Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1982, Qupperneq 2
22
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 22. MARZ 1982.
ÚTBOÐ
Hitaveita Rangæinga óskar eftir tilboðum í lagningu 1.
áfanga aðveituæðar.
1. áfangi aðveituæðar er 250 mm víð asbestpípa, sem
liggur milli Laugalands í Holtum og Hellu um 10,7 km
vegalengd.
Útboðsgögn verða afhent gegn 1000 kr. skilatryggingu á
eftirtöldum stöðum:
Hvolsvelli: Skrifstofu Hvolshrepps.
Hellu: Skrifstofu Rangárvallahrepps.
Reykjavík: Verkfræðiskrifstofunni Fjarhitun hf. Borgar-
túni 17.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Rangárvallahrepps,
Laufskálum 2, Hellu, miðvikudaginn 14. apríl 1982 kl.
14.00.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verður
haldinn að Hótel Esju mánudaginn 29. marz 1982 kl.
20.30.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Vcrzlunarmannafclag Rcykjavíkur
VERKFRÆÐINGAR
TÆKNIFRÆÐINGAR
Rafmagnsveita Reykjavíkur vill ráða raforku-verkfræðing
eða tæknifræðing til starfa við áætlanagerð fyrir raforku-
virki.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá starfs-
mannastjóra, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu. Umsóknar-
frestur er til 2. apríl 1982.
RAFMAGIMSVEITA
REYKJAVÍKUR
Kaupmenn — kaupfélög
sadoloss
Trélím, 5 tcgundir
Kontaktlím, 8 tcgundir
Nco-mastic Z þiljugrip.
Límapótck fyrir heimiliö.
Óf^Asaeirsson
Hcildvcrzlun Sundaborg 37.
Símar 39320 og 39355.
íþrótt
íþróttir
íþrótt
21 mark — markamet
Alfreðs í 1. deild!
—og hann varð einnig markakóngur í deildinni 1982
með 109 mörk
Alfreð Gislason, KR, setti nýtt
markamet I 1. deildarkeppninni i hand-
knattleik, þegar hann skoraði 21 mark
gegn KA i leik KR og KA i Laugardals-
höll í föstudag. Eldra metið átti
Ingólfur Óskarsson, sem skoraði 20
mörk í leik Fram og ÍR 1963. Það var í
gamla Hálogalandsbragganum, miklu
minni sal en i Laugardalshöll, svo þar
var léttara að skora.
Fjögur af mörkum Alfreðs á
föstudag voru skoruð úr vítaköstum.
Hann fór heldur rólega af stað í
leiknum. Hafði aðeins skorað þrjú
mörk, þegar 20 mínútur voru af leik,
eða þriðjungur leiktímans liðinn. En þá
skoraði hann fimm mörk í röð — fimm
síðustu mörk KR í fyrri hálfleiknum.
Var því kominn með átta mörk eftir
fyrri hálfleikinn.
Hann bætti hins vegar ekki við
nema þremur mörkum fyrstu 10 mín. í
síöari hálfleik. Þá kominn með ellefu
mörk. öruggur KR-sigur var þá í höfn,
staðan 19—12, og eftir það léku KR-
ingar upp á að Alfreð skoraði. Gerðu
allt til þess að mörk hans yrðu sem
flest. Stönzuðu meira að segja i
hraðaupphlaupum til að gefa knöttinn
á Alfreð. Síðustu mínúturnar lét
Jóhann Ingi Gunnarsson Alfreð vera
frammi á vellinum. Þurfti ekki að taka
þátt í vörninni. Svipað og Þróttarar
gerðu í fyrra, þegar Sigurður Sveinsson
skoraði 16 mörk í síðasta leik Islands-
mótsins gegn Val. Setti þá markamet í
1. deild samanlagt, 135 mörk.
Mikil spenna á föstudag hve mörk
Alfreðs Gislasonar yrðu mörg.
Raunverulega allir spenntari en Alfreð
því þessi hlédrægi, greindi piltur var á
köflum bókstaflega feiminnsið hvað
athyglin beindist að honum. En hann
skoraði og skoraði. lOaf síðustu 13
mörkum KR. Markametið var í höfn,
allar líkur á eftir leikinn að Alfreð yrði
markakóngur mótsins, sem síðar kom á
daginn, og stórsigur KR-inga var líka
staðreynd, 33—20.
Samtals skoraði Alfreð 109 mörk i
14 leikjum KR á íslandsmótinu. 28
þeirra úr vitaköstum. Hann er því
markakóngur árið 1982. Næstur var
Kristján Arason. FH, með 97 mörk. 49
Markakóngar f rá 1967
1967— Jón Hjaltalín Magnússon, Víkingi..............61
1968— Jón Hjaltalín Magnússon, Víkingi...............75
1969— Vilhjálmur Sigurgeirsson, ÍR...................69
1970— Geir Hallsteinsson, FH.........................68
1971— Geir Hallsteinsson, FH........................61
1972— Geir Hallsteinsson, FH....................... 86
1973— Einar Magnússon, Víkingi......................100
1974— Axel Axelsson, Fram...........................106
1975— Hörður Sigmarsson, Haukum.....................125
1976— Friðrik Friðriksson, Þrótti....................86
1977— Hörður Sigmarsson, Haukum....................111
1978— Björn Jóhannsson, Ármanni......................86
1979— Geir Hallstreinsson, FH........................96
1980— Kristján Arason, FH............................86
1981— Sigurður Sveinsson, Þrótti....................135
1982— Alfreð Gíslason, KR...........................109
Rétt er að geta þess að fyrstu árin léku aðeins sex
færri. Núleikaáttaliðí l.deild.
ð í deildinni og leikir því
-hsím.
þeirra skoruð úr vítaköstum og í þriðja
sæti var markakóngurinn frá í fyrra,
Sigurður Sveinsson, Þrótti, með 91
mark. 18 úr vítaköstum.
Markakóngar
Eftirfarandi leikmenn hafa orðið
markakóngar í 1. deildarkeppnnni frá
því byrjað var að leika í Laugardals-
höllinni.
• Alfreð Gislason — markaskorarinn
mikH.
Verður Karl Ben.
þjálfari Fram?
— Björgvin Björgvinsson mun
hætta þjálfun liðsins
• Kari Benediktsson.
— Ég mun Ijúka mínu verkefni með
Fram og leika með i bikarkeppninni.
Eftlr það hef ég ákveðið að taka mér
hvild frá 1. deildarhandknattleik, sagði
Björgvin Björgvinsson, þjálfari
Framliðsins.
Hver verður eftirmaður Björgvins
hjá Fram? Þær sögusagnir hafa gengið
að stjórn Fram hafi hug á að fá danska
þjálfarann Bent Nygaard sem hefur
þjálfað ÍR-liðið undanfarin tvö ár.
Leikmenn Fram-liðsins vilja aftur á
móti að Karl Benediktsson verði þjálf-
ari liðsins næsta keppnistímabil og
leggja þeir mikla áherzlu á það.
-sos.
Njarðvíkingar sýndu
hverjir erubeztir...
— er þeir unnu KR 104:100
íslandsmeistarar Njarðvikur í
körfuknattleik, sýndu og sönnuðu
hverjir eru meistarar, þegar þeir lögðu
KR-inga að velli 104—100 í fjörugum
og skemmtilegum leik i úrvalsdeildinni
i Njarðvík á föstudagskvöldið.
Njarðvíkingar gáfu ekkert eftir,
þótt að meisaratitillinn hafi verið
kominn i höfn. Það var Danny Shouse
sem skoraði flest stig fyrir þá 31, en
Gunnar Þorvarðarson skoraði 18 stig
og Valur Ingimundarson 15 stig. Stu
Johnson var beztgur hjá KR-ingum —
skorað 40 stig, en Jón Sigurðsson 22
stig.
Lokastaðan
Lokastaðan varð þessi i úrvalsdeild-
arkeppninni i körfuknattleik eftir lciki
helgarinnar:
Njarðvik—KR 104:100
Fram—Valur 98—89
Njarðvík 20 16 4 1777:1595 32
Fram 20 14 6 1712:1557 28
Valur 20 12 8 1703:1655 24
KR 20 11 9 1625:1690 22
ÍR 20 6 14 1580:1709 12
ÍS 20 1 19 1638:1769 2