Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1981, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1981, Síða 20
20 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1981. «■» KRAFTAVERK ÞARF TIL SZ STAÐFESHNGAR JAFN- ***• RÉTTISTILLÖGUNNAR Senan er stofnfundur nýrrar deild- ar innan Sambands bandariskra kvenna (NOW) á einum stærsta há- skóla Kaliforníu. Um þrjátiu daufleg andlit horfa á Ginny Foat, forseta sambandsins í Kaliforniuriki, segja: „Fólk segir að það þurfi kraftaverk til þess að jafnréttistillagan verði staðfest héðan af. En við höfum gert kraftaverk áður.” Þessi orð framkalla lítil viðbrögð meðal fundargesta. Veikt og vonlítið klapp er allt og sumt. „Það er i senn uggvænlegt og gleðilegt að standa á krossgötum sögunnar,” heldur Ginny Foat áfram. Ginny Foat á við 30. júní 1982. Þann dag rennur út fresturinn sem hin einstöku ríki Bandaríkjanna hafa til að staðfesta breytingu á stjórnar- skránni með því að samþykkja tillögu sem kölluð er jafnréttistillagan. Þessi tilaga, sem veldur svo miklu róti í bandarísku þjóðlífi um þessar mundir, var samþykkt af Öldunga- deild Bandaríkjaþings árið 1972. En til þess að hún geti orðið ákvæði í stjórnarskránni þurfa þrjátíu og átta ríki að staðfesta samþykkt þingsins. Aðeins þrjátíu og fimm ríki hafa hins vegar samþykkt tillöguna og stríðið stendur þvi um að finna þrjú ríki til viðbótar fyrir 30. júní 1982. Jafnrétlislillagan er stutt og ofuf meinleysisleg: „Hvorki Bandaríki Norður-Ameríku né einstök ríki þeirra skulu meina neinum aðila jafnrétti fyrir lögunum sakir kynferðis.” En það stendur í mörgum að samþykkja þetta og það er almenn trú að nái jafnréttistillagan ekki fram að ganga í þetta sinn, þá verði engin slík tillaga samþykkt á þessari öld. Þeir sem standa i eldlínunni fyrir jafnréttistillögunni neita því alveg að hún hafi orðið undir. Samband bandarískra kvenna segir að það séu aðcins átta einstaklingar sem komi í veg fyrir staðfestinguna.Orð Elloise Schoettler, formanns Bandalags kvenkjósenda (League of Woman Voters) er dæmigerð: ,,Ég tek ekki möguleikann á að við töpum með í RAKVÉLAR, 2 gerðir. KAFFIVELAR, 2 gerðir. 8-10 bolla, Verð kr. 715. RYKSUGUR, 2 gerðir. 700 wött. Verð kr. 2.100. 850 wött. Verð kr. 2.650. 10-12 bolla, Verð kr. 760. DÓSAHNÍFUR. STRAUJÁRN, m/gufu. Verð kr. 710.- STAUJÁRN. Verð kr. 335. KAFFIKVÖRN QUARTZVEKJARAKLUKKA, HANDÞEYTARAR, Verð kr. 415,- Verð kr. 635.- Verð kr. 280.- fyrir/rafhlöður. Verð kr. 215.- LAGMULA 7 REYKJAVÍK SÍMI 85333 SJÓNVARPSBODIN \ reikninginn. Hann er ekki til fyrir- mér.” En ekki er hægt að neita því að miklu fleiri en átta manns standa í veginum fyrir jafnréttistillögunni. Hún á sér marga haröa andstæðinga bæði í þeim þrem ríkjum sem standa næst því að samþykkja hana svo og út um öll Bandaríkin. Baráttan fyrir jafnréttistillögunni hefur verið nátengd þeim kvenna- hreyfingum sem svo mikið hafa látið að sér kveða á siðustu 10 til 15 árum. En frá sjónarhóli bandarískra húsmæðra hefur dæmið oft litið þannig út að baráttan fyrir kvenréttindum og fjölskyldulíf væru ósættanlegar andstæður sem konur yrðu að velja á milli. Andstæðingar jafnréttistillögunnar og kvenréttinda yfirleitt hafa notfært sér þetta og hefur tekist aö vekja ótta hjá þeim sem annt er um stööu fjölskyldunnar í þjóðfélaginu. Suðurríkjafólki auk húsmæðranna stendur því yfirleitt mestur stuggur af tillögunni. Betty Friedan rithöfundur, sem á mati fjölskyldufólks til þess að öðlast pólitísk völd.” Elizabeth Chittick, formaður Bandaríska kvennaflokksins (National Woman’s Party), tekur undir með Betty Friedan: ,,Ég álít að núna sé jafnréttistillagan undir húsmæðrum komin. Þær eru lind sem við höfum aldrei ausið úr.” Og á þessum sjö mánuðum, sem eftir eru þangað til fresturinn til að staðfesta jafnréttistillöguna rennur út ætla stuðningsmenn hennar að haga áróðri sínum eftir þessu. Elloise Schoettler, sem stjórnar baráttunni af hálfu Bandalags kvenkjósenda, er nýkomin úr fyrirlestraferð um Suður- ríkin. ,,Við töluðum um hve gagnleg jafnréttistillagan væri fyrir fjölskylduna,” segir hún. „Konur vinna af nauðsyn. Sama kaup fyrir sömu vinnu er undirstöðuatriði. Viðurkenning á framlagi hús- móðurinnar er mikilvægt. Ef starf húsmóðurinnar er að engu metið er eins víst að hún hrekist úr þessu Los Angeles séð úr lofti. sínum tíma stofnaði Samband banda- rískra kvenna, hefur um þetta að segja: „Ég var alltaf á móti þessari rangtúlkun að kvennabarátta og fjölskyldulíf væru ósættanlegar and- stæður. Óvinir okkar notfærðu sér þetta til hins ýtrasta og stundum gaf okkar eigin málflutningur tilefnin.” Betty Friedan gerir sér Ijóst hversu takmörkuð sú kvenhreyfing hlýtur að vera sem ekki hefur tekist að ná til húsmæðra, einnar fjölmennustu stéttar kvenna. Hún telur að viðurkenning á þessari staðreynd marki þáttaskil í sögu kvennahreyfingarinnar. Um and- stæðinga jafnréttistillögunnar segir Betty Friedan: „Þeir hafa mistúlkað og misnotað þessa ímynduðu and- stæðu milli feminisma og fjöl- skyldulífs, kynt undir óttann um að fjölskyldan væri í hættu stödd og haldið á lofti viðhorfum og gildis- starfi, sem hana langar að vera í, vegna þess að vinna hennar hefur ekkert gildi.” Það er lítið útlit fyrir að á sjö mánuðum takist að bjarga því sem úrskeiðis hefur farið í margra áratuga kvennabaráttu. En Sonia Johnson, fyrrverandi mormóni, sem sett var út i kuldann af kirkju sinni fyrir aö berjast opinberlega fyrir kven- réttindum, segir: „Ég hef það alltaf hugfast að þetta er klassísk barátta fyrir réttlæti. Réttlætið virðist alltaf vera svo fjarlægt. Réttlætið er alltaf fengið með baráttu. Það er aldrei gefið. Baráttan er aldrei auðveld, til seinasta augnabliks virðist hún töpuð.” En sigrar ekki réttlætið alltaf að lokum? Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir. interRent car rental Bílaleiga Akureyrar Akureyri: Tryggvabr 14-S 21715,23515 Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615, 86915 Mesta úrvalið, besta þjónustan Við útvegum yður afslátt á bílaleigubílum erlendis ^Sólveig Leifsdóttir SQ " hárgreiðslumeistari OV Hárgreiðslustofan Gígja Stigahlíð 45 — SUÐURVERI í, hæð — Sími 34420

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.