Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1981, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1981, Page 33
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1981. 33 Jólasteinn - Vfsnavinir: Hressileg jólalögá smáskífu Nýlega kom út smáskífa með fér lögum úr Vísnavinum, heitir hún Jólasteinn. Á henni eru tvö lög, „Jól”, lag eftir Bergþóru Árnadótt- ur, sem hún jafnframt syngur og „Lítil saga um jólasteininn”, sem Eyjólfur Kristjánsson syngur, textinn er eftir Aðalstein Ásberg Sigurðs- son. Bæði eru lögin falleg og minnir hið síðarnefnda óneitanlega á jólin, þar sem klukknahljómur heyrist. Blokk- flautusóló Gísla Helgasonar fellur þar vel inn í. Þetta sama lag er þekkt undir nafninu „Ég sá mömmu kyssa jólasvein” og er því mjög gaman að heyra nýja útsetningu á því. „Jól” er sérstakt lag, að því Ieyti að það er rólegt að undanskildum 'hressilegum kaflainni í því miðju. Það er frekar hratt sungið og grípur maður þvi ekki textann í fyrstu. Þetta er Ijóð eftir Stein Steinarr. Finnst mér endir á ljóði hans lélegur að kveikja í stofunni og éta sóknarprestinn. Tel ég það vera kost að textar fylgja með plötunni. Vísnavinir mættu gjarnan vinna að stórri jólaplötu. Þessi smáskífa lofar góðu. R.R. EUfærin: Geimsteinn sendirfrá sérnýja ævintýra- plötu — Gylfi Ægisson semur tónlist vid æ vintýri H.C. Andersen Út er komin ný hljómplata úr ævintýraflokknum. Ævintýrið sem nú er tekið fyrir er eftir H.C. Ander- sen í nýrri og frábærri útfærslu. Öll lög og textar eru eftir Gylfa Ægisson en effektar og önnur til- brigði eftir Þóri Baldursson. Margir landsfrægir listamenn koma fram i hinum ýmsu hlutverkum, m.a. Her- mann Gunnarsson, Július Brjánsson, Þórir Baldursson, Ingibjörg Björns- dóttir, Gylfi Ægisson, Rúnar Júlíus- son og fl. Útgefandi er Geimsteinn, en Stein- ar sér um dreifingu. Ernst Bachmann hannaði umslagið. Adam og maurarnir Prince Charming—Adam and the ants: Glysgjarnir maurar Platan Prince Charming er þriðja LP plata hljómsveitarinnar Adam and the ants. Áður hafa komið út plöturnar Dirk wears white sox, ágúst ’79 og Kings of the wild frontier, ágúst ’80. Adam og maurarnir eins og hún er kölluð hér á landi var stofnuð árið 1978. Áður hafði Adam Ant sjálfur eitthvað verið að gaufa einn, en lítið sem ekkert gengið. Jæja, það gekk heldur ekkert með hljómsveitina heldur fyrr en í byrjun PLÖTUR ár» 1980 að Adam hitti Marco nokk- urn Pirroni, fyrrum vin Sid Vicious ög gítarleikara hljómsveitarinnar Souxsie and the Banshees og þá komst sú liðskipan á hljómsveitina eins og hún er í dag, þ.e. Adam Ant, söngur Marco Pirroni, gítar, Kevin Monney, bassi, Merrick, trommur og Terry Lee Miall, trominur. 'PIatan Kings of the wild frontier fékk mjög góðar viðtökur, bæði i Bretlandi sem og annarstaðar og var lengi á vinsældalistum. Tónlistin á þeirri plötu var samansett af ýmsum stefnum, t.d. tónlist Apache indíána í Ameríku og tónlist Zulu-negra í suð- austur Afríku, en eitthvað virðast Clint Eastwood og James Bond, sem þeir Adam og Marco halda mikið upp á, stigið þeim til höfuðs. Áhrif indíána og Zulu-negra eru svo til horfin, en í staðinn komin svona vestra og njósna melódíur og spænsk málmblásturstónlist. Allir textar eru eftir Adam og öll lög eftir Marco, semsagt, þeir eru alráðir. Eins og áður fjalla textar Adams um kynlíf og er það lofað óspart og einnig að líta vel út og vera ekki hræddur við að sýna hvað í hverjum og einum býr og svo textar um hitt og þetta og það venjulega. Heldur finnst mér þeir vera farnir að ganga einum of langt í glysgirninni og tónlist þeirra hreint út sagt leiðinleg og tóm vitleysa, fyrir utan sárafá Iög. Þeir spila tónlist sina ágætlega en eru dá- lítið einkennilegir, það gera án efa trommusettin tvö. Lögin eru: The scopios, Picasso visita el planeta de los simios, Prince Charming (áður út gefin á smáskífu), 5 guns west, That voodoo, Stand and deliver (áður út- gefin á smáskífu), Mile hig club, Ant rap, Mowhok og S.E.X. Svo er eitt aukalag sem er nýútsetning á lag- inu Los rancheros sem var á plötunni Kings of the wild frontier, en á því má sjá að þeir eru eitthvað að dandal- ast íHawai-tónlist. Prince Charming er plata sem er al- veg óhætt að sleppa, það eru fleiri helmingi betri í verzlunum núna t.d. stórgóðar nýjar islenzkar plötur. TOUtmn«ottror,1m \i\jWitWtn iWÚ Þið fáið jólagjöf veiði mannsins hjá okkur A\ m rT'rtnvm*.' Dafwa MITCHELL Grensásvegi 50 — 108 Reykjavík — Sími 31290 Miðvangi 41 — Hafnarfirði — Sími 52004 - mm I®.. . i m I I_________ ® I . 1| 1 Já gæöin sem þau háfa Sharp myndsegulböndin eru alveg meö eindæmum. Tökum til dæmis þetta tæki Sharp Video 8300 sem hefur hvorki meira né minna en 7 daga minni, myndleitara þar sem spójaö ér á tí- |j földum hraöa, og svo ótal marga fleiri hluti. .. IIIIIIIX □ 0 ö □□ □□□□□□□

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.