæzluvarðhalds var ekki krafizt
yfir mönnunum, þar sem ekki var
talið að þeir gætu spillt fyrir rann-
sókn málsins.
-KMU.
Það var þröngt á þingi þegar kröfugerðarhópur lögreglunnar haföi stormað inn í fundaherbergi ráðuneytanna l Arnarhvoli í gœr. Þeir
Hjalti Zóphóníasson ogÞorsteinn Geirsson tóku þar á móti hópnum og gáfu sjálfum sér frest til dagsins í dag til að svara endanlega beiðni
lögreglumanna um enn lengrifrest áframkvœmd nýju vaktalaganna. D V-mynd Friðþjófur.
Ávísana-
falsað
aukasf
„Það er ástæða til að mínna þá
sem í viðskiptum standa, sérstak-
lega nú í jólaösinni, á að gæta sín í
meðferð og móttöku ávísana. Það
er alveg sjálfsagt að krefja fólk um
persónuskilríki, ég tala nú ekki um
þegar um börn eða unglinga er að
ræða,” sagði Arnar Guðmundsson,
deíldarstjóri hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins I samtali við DV.
„Svona mál virðast alltaf vera að
aukast. Hjá okkur er iöluvert af
óupplýstum málum, bæði fals-
málum og svo yfirdráttum á reikn-
ingum. Við erum t.d. með sýnis-
horn úr nokkrum ávisanaheftum,
sem okkur hefur ekkl tekizt að upp-
lýsa, sem er greinilega fals í gangi
en við höfum ekki komizt áleiðis
með.
Ég held að það megi alveg segja
það að það sé dálítið vont atriði í
svona málum almennt að bankarnir
eru ekki ábyrgir. Bankarnir verða 1
raun aldrei fyrir tjóni heldur aðrir
aðilar, þeir sem leysa út ávísanirn-
ar.
Mér finnst það alveg sjálfsagt að
gera þær kröfur til banka að þeir
gangi úr skugga um næga inni-
stæðu á tékkareikningum þegar
þeir selja ávísanahefti,” sagði
Arnar Guðmundsson hjá rann-
sóknarlögreglunni.
-KMU.
Lögreglumenn munu
grípa til aðgeröa
—efvöktum verður breytt einhliða umáramót
Stór hópur kraftalegra lögreglu-
þjóna mætti í Arnarhvoli í gær til að
ræða þar við fulltrúa frá dómsmála- og
fjármálaráðuneytinu. Var
umræðuefnið tillaga að nýju vaktkerfi
lögreglumanna sem valdið hefur miklu
fjaðrafoki í nðum þeirra að undan-
förnu.
Hópinn skipuðu 20 menn og var
þetta hinn svokallaði kröfugerðahópur
lögreglumanna sem kosinn var á félags-
fundi fyrir nokkrum dögum. Fer þessi
stóri hópur með öll umboð í samninga-
málum félagsins.
Á fundinum í gær var lögð fram
beiðni lögreglumanna um frest á gildis-
töku nýja vaktafyrirkomulagsins. Það
átti fyrst að koma til framkvæmda 1.
desember sl., en var frestað til 1.
janúar. Vilja lögreglumenn heldur ekki
byrja á nýja vaktafyrirkomulaginu þá.
Segja þeir að eftir eigi að semja við þá
um ýmsar sérkröfur og margt annað og
vilja fáþetta allt í einum pakka.
Fundinn sátu, fyrir hönd dóms-
málaráðuneytisins Hjalti Zóphónías-
son og fyrir fjármálaráðuneytið Þor-
steinn Geirsson. Þrátt fyrir að
kröfugerðarhópurinn á móti þeim væri
stór og skipaður mörgum þekktustu
lagavörðum borgarinnar, samþykktu
þeir félagar ekki að gefa Iögreglunni
hinn umbeðna frest. Þeir sögðust vilja
ræða málið aðeins nánar og að
endanlegt svar yrði gefið í dag.
„Verði svarið neikvætt erumviðtil-
búnir að mæta því með réttum
aðgerðum,” sagði Björn Sigurðsson
formaður Lögreglufélagsins í viðtali
við DV. Hann vildi ekki segja hvaða
aðgerðir þetta væru — þær kæmu í Ijós
ef á þeim þyrfti að halda. Lögreglu-
menn myndu að sjálfsögðu fara að
lögum og lögin hefðu þeir með sér í
þessu máli. -klp-
Frekarí samningar vió
Blöndumenn líklegir
Nú er ljóst að einungis ein hrepps-
nefnd af sex, sem gæta hagsmuna land-
eigenda að virkjunarsvæði Blöndu,
hefur lýst sig mótfallna virkjunarleið 1,
Blöndu-Fljótsdal-Sultartanga. Tvær
eru samþykkar og tilbúnar til að skrifa
undir fyrirliggjandi samningdrög en
þrjár viljá frekari samningaviðræður.
Sú eina sem ályktað hefur gegn leið 1
hefur þó lýst sig fúsa til viðræðna um
aðra tilhögun Blönduvirkjunar.
Meirihluti hreppsnefndar í Svína-
vatnshreppi, þrír af fimm, samþykkti í
gærkvöld að hreppsnefndin væri enn
til viðræðna um samningsdrögin með
tilliti til þess að sumar hinna hrepps-
nefndanna hefðu lýst sig samþykkar
þeim en aðrar óskað frekari viðræðna.
Fyrr I þessari viku varð ljóst að ekki
gæfist tími á Alþingi fyrir jólaleyfi til
þess að afgreiða þingsályktunartillögu
ríkisstjórnarinnar um virkjunarmál.
Eftir að afstaða heimamanna liggur nú
fyrir og helmingur hreppsnefndanna
eða jafnvel meirihluti óskar frekari
viðræðna um Blöndu sem næstu stór-
virkjun er talið afar líklegt að slíkar
viðræður fari fram.
I samþykkt ríkisstjórnarinnar um
virkjunarmálin er Fljótsdalsvirkjun
næsti kostur að Blöndu frágenginni. Á
Alþingi hefur komið fram breytingar-
tillaga við þingsályktunartillögu ríkis-
stjórnarinnar, sem gerir ráð fyrir að
Sultartangavirkjun færist fram fyrir
Fljótsdalsvirkjun. í viðræðum DV við
alþingismenn hefur komið fram að allt
eins geti svo farið, ef ekki næst sam-
komulag um Blönduvirkjun, að Sultar-
tangi verði fyrir valinu en almennur
vilji virðist vera fyrir frekari Blöndu-
viðræðum eins og dæmið stendur.
hjálsl, úháð dagblað
FÖSTUDAGUR 18. DES. 1981.
íslendingamir í Póllandi:
Komast til
Londonídag?
„Ég hef ekkert frétt af þeim ennþá.
Það eru tvær fiugvélar væntanlegar frá
Varsjá til London síðdegis í dag. Ég
vona bara að þeir komist með þeim,”
sagði Þórhallur Helgason, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvarinnar
hf. í Reykjavík, við DV í rrorgun.
Eins og lesendum DV er kunnugt eru
þrír menn á vegum fyrirtækisins stadd-
ir í Póllandi þessa dagana vegna breyt-
inga á tveimur skipum fyrirtækisins,
Viðey og Engey. Hefur ekkert til þeirra
spurzt frá því hennn tók völdin í Pól-
íandi.
Mennirnir sem staddir eru í Póllandi
þessa dagana eru Már Gunnarsson I.
vélstjóri á Engey, Einar Jóhannsson 1.
vélstjóri á Viðey og Björn Jónsson 2.
vélstjóri á Viðey. Þeim síðastnefnda
var ætlað að dvelja í Póllandi yfir há-
tíði rnar. -SER.
Plöfusalan:
Himinn og
jörð söluhæst
Óvenju góð sala hefur verið á hljóm
plötum síðustu vikurnar, og þá sér-
staklega á íslenzkum hljómplötum.
Þessi góða sala stafar að miklu leyti af
hagstæðu verði en hljómplötur hafa
lítið hækkað i verði á þessu ári.
Söluhæsta íslenzka platan þessa
vikuna var Himinn og jörð, plata
Gunnars Þórðarsonar. í öðru sæti er
Skallapopp með ýmsum flytjendum,
innlendum og erlendum. í þriðja sæti
er svo Katla María með Litla
Mexíkanann.
Við jólatréð, með ýmsum
flytjendum, er í fjórða sæti, Bessi
Bjarnason með Bessi segir sögur í
fimmta sæti og Ómar „Gáttaþefur”
Ragnarsson er í sjötta sæti.
Af tíu söluhæstu plötunum á íslandi
ídag eru sjö íslenzkar.
Af öðrum söluháum íslenzkum
hljómplötum má nefna plötu Grahams
Smith, Grýlurnar, Eins og þú ert,
Jólaboð Hauks Morthens og
Mezzoforte. Sjá bls. 26. -ATA
LOkl
Grípi lögreglumenn ti! að-
gerða gegn ríkinu, verða
það þá lögregluaðgerðir?