Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1982, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1982, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ & VISIR. FÖSTUDAGUR18. JUNI1982. Vopnafjörður: SAUMAKONUR EKKI BOÐAÐAR í VERKFALL Til nokkurra átaka kom milli full- trúa verkalýðsfélagsins á Vopnafirði og starfsmanna á saumastofunni Hrund í verkfallinu í síöustu viku. „Við fengum enga verkfallsboöun inn á þennan vinnustað og töldum okkur í fullum rétti til að vinna ” sagði Una Einarsdóttir, verkstjóri á sumastofunnií samtali við DV. „Þar aö auki eru alUr starfsmennirnir jafnframt hluthafar í fyrirtækinu og telja sig því mega vinna sem eig- endur þegar tU verkfaUa er boöaö. Það kom því nokkuð flatt upp á okkur þegar hingað mættu fUefldir fuUtrúar frá verkalýðsfélaginu og með tilheyrandi rosta skipuðu okkur að leggja niöur vinnu hið snarasta. Nú, konurnar völdu þann kostinn aðhætta vinnu á hádegi, frekar en að standa í iUindum, nema ég sem vann hérna báða verkfaUsdagana fram á kvöld”. „Þetta var nú eiginlega smámis- skilningur,” sagði Aðalbjöm Björns- son, starfsmaður verkalýðsfélagsins sem var í fylkingarbrjósti verkfaUs- varöanna. „Við vorum ekki alveg vissir um hvort fyrirtækið væri rekiö sjálfstætt eða á vegum hreppsins. I seinna tUvikinu hefði verkfaUið auö- vitað ekki náð til starfsfóUcsins. En saumastofan Hrund er rekin sem sjálfstætt hlutafélag og því áttu þess- ar konur að vera í verkfalU rétt eins og aðrir, jafnvel þótt okkur hafi láöst að boða það formlega. „Eg hef alveg haft það á hreinu hvemig rekstrar fyrirkomulag þessa fyrirtækis er og flokka það því ein- göngu undir mannleg mistök að formleg boöun skyldi ekki ná til saumastofunnar,” sagði formaður verkalýðsfélagsins, Sigurbjöm Bjömsson. ,,Auðvitað er slUc boöun æskUegust. En starfsmenn fyrir- —envoru svo reknar heim tækisins geta ekki fríað sig í verk- föllum vegna einhverra hlutabréfa- eignar. Það stenzt engan veginn. Annars er þetta mál búið og afgreitt af minni hálfu í fullri sátt og sam- lyndi. Verkalýðsfélagið var í fullum rétti. Það fór ekki framhjá neinum hér í piássinu að verkfaU stóð fyrir dymm, sízt af öUu þessu fyrirtæki sem er hér í sama húsi og verkalýðs- félagiö.” -JB Sleipnisskjöldurinn sem efsti hestur í A f lokki hjá Sleipni hlýtur. Hestaþing Sleipnis og Smára á Murneyri Hestaþing hestamannafélaganna Smára og Sleipnis verður haldið á Mumeyri um helgina 26. og 27. júní næstkomandi. Þar veröur gæðinga- keppni félaganna, unglingakeppni og kappreiðar. Sleipnismenn keppa um farandskjöld í A flokki sem keppt hefur verið um frá því árið 1950. Hann vinnst ei til eignar. Smára- menn keppa í A flokki um Hreppa- svipuna sem keppt hefur veriö um síðan árið 1944. Hún vinnst ei til eignar. I unglingaflokki er keppt um tvo bikara hjá hvora félagi í aldurs- flokkunum 12 ára og yngri og 13—15 ára. Kappreiöar verða með svipuðu sniöi og áöur en undanfarin ár hafa allir þekktustu hlaupagarpar og vekringar landsins mætt til leiks, enda völlurinngóður. Árnesdeild hagsmunafélags hrossabænda á Suöurlandi mun efna t'il hrossauppboðs á laugardags- kvöldið26. júní. -DS. Verðlækkun á hljóðfærum Hljóðfæri hafa nú lækkað um 15— 20%. Er þaö vegna þess að tollar af þeim hafa verið afnumdir. Svo dæmi séu tekin um lækkun á verði má nefna að ódýrasta píanóið sem til var í hljóð- færaversluninni Rín lækkaði úr 27.691 krónu í 21.599. Gítarar lækkuðu úr um 2 þúsund krónum í 1500—1600 krónur. Og hljóöfærið sem margir byrja á, blokk- flautan, lækkaöi úr 95 krónum í 73. Við- mælandi okkar í Rín sagði aö við tolla- lækkunina hefðu viöskiptin tekið mikinnfjörkipp. DS Þórður Sverrisson til Eimskips Þórður Sverrisson viðskiptafræð- ingur hefur verið ráöinn fulltrúi fram- kvæmdastjóra flutningasviðs Eimskips frá og með 1. júlí 1982. Hér er um nýtt starf að ræða innan fyrirtækis- ins þar sem einkum verður unnið að ýmsum verkefnum á sviði markaðs- og kynningarmála. Þórður Sverrisson lauk viöskipta- fræðipróf frá Háskóla Islands árið 1976 og stundaði síðan framhaldsnám í rekstrarhagfræði um eins árs skeið við Verzlunarháskólann í Gautaborg. Hann hefur gegnt starfi framkvæmda- stjóra Stjómunarfélags Islands sl. fjögurár. Þórður er kvæntur Lilju Héðinsdótt- ur, B.A., og eiga þau tvö böm. Þórður er sonur hjónanna Málfríðar Jóhanns- dóttur og Sverris Valdimarssonar prentara. Eimskip: Tvö skip á leigu Eimskip hefur tekið a leigu tvó ny gámaskip. Hefur félagið kaupheimild á þeim báðum. Þetta era systurskip, smíðuö á Spáni. Munu þau bera nöfnin Bakkafoss og Santiago. Á fyrrnefnda skipinu verður íslenzk áhöfn og það skráð í Reykjavík. Síðarnefnda skipiö verður hins vegar skráð í Panama og á því erlend áhöfn. Er það gert vegna reglna sem kveða svo á um að ekki megi skrá skip á Islandi nema þau séu að minnsta kosti að 60% hluta í eigu Is- lendinga. Skipin era 1951 brúttólest og geta flutt 235 tuttugu feta gáma. Þau brenna svartolíu af ódýrastu gerð. Hringferð þeirra til og frá Ameríku mun taka þr jár vikur. Þórir ekki í nýju hljómsveitinm I sviðsljósinu okkar á mánudaginn voru meðal annars þeir Björgvin Hall- dórsson og Magnús Kjartansson með stofnun nýrrar hljómsveitar. Eitthvaö hafa upplýsingar okkar brenglazt því aö Þórir nokkur Baldurs- son er þar bendlaöur við hina nýju sveit. Mun engin fótur fyrir slíkum fregnum hvað þá því að hann hyggi á hringferð með þeim um landið. Þórir mun nefnilega skemmta með hljóm- sveitinni Geimsteini ásamt Jörundi og félögum hans úr Þórskabaretti úti á landsbyggðinni í sumar. Svo að við biöjumforláts. -JB ÞórðurJ Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Eru kommúnistar að verða normal? Svo undarlega hefur brugðið við síðustu daga, að helstu launamála- kappar landsins hafa séð ljósið, eins og um niöurdýfingarskírn væri að ræða. Hver um annan þveran ræða þeir nú af sanngirni og nokkrum vits- munum um efnahagsástand og áhrifa kjaramála á það. Forsætis- ráðherra kemur á Austurvöll og lýsir yfir að bægt hafi verið frá einhverju ódæma slysi með því að fresta aUs- herjarverkfaUi, og kveðst jafnframt vona að ekki komi tU aðgerða, sem fyrst og fremst snúast gegn þjóðfé- iaginu sjálfu. Þessi orð iét hann faila á þjóðhátíðardegi. Hann hlýtur að tala fyrir munn rikisstjórnarinnar, en þar eru kommúnistar innanborðs, sem annað tveggja verða nú að lýsa yfir að kjaramál komi efnahag landsins ekkert við, eða þegja um nokkra framtíð, jafnvei þegar þeim bráðUggur á að setja svo sem eins og eitt útflutningsbann á fiskfram- leiðendur. Það er ekki líklegt að þeir aðUar í þjóðfélaginu, sem undanfarin fjöra- tíu ár hafa beitt launþegum fyrir sig í póUtískum tUgangi, reyni slUct í þetta sinn. TU þess er ástandið of al- varlegt, og of nærri liggur að hér fari aUt í stóra strand. Ástæðurnar eru augljósar, þegar togarar Uggja nú bundnir vegna þess að ekki er grund- vöUur fyrir frekari veiðum að óbreyttu. Annað er eftir því. Frestun á aUsherjarverkfaUi kom að visu samkvæmt fyrirskipun launamála- kappanna í rikisstjórninni, því fuU- trúi fjármálaráðherra var búinn að boða þessa frestun áður en hún kom tU umræðu í karphúsinu. En það breytir engu um þá staðreynd að verkfaUi hefur verið frestað. Þessi frestun á allsherjarverkfaUi er meiriháttar póUtískur viðburður í landi, sem á heimsmet í týndum vinnudögum í verkföUum. Hún boðar skynsemistíma, enda er efnahags- ástandið þannig, að ekki verður miklum launabaUett viðkomið. I sjónvarpsþætti kom mjög glögglega fram, að verkalýðsforingi í Hvera- gerði, formaður iðnrekenda og Þröstur Ölafsson, kenningasmiður kommúnista, voru sammála um að bægja beri frá þeirri óskundan, sem aUsherjarverkfaU er á erfiðum tíma. Sérstaka athygU vöktu ýms ummæli Þrastar, sem talaði raunar á stund- um eins og Þorsteinn Pálsson. Þröst- ur er aðstoðarmaður Ragnars Arn- alds, fjármálaráðherra, sem er einna virtastur ráðherranna fyrir hvað bann heidur skynsamlega á málum. Virðist eins og sósiaUstar hafi haft gott af þvi að komast í kynni við rikiskassann. A.m.k. hefur tal þeirra breyst mjög tU batnaðar og þá varðar nú orðið um fleira en einbera keyrslu á launasviði. Víst er gott að hafa góð laun og ber belftin af þjóðf élaginu þess merki að svo sé. Það er ekkert lát á sólar- landaferðum, kaupum á videótækj- um eftir kaupæði á hljómburðar- tækjum í fyrra. Litasjónvörp eru komin i svo tU hvert hús, og bila eiga menn, og eru ekkert feimnir við að endumýja þá i ár. Hins vegar eru iægstu laun erfið viðfangs, einkum hjá stéttum, sem geta ekki byggt á bónusum og yfirvinnu. En laun hér markast að hluta af þvi, aö þeim er ætlað að tryggja að hér sé næg at- vinna. Þau eru því í sjálfu sér eins- konar niðurgreiðsla á atvinnu. Fólk getur svo valið á miUi hvort það vUi hærri laun og atvinnuleysi, eða óbreytt eða lítt breytt ástand. Sýni- legt er að verkalýðsforustan kýs heldur næga atvinnu en stóra kjara- baráttusigra. Það er í þessu efni, sem kommún- istar virðast hafa vitkast i bUi. Þeir eru reiðubúnir að gefa eftir og búast má við að stærstur hluti launþega sé verkalýðsforustunni þakklátur. En það er búið að ala þá upp við sama taUð í fjörutíu ár, og í fyrrnefndum sjónvarpsþætti kom einmitt í ljós, að einn þátttakenda brúkaði sama munn og verkalýðsforingjar gerðu. Hann hefur ekki áttað sig á breyting- unni, og nýtur ekki lengur stuðnings áróðursvélar, sem barðist um á launamarkaði tU að ná póUtískum árangri. Kristján Thorlacius talaði ekki óeðUlega miðað við fyrri hefðir. En hann var næsta einmana í sjón- varpsþættinum. Vegna þess að menn eru að vitkast erum við samstæðari þjóð en oft áður. Frestunin á aUsherjarverk- faUinu bendir tU nýrrar vitundar, sem minnir á gamla daga þegar við fundum tU sem einn maður á erfið- leikatimum. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.