Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1982, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1982, Page 11
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR18. JUNI1982. 11 Útlönd Útlönd Útlönd Utlönd Bretar dekr- uðuvið Astiz Denis Healy, varaformaöur Verka- mannaflokksins, og fleiri leiðtogar stjómarandstööunnar hafa gagnrýnt harðlega þaö sem þeir kalla „lúxus- fangavist” AlfredoAstiz. Astiz var, sem kunnugt er, yfirmað- ur liös Argentínumanna á Suður- Georgseyjum og liggur undir þungum ákærum fyrir aö hafa verið ábyrgur fyrir hvarfi tveggja franskra nunna og sænskrar stúiku. Fangaklefi Astiz var búinn sjónvarpstæki, fullkomnu baö- herbergi svo og sérstöku svefnher- bergi og setustofu. Healy mótmælti því aö hann fengi sérstaka meðferð og kvaðst ekki vita til þess að almennir argentínskir stríösfangar fengju sjón- varpstæki til umráða í fangavistinni. Aöstæður þær sem Astiz býr við eru langtum betri en Genfar-sáttmálinn um meðferð stríðsfanga kveður á um. Líklegt er að brezka stjómin hafi talið að ef vel væri farið með Astiz kæmi það brezkum stríðsföngum í Argentínu til góða. Þess skal þó getiö að 3 brezkir blaðamenn sem voru í haldi í Argen- tinu ákæröir fyrir njósnir hiröust í ein- um litlum fangaklefa. Ósigurínn tekinn að segja til sín í Argentínu: GALTIERIHROKKL- AST FRÁ VÖLDUM — Bretar vonast eftir „skynsamlegrí afstöðu” nýrra ráðamanna í Buenos Aires Leopoldo Galtieri, hershöföingi og forseti Argentínu, skýrði frá því í nótt að hann léti af störfum sem for- seti Argentínu og yfirmaður hersins. Afsögn Galtieris kemur aöeins þremur dögum eftir uppgjöf Argen- tinumanna í Falklandseyjastríðinu. Hann kvaö ástæðuna til afsagnarinn- ar vera þá að hann nyti ekki lengur stuðnings hersins. ,,Ég er ekki eins og þeir sem yfir- gefa skip sitt í stormviðri eða þegar erfiðleikar steðja að,” sagði Galtieri við fréttamenn. „Það skal argen- tínska þjóöin fá aðvita.” Galtieri hershöfðingi bætti við: „Eg dreg mig í hlé vegna þess að herinn veitti mér ekki pólitískan stuðning til að halda áfram sem yfir- maður herstjórnarinnar og forseti. ” Áreiðanlegar heimildir sögöu að Galtieri segði af sér vegna þess að herstjórnin kenndi honum um tapið í Falklandseyjastríðinu. Cristiano Nicolaides hershöfðingi tekur við af Galtieri sem yfirmaður hersins. Honum er lýst sem harðlínu- manni á hægri væng stjórnmálanna. Vestrænir stjómarerindrekar segja að Nicolaides sé liklegur til að ráða miklu um óvissa framtíð argen- tínskra stjórnmála. Þeir telja ekki óhugsandi aö hann kunni að fallast á einhvers konar stýrt lýðræði þar sem hægri sinnaðir stjórnmálaflokkar fengjuaðstarfa. Nicolaides er sagöur harður and- stæðingur kommúnista. Hann átti stóran þátt í að ráða niöurlögum skæruliða í Argentínu á síöasta ára- tug. Galtieri. Ösigurinn í Falklandseyja- striðinu varð honum að f alli. Hann hefur ekki gefið neinar opin- berar yfirlýsingar um Falklands- eyjastríðið. Ekki er talið víst að hann muni einnig taka við forsetaembætt- inu af Galtieri. Embættismenn brezku stjómar- innar sögðu eftir að fréttist um af- sögn Galtieri að þeir vonuðust eftir að breytingin hefði í för með sér „skynsamlegri afstöðu” Argentínu- manna. Bretar vilja fá tryggingu fyrir því aö Argentínumenn láti nú af öllum ófriði. I morgun skýrði einn af meðlimum argentínsku herstjórnarinnar frá því að frjáls starfsemi stjórnmálaflokka verði heimiluð í Argentínu frá og með næsta mánuði. En starfsemi stjómmálaflokka hefur verið bönnuð þar i landi frá því aö herinn tók völdin af stjóm perónista áriö 1976. ARGENTINSKU FANG- ARNIR FLUTTIR HEIM — Margir illa haldnir af kulda og vosbúð Brezka utanríkisráðuneytið skýröi frá því í morgun að í nótt hefði borizt beiðni frá Buenos Aires þess efnis að argentínsk skip fengju að flytja stríðs- fanga frá Falklandseyjum tÚ megin- landsins. I yfirlýsingu ráöuneytisins sagði að beiðnin væri nú til athugunar. Um tíu þúsund argentínskir stríðs- fangar eru á Falklandseyjum og höfðu Bretar látið í ljósi áhyggjur af aö hundruð þeirra kynnu að látast úr vos- búö og veikindum á næstu dögum ef þeir y rðu ekki f luttir á brott. Áður höfðu argentínsk stjórnvöld neitað aö flytja fangana beint til Argentínu eins og Bretar kröfðust. Þá höfðu Bretar einnig óskaö eftir form- legri yfirlýsingu argentínskra stjórn- valda um að öllum ófriði væri nú lokið af þeirra hálfu í Falklandseyjadeil- unni. I Buenos Aires var skýrt frá því í morgun að heimflutningur fanganna ætti aö hef jast í dag með aðstoð Rauða krossins. Tvöargentínsk skip og tvö brezk áttu aö annast flutning fanganna, að sögn argentínska utanríkisráðuneytisins. Brezka stjórnin vill að fangamir verði fluttir sem allra fyrst heim og hafa þúsundir þeirra að undanfömu beðið eftir heimild frá Buenos Aires. Bretar ætla sér hins vegar aö halda eft- ir liðsforingjum og úrvaissveitum Argentínumanna þar til formleg yfir- lýsing hefur borizt frá Buenos Aires um aö öllum ófriði sé lokiö. Bretum er þetta heimilt samkvæmt Genfarsáttmálanum um meðferð stríðsfanga og samkvæmt heimildum innan brezka hersins er ekki óhugsandi að einhverjir argentínsku fanganna verði fluttir til Bretlands. Umsjón: Gunnlaugur A. Jónsson Handtekinn íbústað drottningar Maður er sveiflaði rýtingi var handtekinn í Buckingham höll í gærkvöldi að því er lögreglan í London hefurskýrt frá. Maðurinn, sem er 25 ára gam- all, var stöðvaður af einum af líf- vörðum drottningar sem hélt honum þar til lögreglan kom á vettvang. Enginn úr f jölskyldu drottning- arinnar var í höllinni þegar atburðurinn átti sér stað. Frakkland: A tvinnuleysingjar orðnir 2 milljónir Atvinnuleysingjum fjölgaði það mik- ið í Frakklandi í maímánuði að þeir eru orðnir rúmlega 2 milljónir. Samkvæmt tölum frá atvinnumála- ráðuneytinu franska eru atvinnu- leysingjar 2 milljónir og 5 þúsund sem er 15,4 prósent aukning miðað við maí í fyrra. Atvinnuleysingjar voru 1 milljón og 795 þúsund er sósíalista- stjóm Francois Mitterrand tók við í fyrra. Ríkisstjórnin ákvað fyrir nokkr- um dögum að fella frankann og setja á verðstöðvun til októberloka. Atvinnuleysingjar munu vera um það bil 8,5 prósent af f jölda vinnufærra manna. Rikisstjómin hefur þó náð nokkrum árangri í baráttunni við at- vinnuleysið með stuöningi við fyrir- tæki sem bæta við sig starfsmönnum svo og auknum rikisútgjöldum sem notuð hafa verið til þess að skapa ný atvinnutækifæri. ÞEIR ERU KOMNIR AFTUR HIIMIR HEIMSFRÆGU Htll BBims rStórkostlegar aksturslistir. Ekið á tveim hjólum: Stokkid á bilum. Mótorhjólastökk, trúðar ásamt fjölda annarra cuksturslista og skemmtiatriða á 90 minútna sýningu. Heimsins mestu ökugarpar i aksturslistum. Stórkostleg skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Selfoss KL. 20:00. 20. júní sunnu. Borgarnes Keflavík Reykjavík Reykjavík 22. júní þrið. 24. júní fimmt. 26. júní laug. 27. júní sunnu. Stykkishólmi ísafjörður Sauðárkrókur Akureyri Húsavík 29. júní þrið. 1. júlí fimmt. 3. júlí laug. 4. júlí sunnu 5. júlí mánu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.