Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1982, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1982, Blaðsíða 6
26 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982. Hvað er á seyði um helgina Hvað er á seyði um helgina Rokkað á eyrinni Tónlcikar verða haldnir í Alþýðuhúsinu á ísafirði í kvöld kl. 21. Stjarna kvöldsins verður isfirzka hljómsveitin Allshcrjarfrík og mun hún eingöngu flytja frumsamið efni. Að auki munu væntanlega 2 til 3 aðrar grúppur spila, skipaðar innfæddum. Er fólk eindregið hvatt til að mæta á þennan einstaka menningarviöburö. Skemmtanir Skemmtistaðir SIGTÚN: Opið föstudags- og laugardagskvöld, bingó, spilaö á laugardag klukkan 14. Broadway: Föstudags. laugardags- og og sunnudagskvöld. Eldgleypararnir Silvía og Strmelli koma og gleypa smá-eld einnig kemur Jack Steal- vasaþjófur í heimsókn og okkar vinsælu Þorgeir og Magnús. Sunnudagur: Fjölskylduskemmtun frá kl. 15.—17. Bingó og skemmtikraftar. HOLLYWOOD: Dynjandi diskó alla helgina. GLÆSIBÆR: Grétar Laufdal verður í diskótekinu um helgina frá klukkan 10—03, það er diskósalur 74”, tónlistin úr safni feröadiskóteksins. Grétar býður alla velkomna og óskar gestum góörar skemmtunar. Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi í öörum sal hússins öll kvöld helgarinnar. ÞÓRSCAFÉ: Kabarettinn kætir alla. Galdrakarlar leika sin beztu lög, diskótek á neðri hæð, opiö öll kvöld helgarinnar. LINDARBÆR: Laugardagskvöld, gömlu dansarnir. Valgerður Þórisdóttir syngur undir leik hljómsveit- ar Rúts Kr. Hannessonar. ÓÐAL: Opið öll kvöld helgarinnar, Fanney og Dóri skiptast á að snúa plötunum við. SNEKKJAN: Dansbandið leikur föstudags- og laug- ardagskvöld. Matsölustaðurinn Skútan opin sömu kvöld. HÓTEL BORG: Diskótekið Disa sér um diskósnún- inga bæöi föstudags- og laugardagskvöld. Sunnu- dagskvöld veröur hljómsveit Jóns Sigurðssonar með tónlist af vönduðu tagi sem hæfir gömlu dönsunum. HREYFILSHÚSIÐ: Opið laugardagskvöld, gömlu dansarnir. LEIKHÚSKJALLARINN: Föstudags- og laugar- dagskvöld — „kjallarakvöld” skemmtiþáttur 1 og2 i kjallaranum „dúa”. HÓTEL SAGA: Hljómsveit Ragga Bjarna sér um fjöriö á laugardagskvöldið. jmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm Matsölustaðir REYKJAVÍK ASKUR, Laugavegi 28 B. Símar 18385 og 29355: Opið kl. 9—24 alla daga. Vínveitingar frá kl. 18 virka daga og allan daginn á sunnudögum. ASKUR, Suðurlandsbraut 14. Simi 81344: Opið kl. 11—23.30. TORFAN Amtmannsstíg, sími 13303: Oplö alla daga vikunnar frá klukkan 10.00—23.30. Vínveit- ingar. KOKKHÚSIÐ Lækjargötu 8, sími 10340: Opið alla daga vikunnar frá klukkan 9.00—21 nema sunnu- daga er opið frá klukkan 10.00—21.00. TOMMABORGARAR Grensásvegi 7, sími 84405: Opið alla daga frá klukkan 11.00—23.00. SVARTA PANNAN á horninu á Tryggvagötu og Pósthússtrætis, sími 16480: Opið alla daga frá klukkan 11.00—23.30. GOSBRUNNURINN Laugavegi 116, sími 10312. Opið virka daga frá klukkan 8.00—21.00 og sunnu- daga frá klukkan 9.00—21.00. ASKUR, næturþjónusta, sími 71355: Opið á föstu- dags- og laugardagsnóttum til klukkan 5.00, sent heim. WINNIS, Laugavegi 116, sími 25171: Opiðalladaga vikunnar frá klukkan 11.30—23.30. LÆKJARBREKKA við Bankastræti 2, simi 14430: ' Opið alla daga frá klukkan 8.30—23.30 nema sunnudaga, þá er opið frá klukkan 10.00—23.30. Vínveitingar. ARNARHÓLL, Hverfisgötu 8—10, sími 18833: Opið alla virka daga í hádeginu frá klukkan 12.00— 15.00 og alla daga frá kl. 18.00—23.30. Á föstudags og laugardagskvöldum leika Magnús Kjartansson og Finnbogi Kjartansson í Koníakklúbbnum, vinveit- ingar. MENSA, veitingastofa Lækjargötu 2, 2. hæð, sími 11730: Opiö alla daga nema sunnudaga frá klukkan 10.00—19.00 og sunnudaga frá klukkan 14.00— 18.00. POTTURINN OG PANNAN, Brautarholti 22: Opið frá 8.00—23.30. RÁN, Skólavörðustíg 12, sími 10848: Opið klukkan 11.30—23.30, léttar vínveitingar. BRAUÐBÆR Þórsgötu 1, við Óðinstorg. Sími 25090: 0pið kl. 9—23.30 virka daga og 10—23.30 á sunnudögum. ESJUBERG, Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2. Sími 82200: Opið kl. 7—22. Vínveitingar. HOLLYWOOD, Ármúla 5. Borðapantanir í sima 83715. Matur framreiddur kl. 21—23 öll kvöld vik- unnar. Vínveitingar. HORNIÐ, Hafnarstræti 16. Sími 13340: Opið kl. 11-23.30. HÓTEL HOLT, Bergstaðastræti 37. Boröapantanir i síma 21011. Opið kl. 12—14.30 og 19—23.30. Vínveitingar. HÓTEL LOFTLEIÐIR, Reykjavíkurnugvelli, Borðapantanir í síma 22321: Blómasalur er opinn kl. 8—9.30. (morgunmatur), 12—14.30 og 19—22.30. Vinveitingar. Borðapantanir í Súlnasal í síma 20221. Matur er framreiddur föstudaga og laugardaga kl. 19—21. Vínveitingar. KAFFIVAGNINN, Grandagarði 10. Símar 12509 og 15932. Opið kl. 4 eftir miðnætti til kl. 23.30. Vínveitingar. KRÁIN við Hlemmtorg. Sími 24631. Opið alla daga kl. 9—22. LAUGAÁS, Laugarásvegi 1. Sími 31620. Opið 8— 24. NAUST, Vesturgötu 6—8: Boröapantanir í síma 17759. Opið alla daga kl. 11—23.30. NESSÝ, Austurstræti 22. Sími 11340. Opið kl. 11— 23.30 alla daga. ÓÐAL við Austurvöll. Boröapantanir i síma 11322. Matur framreiddur kl. 21—01 sunnudaga til fimmtudaga, kl. 21—03 föstudaga og laugardaga. ÞÓRSCAFE, Brautarholti 20. Borðapantanir í síma 23333. Matur framreiddur föstudaga og laugardaga kl. 20—22. Vínveitingar. AKUREYRI BAUTINN og SMIÐJAN, Hafnarstræti 22. Sími 96-21818. Baútinn er opinn alla daga kl. 9.30— 21.30. Smiðjan er opin mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 18.30—21.30. Föstudaga, laugar- daga og sunnudaga kl. 11.30—14 og 18.30—21.30. Vínveitingar., HÓTEL KEA, Hafnarstræti 87—89. Sími %— 22200. Opið kl. 19—23.30, matur framreiddur til kl. 21.45. Vínveitingar. HAFNARFJÓRÐUR GAFL-INN, Dalshrauni 13. Sími 54424. Opið alla daga kl. 8—23.30. Sunnudaga kl. 17—21 er opinn veizlusalur með heita og kalda rétti og vinveitingar. SNEKKJAN og SKÚTAN, Strandgötu 1—3. Borða- pantanir í sima 52502. Skútan er opin 9—21 sunnu- daga til fimmtudaga og 9—22 föstudaga og laugar- daga. Matur er framreiddur í Snekkjunni á laugar- dögum kl. 21—22.30. AKRANES STILLHOLT, Stillholti 2. Sími 93-2778. Opið kl. 9.30—21 virka daga og 9.30—22 Iaugardaga og sunnudaga. Léttar vinveitingar eftir kl. 18. Þráinn Karlsson, Theódór Júliusson, Marinó Þorsteinsson og Jónsteinn AOalsteÍnsson f hlutverkum sfnum. Frumsýningarskrekkur meðal leikara á Akureyrí í dag: Ég verö oröinn fárveikur á hádegi” —segir Þráinn Karlsson leikari, sem leikur borgarstjórann í f rumsýningu LA á Eftirlitsmanninum í kvöld „Viö köllum þetta farsa, enda er Eftirlitsmaðurinn léttur gamanleikur þótt undirtóninn sé ádeilukenndur,” sagði Þráinn Karlsson, leikari hjá Leikfélagi Akureyrar, í stuttu spjalli við DV. Tilefni spjallsins var frum- sýning Leikfélags Akureyrar á Eftir- litsmanni Go Gols í Samkomuhúsinu í kvöld. Eftirlitsmaðurinn var saminn 1836 og um leikritið hafa verið skrifaðar margar bækur,” hélt Þráinn áfram. „Þjóðleikhúsið hefur sýnt þetta verk og það hefur áður sézt á fjölunum hér á Akureyri, því Leikfélag Menntaskólans tók það fyrir á sínum tíma. Þá lék Pétur Einarsson eftirlits- manninn.” — Er uppsetning ykkar hefðbund- in útfærsla á Eftirlitsmanninum? „Nei, það má segja að hér sé á ferðinni ný leikgerð. Verkið hefur verið stytt talsvert og Jón Hjartarson leikari hefur skrifað við það forleik og millikafla. Forleikurinn hefst með því að höfundur og leikhússtjóri í fjárvana leikhúsi hittast á sviðinu. Þeir hefja síðan smíði verksins og auðvitað verður leikhússtjóri í fjár- vana leikhúsi að leita eftir ódýrustu úrlausnunum varðandi leikmynd og leikhljóð, svo eitthvað sé nefnt. Þeir félagar eru síðan rauður þráður i sýn- ingunni.” Þráinn Karlsson leikur borgar- stjórann i eftirlitsmanninum. „Karl- rembusvín sem skríður eins og hund- ur fyrir eftirlitsmanni stjórnarinnar en ég kann bara nokkuð vel við karl- inn,” sagði Þráinn um þá persónu. Þráinn hefur ekki leikið með Leikfé- lagi Akureyrar síðan hann túlkaði Matta í Puntila og Matta 1980. Síðan lá leið hans til Þjóðleikhússins og Alþýðuleikhússins og loks smíða- stofuna. Smíðastofu, hvaða? „Smíðastofuna hjá Leikfélagi Akureyrar; hún er í einu herbergi undir leiksviðinu,” svaraði Þráinn. „Ég sá það í haust, þegar ég kom aft- ur til starfa hjá félaginu, að kraftar mínir kæmu til með að nýtasl bezt við leikmyndasmíði og við það hef ég verið í vetur. Ég hef kunnað alveg skellandi vel við mig þarna niðri. Ég nýt þess að nostra við leikmyndirnar. Ég hef ekki fundið fyrir neinni tiltak- anlegri þrá til þess að komast upp á fjalirnar, en kann samt bara gizka vel við mig í Eftirlitsmanninum.” — Nú er frumsýning í kvöld, ert þú laus við skrekk? „Nei, nei, ert þú frá þér, ég losna aldrei við frumsýningarskrekkinn. Ég er orðinn fárveikur um hádegi, en siðan lagast þetta smátt og smátt eftir að sýningin er hafin. Það fer eftir andrúmsloftinu meðal samleikaranna og í salnum hversu fljótt skrekkurinn hverfur. Það er því bezt fyrir alla aðila að stemmningin sé sem bezt,” sagði Þráinn. önnur sýning á Eftirlitsmanninum verður á sunnudagskvöldið en síðan verða þrjár sýningar um næstu helgi. „Við ætlum að hraða sýningum eins og hægt er, þannig að Akureyringar geti skemmt sér ærlega áður en þeir hefjast handa í kartöflugörðunum,” sagði Þráinn í lok samtalsins. Guðrún Ásmundsdóttir og Ásdís Skúladóttir leikstýra Eftirlitsmannin- um. Leikmyndin er eftir IvanTörök. GS/Akureyri Málverkasýning helgarínnar—Tryggvi Ólafsson: „Eg er ekki í gáfumannafélaginu...” Tryggvi Ólafsson er fæddur á Norðfirði.en hefur búið síðustu 20 ár- in i Kaupmannahöfn miðri, fáein skref frá aðaljárnbrautarstöðinni. Á sýningu hans sem verður opnuð á morgun, 1. mai, í Listmunahúsinu er ekkert sem minnir á Höfn, en margt sem virðist sótt í íslenzk sjávarpláss. Myndir Tryggva eru „fígura- tívar”, þ.e.a.s. greinilega má sjá af hverju þær eru. Hann blandar hins- vegar saman hugmyndum viðs vegar að, úr nútíð og fortíð og hver mynd hefur sinn grunntón, oft skærrauðan eða bláan. „Þetta er uppáhaldsmyndin mín,” segir hann og bendir á mynd þar sem er fiskur, fugl, kona, barn (og mig minnir hluti af árabát). „Þetta er líf- ið.” Dýr eru algeng í myndunum, einn- ig sprengjuflugvélar, gamlar styttur í grískum stil, sviplaus mannfigúra, konur og Kristslíkneski. „Danskir gagnrýnendur hafa bent á að samspilið milli manneskjunnar og náttúrunnar, ennfremur fint háð um nútímalíf, sé áberandi í myndum Tryggva. » Tryggvi Ólafsson við eina af mynd- um sinum. Hún er hans upplifun á þeim heimi sem við lifum i en ekki vildi hann viðurkenna að hún væri lýsing á bæjariifinu á Noröfiröi. „Ég er hvorki spámaður né í gáfu- mannafélaginu,” segir Tryggvi. „Mér leiðist allar skilgreiningar og tölvurökfræði. Að komast til tungls- ins er tækni, en ég hef engan áhuga fyrir henni. Ég leysi málin á einfaldan hátt með litum sem höfða til tilfinn- inganna.” „Það er áberandi mikið af konum og Kristmyndum hjá þér,” segir nær- staddur málari, sem er að hjálpa Tryggva að hengja upp. „Ertu að fara yfir í erótíkina og trúna?” og bætir við: „sem kannski er það sama.” Tryggvi hristir höfuðið: „Ég er ekkert meira upptekinn af biskupn- um og dömunum en ég hef verið” segir hann. „Þetta eru myndljóð um fortíð ogsamtíð.” Sýning hans í Listmunahúsinu verður opin til 23. maí. ihh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.