Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1982, Side 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982.
23
Hvað er á seyði um helgina
Hvað er á seyði um helgina
Textílsýning helgarinnar—Kjarvalsstöðum:
Textflverk sem öll
eru unnin í Skotlandi
Um þessar mundir stendur yfir á
Kjarvalsstöðum sýning á textílverk-
um Huldu Sigurðardóttur. Alls eru
46 verk á sýningunni en þau eru flest
V, f.
unnin í Skotlandi, þar sem Hulda
hefur búið undanfarin átta ár.
Hulda Sigurðardóttir hóf nám í
Greenfaulds High School í
Cumbernauld í Skotlandi árið 1974 í
listadeild, sem er sú stærsta þar í
landi. Þaðan útskrifaðist hún árið
1974. Það sama ár hóf hún nám í
Duncan of Jordanstone College of
Art.
Eftir eitt ár þar í almennu listnámi
kaus hún „Printed Textile” sem
aðalgrein og listprjón sem aukagrein.
Hulda Sigurðardóttir útskrifaðist úr
Bachelor of Art Honours Degree í
júni 1981.
Að eigin sögn hefur hún lítið feng-
ist við textíl og teiknun frá því hún
kom heim en hyggur á frekari vinnslu
nú eftir að sýningunni á Kjarvals-
stöðum lýkur.
Fyrri sýningar Huldu hafa allar
verið í Skotlandi en hún mun þegar
hafa ákveðið fleiri einkasýningar hér
heima. Sýningunni lýkur á sunnudag.
-ELA
Hulda Sigurðardóttir heldur sfna fyrstu einkasýningu um þessar mundir hér á
landi. DV-myndS.
Tilkynningar
Svölukaffi
í Súlnasalnum 1. maí
Eins og undanfarin ár efna Svölurnar, félag fyrrver-
andi og núverandi flugfreyja, til kaffisölu í Súlnasal
Hótel Sögu 1. mai.
Er þetta gert til aö efla fjárhag félagsins en einn
megintilgangur þess er að vinna að hvers konar
mannúðarmálum. Á þessu starfsári veittu Svölurnar
6 styrki til framhaldsnáms í ýmsum sérgreinum i
Bandaríkjunum og á Norðurlöndum, samtals aö
upphæð kr. 40 þúsund og gáfu tæki á þrjú sjúkrahús
i Reykjavik.
Auk kaffisölunnar i Súlnasalnum, fer fram tizku-
sýning á fatnaöi frá verzlununum Urði, Silfurskini
og Pelsinum. Að vanda verður skyndihappadrætti,
vinningar eru hinir glæsilegustu m.a. nokkrir ferða-
vinningar.
Súlnasalurinn verður opnaður kl. 14.00. Tízku-
sýningar fara fram kl. 2.30 og 3.30. Svölurnar
vonast til að sem flestir komi og njóti þeirra
kræsinga sem á borðum verða þ.e.a.s. heima-
bakaöar kökur og smurt brauð, um leið og þeir
styrkja gott málefni.
„Reagan gœs"
Hljómsveitirnar ,,Jói á hakanum” og „ólafur
ósýnilegi” munu halda tónleika n k. laugardag, 1.
mai. i Djúpinu.
Kaffisala —
hlutavelta
Kvennadeild Skagfirðingafélagsins i Reykjavík
verður meö sitt árlega veizlukaffi og hlutaveltu í
Lindarbæ laugardaginn 1. maí nk. kl. 14. Þar verður
margt gómsætt á veizluborðjnu og eigulegir munir á
hlutaveltunni. Engin núll.
Ágóðinn rennur til liknarmála, annað hvort hér á
höfuðborgarsvæðinu eða heima i héraði, eftir þvi
sem getan leyfir.
Félagskonur vænta þess aö allir velunnarar deild-
arinnar og aðrir, sem áhuga hafa á málefninu, leggi
leiö sina i Lindarbæ 1. mai.
Söngskemmtun f
Mosfellssveit
Karlakórinn Stefnir í Mosfellssveit heldur söng-
skemmtun næstkomandi laugardag 1. mai kl. 17 í
Samkomuhúsinu i Vestmannaeyjum.
Einsöngvarar með kórnum eru: ólafur Magnús-
son frá Mosfelli og Sveinbjörn Einarsson á Heiðar-
- bæ. Undirleikari er Bjarni Snæbjörn Jónsson
sveitarstjóri. Söngstjóri er Lárus Sveinsson trompet-
lcikari. Söngskráin er fjölbreytt og meðal annars eru
flutt lög og ljóð eftir kunna Vestmanneyinga.
Siðar sama kvöld heldur kórinn skemmtun i sam-
komuhúsinu og hefst hún kl. 22.
Leiklist
Alþýðuleikhúsiö:
Siðustu sýningar á Don Kikóti
Nú eru aö verða siðustu forvöð að sjá sýningu
Alþýöuleikhúsins á Don Kikóti, næsta sýning verður
á laugardaginn kl. 20.30. leikarar cru: Arnar
Jónsson, Bjami Ingvarsson Borgar Garöarsson,
Eggert Þorleifsson, Guömundur ólafsson, Helga
Jónsdóttir og Sif Ragnhildardóttir. Leikstjóri er
Þórhildur Þorleifsdóttir.
Þjóöleikhúsiö
um helgina
Mcyjaskemman var frumsýnd um síðustu helgi og
hefur verið uppselt á sýningar til þessa. Einnig er
uppselt í kvöld og næsta sýning á söngleiknum
verður á sunnudagskvöldið.
Gosi verður tvisvar á feröinni nú um helgina og er
sýningum aö Ijúka. Sýning er í dag kl. 14 og á sunnu-
daginn kl. 14. Sýningin á sunnudag er næstsiöasta
sýningin á verkinu, en rúmlega sextán þúsund áhorf-
endur hafa séð Gosa til þessa.
Amadeus eftir Peter Shaffer verður á fjölunum á
laugardagskvöld og er fólki be>.t á að sýningum á
þessu leikriti fer nú fækkandi.
Uppgjörið eftir Gunnar Gunnarsson verður sýnt í
allra síðasta skipti nú á sunnudagskvöld. Búið er að
sýna verkið 70 sinnum á vinnustöðum og i skólum
og nokkrum sinnum á Litla sviðinu. Sýningar geta
ekki orðiö fleiri vegna þess að Guömundur
Magnússon er á förum til útianda, en sem kunnugt
er leika þau Edda Þórarinsdóttir og Guðmundur
hlutverkin i sýningunni. Sýningin hefst á Litla
sviðinu kl. 20.30.
Síðustu sýningar
áGosa
Nú er hver að verða síðastur að sjá Gosa í Þjóðleik-
húsinu, en einungis þrjár sýningar eru eftir á því vin-
sæla barnaleikriti. Næsta sýning verður i kvöld 30.
apríl, kl. 14, og næstsíðasta sýningin verður sunnu-
daginn 2. mai kl. 14 og siðasta sýningin verður
sunnudaginn 9. maí, einnig kl. 14.
Leikritið um Gosa samdi Brynja Benediktsdóttir
upp úr gömlu itölsku sögunni eftir Collodi og var
það frumsýnt milll jóla og nýárs. Rúmlega sextán
þúsund áhorfendur hafa nú séð sýninguna. Brynja
er einnig leikstjóri, leikmynd og búninga gerði Birgir
Engilberts, lýsinguna annast Ásmundur Karlsson,
tónlistin er eftir Sigurð Rúnar Jónsson, söngtextar
eftir Þórarin Eldjárn en dansar eftir Ingibjörgu
Biörnsdóttur.
Svo sem kunnugt er leikur Arni Tryggvason Láka
leikfangasmiö, föður Gosa, Ámi Blandon leikur
Gosa sjálfan og Siguröur Sigurjónsson lcikur
Flökkujóa, samvizku Gosa. Ennfremur eru í stórum
hlutverkum þau Margrét Ákadóttir, Anna Kristtn
Arngrímsdóttir, Hákon Waage og Flosi ólafsson.
Sýningum 6 KISULEIK
að Ijúka í
Þjóðleikhúsinu
Ungverska leikritið Kisuleikur hefur verið sýnt á
Litla sviði Þjóðleikhússins síðan í byrjun janúar við
afbragðs undirtektir, en nú er sýningum á verkinu að
ljúka. Síðasta sýningin, sem jafnframt er 30. sýning
leiksins, verður þriðjudaginn 4. mai nk.
Kisuleikur er eitt af frægustu verkum István
Kvennadeild Borg-
firöingafólagsins
með kaffisölu
Á laugardaginn 1. maí nk. verður verður Kvenna-
deild Borgfirðingafélagsins með sina árlegu kaffi-
sölu og skyndihappdrætti í Domus Medica. Húsið
verður opnað klukkan 2.30.
Kvennadeildin hefur starfað i 18 ár og reynt eftir
beztu getu aö vinna að liknar- og menningarmálum.
Á síðasta ári fór verulegur hluti af ágóða kaffi-
sölunnar til sundlaugarsjóös sjúkrahúss Akraness.
Dansleikur til styrktar
Alþýðuleikhúsinu
Laugardaginn 1. maí verður dansleikur til styrktar
Alþýðuleikhúsinu haldinn i Félagsstofnun stúdenta
Grý’.umar leika fyrir dansi frá kl. 22. skemmtiatriði,
peysufatakór kvennaframboðsins syngur og fieira.
Aldurstakmark er 18 ár.
Húnvetningafólagið
í Reykjavik
Föstudaginn 30. april heldur Húnvetningafélagið í
Reykjavík sinn árlega sumarfagnað i Domus Medica
kl. 20.30.
Aðalfundur
Laugarnessóknar
verður haldinn i Laugarneskirkju sunnudaginn 2.
mai kl. 15.00aðlokinniguðsþjónustu.
Plata vikunnar—Almannarómur:
Verkalýðssamtökin
gefa út hljómplötu
Menningar- og fræðslusamband
alþýðu hefur ráðizt i að gefa út
hljómplötu með söngflokknum Hálft
í hvoru, en hópinn skipa Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson, Bergþóra Árna-
dóttir, Gísli Helgason, Eyjólfur
Kristjánsson, Ingi Gunnar Jóhanns-
son og örvar Aðalsteinsson. Nefnist
platan Almannarómur og inniheldur
13 lög, bæði innlend og erlend.
Meðal erlendra höfunda eru Victor
Jara, Barbara Helsingius og Joe Hill.
íslenzkir höfundar laga og ljóða eru
auk þeirra sem eru í söngflokknum
Ásgeir Ingvarsson, Einar Bragi, Jón
úr Vör, Ólöf Sverrisdóttir, Steinn
Steinarr ög Óli í Nýborg.
Þetta er í fyrsta sinn sem verka-
lýðssamtökin ráðast I útgáfu á hljóm-
plötu en þess er að vænta að fram-
hald verði á sliku, ekki sízt ef mót-
tökur verða góðar. Dreifingu annast
Fálkinn hf.
Söngflokkurinn Hálft í hvoru
hefur á liðnum vetri og siðastliðið
sumar komið fram á fjölmörgum
vinnustöðum víða um land á vegum
MFA og verkalýðsfélaganna á
hverjum stað. Slíkar heimsóknir hafa
þótt takast vel og nú gefst þeim sem sóknum tækifæri til að heyra í söng-
þekkja hópinn frá slíkum heim- flokknum á hljómplötu. -HK.
Söngflokkurlnn Hilft i hvoru.
Tónleikar helgarinnar—Siglufirði, Sauðárkróki og í Borgarnesi:
Mezzoforte og Jóhann Helgasoní heimsókn
Hljómsveitin Mezzoforte, sem
getið hefur sér gott orð að undan-
förnu, heldur í tónleikaför um helg-
ina ásamt söngvaranum Jóhanni
Helgasyni. Ferðinni er heitið um
Norður og Vesturlandi og eru þetta
fyrstu tónleikar Mezzoforte utan
Stór-Reykjavíkursvæðisins á þessu
ári.
Fyrstu tónleikarnir verða í kvöld í
samkomuhúsinu á Siglufirði. Annað
kvöld verða þeir í samkomuhúsinu
Bifröst á Sauðárkróki en á sunnudag
verða síðustu tónleikarnir í Borgar-
nesi. Verða tónleikarnir þar kl. 17.00
í samkomuhúsinu.
Væntanlega verður beðið með
eftirvæntingu eftir þessum köppum
um helgina og má geta þess að á
næstunni verður farið í enn fleiri
byggðarlög.
Eins og kunnugt er var Jóhann
Helgason maöur Stjörnumessu DV
sem fram fór í marz, fékk verðlaun
sem bezti söngvari, lagahöfundur og
átti beztu hljómplötuna. Hljómsveit-1
in Mezzoforte var kjörin hljómsveit
ársins auk þess sem hún var Stjörnu-
band Messunnar í annað skipti. Þótti
hún standa sig með afbrigðum vel,
enda hljómsveitin vel æfð eftir ferða-
lög erlendis undanfarna mánuöi.
-ELA
H
Jóhann Helgason og Mezzoforte
hcimsækja landsbyggðina um
helgina. Þessi mynd var tekin af
hljómsveitinni og Jóhanni á
Stjornumes.su DV ’82.
DV-mynd Ragnar Th.