Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1982, Síða 13
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 5. JUNÍ1982.
13
j^ámsstefna félagsrá^jafadeildar Kleppsspftala um
Qölskyldumunsiiir og §lfja§pdl:
Eru sifjaspell
algeng á Éslandi?
Félagsráðgjafadeild Kleppsspítala
gekkst fyrir námsstefnu um fjöl-
skyldumynstur og sif jaspell sl. föstu-
dag. Til námsstefnunnar var boðið
fulltrúum frá Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar, Utideild,
Borgarspítala, Bamageðdeild
v/Dalbraut, Kvennadeild Land-
spítalans, Landspítalanum, Landa-
kotsspítala, Unglingaráðgjöf, Sál-
fræöideild skóla, Styrktarfélagi van-
gefinna, Fræðsluskrifstofu Reykja-
nesumdæmis, Geðdeild Land-
spítalans, Félagsmálastofnun Kópa-
vogs og Kleppsspítala. Námsstefnan
var, mjög vel sótt og þátttakendur
yfirðO.
Sifjaspell — viðkvæmt
og ógnvekjandi
Sigrún Júlíusdóttir, yfirfélagsráð-
gjafi Kleppsspítala, setti námsstefn-
una. Kvað hún námsstefnu þessa svo
som fyrri námsstefnur deildarinnar
árangur af fræðslustarfi vetrarins.
Tilganginn kvað hún tviþættan, þ.e.
að vera aðhald og hvati fyrir féiags-
ráögjafadeild Kleppsspítala í
fræðslustarfinu og efla tengslin við
aðra félagsráðgjafa og samstarfs-
aðila sem nauðsyn væri á aö hafa
sem bezt samstarf við. Sigrún gat
þess einnig að í þetta skipti hefði ver-
ið valið efni sem lítt hefur verið til
umræðu á opinberum vettvangi, efni
sem er vissulega umdeilt og jafnvel
afneitað sökum þess hversu við-
kvæmt og ógnvekjandi það er. Sagði
Sigrún ennfremur að sifjaspell væri
efni sem fjalla mætti um út frá ótal
mörgum sjónarhólum, svo sem
menningarlegum, lögfræöilegum,
siðfræðilegum, geðfræðilegum og
félagslegum.
Stór hluti sifjaspellsmála
kemur aldrei fram
í dagsljósið
Hrefna Olafsdóttir og Kristín
Kristmundsdóttir, félagsráögjafar
við Kleppsspítala, fluttu síðan
fræðsluerindi um sifjaspell. Þær
gátu þess m.a. að sif jaspell væri brot
á lögum í flestum löndum í hinum
vestræna heimi og er sá fullorðni,
sem framkvæmir verknaðinn,
alfarið talinn ábyrgur. Þessi stað-
reynd, auk annarra, á sinn þátt í því
að stór hluti sifjaspellamála kemur
aldrei fram í dagsljósið. Þær sögöu
ennfremur að því hefði löngum verið
haldiö fram að sifjaspell ættu sér
aðeins staö í lægri stéttum þjóð-
félagsins, auk þess sem misnotkun
vímugjafa spilaöi þar oftast inn í.
Þessar fullyrðingar kváðu þær eng-
an veginn einhiítar, alveg eins og
með annars konar ofbeldi á heimil-
um. Ennfremur sögðu þær Hrefna og
Kristín að einn af erfiðustu þáttum í
meðferð sifjaspellamála væri aö fá
fjölskyldumeðlimi til að skilja aö
sifjaspell væru einkenni á trufluðum
samskiptum innan fjölskyldunnar og
að hæpið væri að gera einhvern einn
aösökudólgi.
Að loknu erindi þeirra Kristínar og
Hrefnu var sýnd klukkustundar löng
kvikmynd um sifjaspell sem fengin
var að láni frá sænska sjónvarpinu.
Var þar rætt við böm og fullorðna
sem hafa veriö á einn eða annan hátt
dregin inn í sifjaspellamál. Var
þetta mögnuö mynd sem vakti hjá
flestum þátttakendum náms-
stefnunnar áleitnar spurningar.
Sifjaspell algengt
f yrirbæri á íslandi
Loks var svo hópvinna og hópum-
ræður. Verkefni þau er tekin voru
fyrirvoru:
1. Sifjaspell og réttarstaöa bama.
2. Sifjaspell og kvennakúgun.
3. Viðbrögð og viðhorf starfsfólks í
sifjaspellamálum.
4. Viöhorf almennings og löggjöfin.
5. Urræði og meðferðarleiöir.
I umræðunum í lok náms-
stefnunnar, þar sem ræddar
voru niðurstöður hópvinnunnar,
komu fram mörg og ólík sjónarmið
og skoðanir. Flestir virtust sammála
um að sifjaspell væru ekkert
óalgengari á Islandi en í nágranna-
löndum okkar og að trúlega væm
þau aö koma meira fram í dagsljósiö
hér á landi sem og á Norðurlöndun-
um og N-Ameríku. Vmsar tilgátur
vom ræddar sem varpa mættu ljósi á
vandamáliö. Síðast en ekki sízt voru
ræddar leiðir til úrræða eða mögu-
leikar til úrbóta.
IIjjónalMNid á framabrmit
/1 " 1" HAKI.
íram)
tilsölu og leigu
Einfaldir — traustir
—- hagkvæmir.
BREIÐFJÖRÐS
BLIKKSMIÐJAHF
Leitió nénarí upp/ýsinga
aðSfgtúni7 Simii2B022
Ahætt
UKTA?
Þú þarft þess ekki lengur þvi
nu getur þú fengió eldtraust•
an og þjófheldan peninga- og
skjalaskáp á ótrúlega hagstæðu verði.
'&IK/NGCRinVN
Hjónaband hjálpar körlum á frama-
brautinni en heldur aftur af konum,
segir franski félagsfræöingurinn
Francois de Singly í niðurstöðum-
nýlegrar könnunar. Singly lét sér dettai
í hug aö kanna máliö eftir að hafa tekiði
eftir því, þegar hann sótti konuna síná
á hennar skrifstofu, að það voru giftu
karlarnir og ógiftu konumar sem tóku
að sér eftirvinnuna þar. Ogiftir karlar
og giftar koniu- fór heim á slaginu 5.
Félagsfræðingurinn safnaöi
upplýsingum allt frá árinu 1970 og
náðu þær yfir 37.843 Frakka í alls
konar atvinnu í öllum þrepum launa-
stigans.
Af konum og körlum, sem höfðu
minnst tveggja ára starfsmenntun að
baki, komust 43% giftra karla í yfir-
mannastööur en aðeins 29% þeirra
ógiftu. Af konum: 21% ógiftra en 6%
giftra. Niðurstaða félagsfræöingsins
var þessi: giftum körlum gengur bezt,
ógiftum konum verst, vegna þess að í
venjulegum hjónaböndum styður kon-
an karlinn sinn í hans starfi en lítur sitt
eigið starf ekki eins alvarlegum aug-
um. „Fjölskyldan verður karlinum
stoð og stytta og ýtir honum lengra og
lengra upp metorðastigann. Þetta ger-
ist ekki hjá ógiftum og heldur ekki hjá
konum sem eru giftar. Hennar starf er
innan veggja heimilisins líka, jafn-
framthinu.”
En hvað um ógifta karlinn — hvers
vegna gengur honum illa? Vinnuveit-
endur kjósa frekar karla, samt stend-
ur hann sjaldnast framar ógiftum kon-
um í starfinu. De Singly stingur upp á
einni skýringu: Piparsveinninn er
þrátt fyrir allt dálitiö utanveltu, hann
hefur lægri laun en giftur karl og ógift
kona. I Bandaríkjunum er sjálfs-
morðstíðni, glæpatíðni og sjúkdóms-
tíðni hærri hjá ógiftum körlum en gift-
um.
„Tölfræðin sýnir að það er
„normalt” fyrir hámenntaöa konu að
vera ógift en „abnormalt” fyrir
hámenntaðan karl. Sú staðreynd ein,
að karlinn hefur ekki gifzt, sýnir e.t.v.
strax að eitthvað er bogið við hann.”
Það sem De Singly segir að hafi komiö
sér mest á óvart í könnuninni, er að
meðal menntafólksins eigi ógiftar kon-
ur meiri möguleika á stööu- og launa-
hækkunum en ógiftir karlar. Hann
skýrir þetta með því að benda á að
franskar konur, sem á annaö borð hafi
komizt yfir karlrembuhindranir
franskra háskóla, séu orðnar harðari
afsérenkarlamir.
En sem sagt, hjónabandið er konum
fjötur um fót á vinnumarkaðnum, körl-
unum haukur í horni. Könnun De Singl-
ys athugaöi hins vegar ekki hvort
framakapp karlmanna væri þeim fjöt-
ur um fót á heimavígstöövunum, þ.e. í
fjölskyldulífinu. En það er auðvitað
allt annar handleggur!
Ms
Lykill og talnalás= tvöfalt öryggi.
Innbyggt þjófavióvörunarkerfi.
10 stæróir, einstaklings og
fyrirtækjastæróir.
Japönsk gæóavara (JIS Standard).
Viöraóanlegt veró.
Eldtraustir og þjófheldir.
Japönsk vandvirkni i frágangi og stil.
C2M3>-
Hallarmúla 2. — Sími 83211.