Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Síða 1
Þessar myndir voru teknar í Mjóafirði við /saf/arðardjúp og sýna hvernig sefveiðimenn hafa skilið við eftír að hafa hirt kjammana. Á stærri myndinni er Finnbogi Hermannsson að skoða verksummerki og á innfettdu myndinni sóst hvernig fugiar hafa étið sig inn í hræið. DV-mynd GG Keppnin um Sumarmynd DV1982: GLÆSILEG VERDLAUN FYRIR BEZTU SUMARMYNDIRNAR —allirlesendurgeta tekið þáttíkeppninni Keppnin um Sumarmynd DV 1982 hefst í dag. Allir lesendur blaðsins geta tekið þátt í keppninni, sent inn sínar beztu sumarmyndir og átt kost á glæsilegum verðlaunum. Keppn- inni er skipt í tvo f lokka, litmyndir og svart-hvítar myndir. Þrenn verðiaun verða veitt í hvorum flokki. Verð- launin eru hin sömu í báðum flokk- um, Olympus myndavélar frá verzluninni Gevafoto. Fyrstu verðlaun í báðum flokkum eru Olympus OM 10 myndavélar. önnur verðlaun eru Olympus XA myndavélar og þau þriðju Olympus XA2myndavélar. Þátttakendur í keppninni verða að merkja allar sínar myndir á bakhiið með nafni og heimilisfangi. Heimilt er að senda fleiri en eina ljósmynd. Myndirnar skulu sendar ritstjóm DV, Síöumúla 12—15,105 Reykjavík, merktar „Sumarmynd”. Áríðandi er að hverri sendingu fylgi frímerkt umslag með utanáskrift til send- anda, svo hægt verði að endursenda allarmyndir. Dómnefnd skipa Gunnar V. Andrésson ljósmyndari DV, Gunnar Kvaran listfræðingur og myndlistar- gagnrýnandi DV og Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndari Vikunnar. Nefndin velur í sumar myndir til birtingarí blaðinu. Sumarmyndakeppni DV stendur út ágústmánuö, en skilafrestur siðustu mynda er til 10. september. Grípið því myndavélina sem fyrst og sendið blaðinu myndir. Ljósmyndun er skemmtilegt áhugamál og til veg- legra verðlauna er að vinna. -JH HalldórÞór á batavegi Halldór Þór Guðmundsson, 19 ára, er nú óðum að ná sér eftir að hafa legið hryggbrotinn úti undir berum himni í þrjá sólarhringa á sunnan- verðri Heimaey. Myndina tók Guðmundur Sigfússon á sjúkrahús- inu í Eyjum í gær. Stúlkan, sem stendur við rúm Halldórs, heitir Klara Tryggvadóttir. — sjánánarábls.2 Víða á Vestfjörðum má nú sjá mork- in selshræ liggja á f jörum. Ástæðan er sú ákvörðun hringormanefndar, sem skipuö er og kostuö af fyrirtækjum í sjávarútvegi, aö greiða 500—700 krón- ur fyrir selskjammann til að stuðla að fækkun selastofnsins við landiö. Að sögn Finnboga Hermannssonar, sem nýlega var á ferö um Isafjarðar- djúp, er aðkoman víða heldur óræsti- leg. Menn kæmu á hraðbátum til sel- veiðanna, skæru kjammana af seln- um en létu hræin liggja í fjörunni. Þar læki úr þeim grúturinn og væri þar mikil vá á ferðum fyrir fuglalíf. Þeim fugli sem lendir í grútnum er ekki lífs auðið. Sagði Finnbogi að bændur við Djúpið, einkum þeir sem væri með æð- arvarp, hefðu af þessu miklar áhyggj- ur. Egill Olafsson bóndi á Hnjóti í Patreksfirði, sem sæti á í náttúru- vemdarráði Barðstrendinga, sagði í samtali við DV í morgun að menn væru mjög óánægðir með hvemig að þessum veiðum væri staðið. „Það viröist ekki vera farið eftir neinum reglum eða lög- um við veiöamar og þær eru þeim sem að þessu standa ekki til mikils sóma.” Sagöi Egill að selalátur væri alfriðuð en skotmenn virtust ekki hirða um það. Seladráp á Breiðafirði hefur nú verið kært til sýslumanns Barðstrendinga. ÓEF Af leiðingar verðlaunaveitinga hringormanef ndar: Óræstileg aðkoma að selahræjunum selveiði menn skera kjammana af og láta hræin liggja

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.