Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1982, Blaðsíða 36
44
DAGBLAÐIÐ & VISIR. MANUDAGUR 24. MAI1982.
m*m
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
ORLATUR
PRESTUR
Andraw Uoyd Wobbor: Grmð/rt tá og fíngri og fftrfosttr i O/d Vic.
Verður Old Vic
að söngleikahúsi?
Tónskáldið Andrew Lloyd Webber
gerði þaö aldeilis gott með söng-
leikjum sínum, Jesus Christ
Superstar, Evita og Cats. Nýjasti
söngleikurinn hans, Song And Dance,
var nýlega frumsýndur í London og
virðist hann ekki siöur ætla að mala
höfundi sínum gull. Hefur söng-
leikurinn hlotið afburðadóma þar
í borg.
Venjulega hefur verið farið eftir
nokkuð fastri uppskrift í sambandi við
söngleiki: Þeir byrja sem sýning i leik-
húsi, síöan koma söngvaramir út á
breiðskifu og endað á kvikmynd og
annarri breiöskifu i sambandi við
hana. Hvað Song And Dance snertir
hefur Webber þó byrjað á öfugum
enda: Söngleikurinn byggist á tveimur
áður útkomnum breiðskifum, Tell Me
OnASundayogV ariations.
Webber er nú 34 ára gamall og fjár-
festi nýlega milljón punda i þvi gamla
og virðulega leikhúsi Old Vic í London.
Dreymir Webber um að nota leikhúsiö
sem klakstöð fyrír enska söngleiki og
nýja hæfileikamenn á því sviði.
Söngleikurinn Song And Dance er nú
sýndur í Palace Theatre í London, en
þar var söngleikur Webbers, Jesus
Christ Superstar, sýndur um átta ára
skeið.
Vlnkonan Susan Endacott, nú húsmóðir
ILondon.
Ræninginn notaði peningana til þess að
kaupa sér far með norska skemmti-
ferðaskipinu „Sun Viking” fyrir sig og
kærustuna sem hann vildi ekki svíkja
um skemmtisigiinguna.
Uz Taytortt trum Mar.
Það varkona í spifínu
Uzhittir gamla vhkonu
Mikið vatn er runnið til sjávar síðan
hún Liz litla Taylor sat fyrir á þessari
bekkjarmynd. Hún stundaði þá nám
við Byron House School í London.
Þegar Liz kom til London 44 árum
síöar til að leika í Litlu refunum var
henni sýnd myndin. Og hún átti ekki í
neinum erfiðieikum með að muna
nöfnin á bekkjarsystkinunum. Á
þessum tima var Susan Endacott
(lengst til vinstri á myndinni) sérstök
vinkona hennar. Susan er nú húsmóðir
í London og þegar Liz frétti af því greip
hún strax símann og bað um að fá að
hitta hana. Auðvitað var gamla vin-
konan heldur betur til í það og hafa þær
sjáifsagt haft margt aö ræða eftir svo
langan aðskilnaö.
„Þetta er ekki sú tegund auglýsingar arfélaginu „Royal Caribbean Cruise
sem viö sækjumst eftir,” sagði Aage Line”,enþaðeríMiami.
Lindstad, skipstjórí hjá norska útgerð- Hann var að vísa til blaðafrétta um
24 ára gamlan Ameríkana sem rænt
hafði matsölu eina í heimabæ sínum í
Flórída og drepiö þar tvo framreiðslu-
menn. Peningana notaði hann til þess
að kaupa sér far með norska skemmti-
ferðaskipinu „Sun Viking” umKaríba-
hafið.
Lögreglan komst á slóð mannsins
meðan skemmtiferðaskipiö var úti í
hafi. Hann var þar um borð með sinni
fögru festarmey. Það var ekki látið á
neinu bera og þótt lögreglan hefði leit-
að staðfestingar hjá útgeröarfélaginu
að hann væri á farþegalistanum var
ekki látið uppi fyrir hvaöa afbrot hans
væri leitað. — Það var hins vegar setið
fyrir honum í næstu höfn.
Maöurinn hafði aldrei áður komizt í
kast við lögregluna. Hann var af góðu
fólki kominn og hafði beztu meðmæli
allra sem til hans þekktu. Hins vegar
hafði hann leiðzt út í vitleysuna þegar
hann komst í gjaldþrot með afborganir
af bifreið sinni og eins hafði hann lofað
kærustunni að fara með hana í
skemmtisiglingu.
Frekar en koma fram fyrir hana og
játa að hann aflaöi ekki nóg til þess að
þau gætu siglt greip hann til þess ör-
þrífaráðs að ræna matsölu í smábæn-
um Destin í Flórída (24. april). Þegar
tveir starfsmenn sýndu mótþróa greip
hann til byssunnar og þá meira í óða-
goti en af drápsfýsn.
Samt vofir dauðarefsing yfir honum
ef hann verður dæmdur eftir ströng-
ustu viðurlögum.
1700 safnaðarsálir i prestakallinu
Bollendorf í V-Þýzkalandi hafa nú
þungar áhyggjur af prestinum sínum,
honum Leo Ehses. Enginn Drottins
þjónn hefur nokkru sinni gert eins
mikið f yrir sauði sina og hann.
Hann greiddi ferðalög fyrir safnað-
arböm sín, kostaði tónlistarkvöld og
skemmtikvöld fyrir aldraða og lét
endumýja kirkjuna fyrir fé úr eigin
vasa. Enginn hugsaöi neitt frekar út i
það hvaöan honum kæmi svo mikið fé
fyrr en hann lenti fyrir rétti. Þar játaði
hann aö hafa stundaö umfangsmikið
smygl á teppum, skartgripum og forn-
munum til aö hafa efni á því að létta
safnaðarbörnum sínum lífið.
Þorpsbúar eru þó allir á móti því að
hann missi embættið og telja að þarna
hafi tilgangurinn helgað meöaliö. Vilja
þeir því að presti verði fyrirgefið þetta
hliðarspor sitt — auðvitað gegn því að
hann lofi að gera slíkt aldrei aftur.
Leo Ehses: Vildi safnaðarbömum
sinum svo vel að hann lenti upp á kant
viðlögin.
HINCKLEY ÆTLAÐIAÐ
MYRÐA JODIE FOSTER
Það hefur nú komið í ljós viö réttar-
höldin yfir John W. Hinckley aö upp-
hafleg áætlun hans var að myrða leik-
konuna Jodie Foster og sjálfan sig á
eftir er hann fór til Washington og
skaut á Reagan forseta.
Þessar upplýsingar komu frá
geðlækni sem rannsakaði Hinckley
skömmu eftir að hann var handtekinn.
Geðlæknirinn, William Carpenter,
mætti fyrir rétti sem vitni verjanda.
Hann sagði að hinum 26 ára gamla til-
ræðismanni hefði verið efat í huga að
binda enda á tiigangslaust líf sitt.
Hefði hann gert áætlun um að myrða
Jodie Foster, sem hann dýrkaði tak-
markalaust, og svo sjálfan sig á eftir.
Áður höfðu foreldrar Hinckleys
vitnað fyrir rétti. Vildi faðir hans taka
á sig alla ábyrgö á því hversu illa haföi
faríð fyrir syninum. Sagðist hann óska
þess að hann gæti skipt um sæti við son
sinn. Móðir hans hefur líka lýst því
hvernig hún og faðir hans uppliföu lífs-
harmleik sonarins.
bktda anda t tfí- Jotfía
aaa _ a. a.. .aa..m . ma a----
nmtsKray cjjvkjnj* nmnm OBfv-