Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1981, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1981, Qupperneq 12
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1981. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Skatan fyrir heilagan Þóriák Nú er að snúa sér að skötunni fyrir heilagan Þorlák. Við höfðum samband við nokkra fisksala í bænum og höfðu allir sömu sögu að segja að nóg er til af skötunni. Kostar kilóið krónur 33.- Flestir borða skötuna soðna með kartöflum og; hamsatólg. En þeir sem eru að vestan vilja líklega helzt vestfirzkani hnoðaðan mör með skötunni sinni. 1 tveimur fiskbúðum, þar sem við átt- um tal við fisksalana, var til vest- firzkur mör. Það var í Sæveri við' Háaleitisbraut og Fiskmiðstöðinni, Fellagörðum og sjálfsagt fmnst mörinn á fleiri stöðum. Þó að það hafi færzt í aukana að fólk snæði skötu á Þorláksmessu, er ekki víst að Mörgum þykir skata herramanns matur. margir þekki skötustöppu, jú auðvit- að Vestfirðingar. En skötustappan er lostæti með rúgbrauði og smjöri. Hvernig væri að reyna? Þið bræðið hnoðaðan mör, þennan að vestan, setjið út í hann örlítið vatn, soðnar kartöflur og soðna skötu. Hrærið eða stappið öllu vel saman. Setjið síðan stöppuna i jólakökuform eða skál og þar harðnar hún. Skerið síðan kökuna í sneiðar og borðið með rúgbrauði og smjöri. Þetta er öndvegis matur. Og þó að lyktin komi óþægilega við lykt- artaugar viðstaddra þegar skatan er soðin og mörinn bræddur, gleymist hún við fyrsta bita. -ÞG. KÆST OG ÞURRKÆST SKATA í SÆBJÖRGU Meira um skötuna. Þegar við höfðum samband við Guðmund Óskarsson fisksala hjá Sæbjörgu kom í ljós að hann ■ selur bæði venjulega kæsta skötu og eins þurrkæsta skötu. Sú síðasttalda er þurrkuð og kæst en ekki söltuð. Kílóið af þurrkæstu skötunnni í Sæbjörgu kostar kr. 30,- og venjulega kæst skata kostar aðeins kr. 24,- sem er níu krónum ódýrara en annars staðar. Hvers vegna spurðum við Guðmund Óskarsson? „Þegar skötuhátíðin gengur í garð viljum við gjarnan að fólk eigi völ á því að fá a.m.k. eina máltíð í kringum jólin á gamla verðinu. ” -ÞG. Þegar kaupin hafa faríð fram, er fótki ráðiagt að geyma jóiatrón á köldum stað. Og sólarhring áður en tróð er sett inn i stofu er það lagt í bleyti eða sprautað yfirþað. O V-mynd/FH GEYMIÐ JÓLATRÉÐ Á KÖLDUM STAÐ — og vökvið það vel þegar það er sett upp Nú eru flestir farnir að huga að jólatréskaupum, hafi þau ekki þegar verið gerð. Eins og áður eru nokkrar tegundir jólatrjáa á boðstólum á mis- munandi verði. DV leitaði til Land- græðslusjóðs til að grennslast fyrir um þessi mál. Samkvæmt upplýsingum sem þar fengust eru nú einkum þrjár teg. jólatrjáa fáanlegar. Fyrst skal nefna rauðgreni, sem mikið eru keypt. Meðaltré er 1.50—1.75 metra hátt og kostar 210 krónur. Allra stærstu trén kosta 320 krónur. Furutrén eru einnig mikið keypt. Kosturinn við þau er sá, að þau fella ekki barrið. Trén kosta í venjulegri stærð 270 krónr, en verðið er annas á bilinu 180—420 eftir stærð. Þynur eða eðalgreni er einnig mikið keypt. Þessi tegund fellir ekki barrið og er eftirsótt fyrir þær sakir. Gallinn er hins vegar sá, að eðalgrenið er all- miklu dýrara en fyrrnefndu tegundirnar. Kostar 1.50—1.75 m tré 630 krónur, sem þýðir að það er meira en helmingi dýrara en fura og rauðgreni. Hæstu eðalgrenitrén kosta 890 krónur. Loks er hægt að fá sitkagreni „á rót”, sem kallað er. Tréð'er þá lifandi í potti. Méðalstærð kostar 270 krónur. Jólatrén eru yfirleitt innflutt frá Dannmörku, en þó er einnig hægt að fá íslenzk tré, er flutt hafa verið úr Þjórsárdal, Haukadal og Skorradál. Von er á sendingu af jólatrjám frá Hallormsstað. Margir eru í vafa um hvernig bezt muni að geyma jólatré þessa dagai sem eftir eru til jóla. Lángbezt er að géyma þau á köldum stað, annað hvort úti á svölum eða i bílskúrnum. Sólarhring áður en tréð er sett upp, á að taka það inn. Þá þarf helzt að leggja það í bleyti eða sprauta yfir það. Með því móti getur tréð drukkið i sig raka um leið og það er að þiðna. Þegar það er sett upp, er gott að saga neðan af bolnum. Þá myndast nýtt sár, er auðveldar trénu að sjúga í sig vatn úr fætinum. Fyrstu sólar- hringana þarf svo að athuga vel, að alltaf sé nóg vatn í jólatrésfætinum. Tréð þarf nefnilega heilmikla vökvun, meðan það er að taka hita- breytingunum, sem er fyrstu þrjá sólarhringana eftir að það hefur verið tekið inn. -JSS. 1 1 1 ^ 1 s I 1 Valborg Htia komin iJólakjólinn, sem kostar360krónur. VALBORG LITLA VELUR JÓLAKJÓLINN Vöruúrvalið í verzlunum höfuð- borgarinnar er aldrei fjölbreytt- ara en nú fyrir jól. Börnin sem flest verða stóreygð yfir glæstum leikföngum og öðru sem hugurinn girnist, láta sig dreyma stóra drauma. Sum hver rölta á milli verzlana og verða stóreygðari eftir því sem fleira ber fyrir augun og óskalistinn lengist. Fæstir fá allar sínar óskir og drauma uppfyllta um jólin, en það sakar ekki að láta sig dreyma, ekki kostar það peninga. Tæplega fjögurra ára gömul hnáta, Valborg Karlsdóttir, á sinn óskalista, á honum er jólakjóll. Við vorum henni samferða um daginn er hún fann það sem henni líkaði. Hún valdi kjól i verzluninni Sísi við Frakkastíg, bómullarkjól með beru- stykki og pífum. Svo bíður hún spennt eftir mjúkum pakka á aðfangadagskvöld. -ÞG. í eldhúsinu Heilagfiski með aspargus Til að gefa mönnum nokkra hug- mynd um matreiðslubók Kristínar Gestsdóttur, 220 gómsætir sjávar- réttir, birtum við hér eina uppskrift úr henni. Uppskriftin er valin af jhandahófí. Heilagf iski með aspargus handa 6—8 1 kg heilagfiski safi úr einni sitrónu salt/pipar 1 hálfdós niðursoðinn aspas í bitum (helzt grænn) 20 g smjör til að setja saman við aspassoðið 1/2 tsk. basilíkum (krydd fæst víöa) 2 msk. smjör eða smjörliki 2 msk. hveiti soð af fiskinum + aspassoð 1/2 dlrjómi. 1. Skerið uggana af fiskinum, hellið sjóðandi vatni yfir roðið og skafið vel. 2. Hellið sítrónusafa yfir sneiðarnar, stráið á þær salti og pipar.látiðbiðaí 10—15 mínútur. 3. Smyrjið eldfast fat. Leggið sneiðarnaráfatið. 4. Bræðið smjörið, bætið soðinu af aspasnum og basilíkum út í og hellið yfir sneiðarnar. 5. Setjið lok á fatið eða stingið því inn í steikarpoka og sjóðið í heitum bakarofni (eða mínútugrilli) 1 15—20 mínútur. 6. Bræðið smjör í potti, hrærið hveiti út í það, þynnið með soðinu af fiskinum og búið til uppbakaða sósu. Setjið aspasinn út í sósuna og hitið vel. Hellið síðan sósunni yfir fiskinn. Meðlæti: Soðnar kartöflur, með klipptri steinselju (persille).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.