Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Side 7
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FIMMTUDAGUR1. JULl 1982.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Einhver tilbreytni í sósum er alveg
nauðsynleg. Heimilisfólkið er eflaust
orðið leitt á því að fá ýmist brúna eða
hvíta sósu. Hér eru uppskriftir bæði af
heitum og köldum sósum, sem nota má
meö hinum ýmsu matarréttum. Talað
er um einn skammt af mæjonesi, þá er
um að ræða ca 4 dl. Uppskrift að einum
skammti fylgir, fýrir þá sem ekki
kaupa tilbúiö mæjones.
I uppskriftunum er mælt með chili-
sósu, en hún er ekkert annaö en sterk
tómatsósa, jafnvel má notast við
venjulega tómatsósu. En það eru til fá-
einar tegundir af chili-sósum,
monarch-chilisósa kostar 22,10, hún er
með tómötum. Calvé-chilisósa er
hollenzk, hún inniheldur vatn, sykur,
sait, iauk, rauða papriku og fleira,
sósan líkist mjög mildri tómatsósu.
Kínversk sæt chilisósa er einna sterk-
ust, hún er þunn og kostar flaskan
krónur 28,35, góð sósa bæði á kjöt og
fiskrétti.
RÆKJUSÓSA: - A SOÐINN FISK
30 g smjörliki, 2 matsk. hveiti, 4—5 dl
ljóst kjöt- eða fisksoð, 1/2 dl rjómi
(mjólk), 200 g rækjur. Bræðið smjör-
líkiö í potti og gætið þess vel, aö það
brúnist ekki of mikið. Hrærið hveiti
saman við og bætiö soðinu smám sam-
an við. Hrærið vel í þar tii sósan er jöfn
og bætið þá rækjum saman við. Þessi
sósa er mjög góð með soðnum fiski.
MÆJONES: (1 SKAMMTUR)
2 eggjarauður, 2—3 tsk. edik eða
sítrónusafi, 1 tsk. salt, ca 3 dl matar-
olía. Gætið þess ávallt, að allt það, sem
nota á við að búa til mæjones verður að
hafa sama hitastig. Hrærið eggja-
Tilbreytni í sósugerð
rauðurnar, salt og sítrónusafa saman.
Bætið matarolíunni við, mjög hægt til
að byrja með, en síðan hraðar. Mæjon-
es er gott með steiktum fiski eöa kjöti.
Ur mæjones er hægt að búa til ýmsar
sósur, s vo sem chili-sósu og f leira.
JHILI-SÓSA:
1 skammtur mæjones, 1—2 matsk.
chilisósa, 1/2 piparávöxtur. Pipar-
ávöxturinn er skorinn niður í mjög
smáa bita og blandaö saman við
mæjones og chilisósu. Boriöframmeð
steiktum fiski eða kjöti.
TÓMATMÆJONES:
1 skammtur mæjones, 2 matsk.
tómatsósa, hökkuð persilja. Þessu er
öliu blandað vel saman og borið fram
með kjöti eða fiski.
KARRY-SÓSA
MEÐ EPLUM OG LAUK:
1 epli, 1 lítill laukur, 30 g smjör, 1 tsk.
karry, 2 matsk. hveiti, 2—4 dl kjötsoð
eða mjólk, salt. Afhýðið eplið og brytj-
ið þaö i smá bita ásamt lauknum.
Bræðið smjörið í potti og bætið eplum,
lauk og karrýi út í. Látið brúnast vel.
Karrý verður alltaf bragðbezt þegar
það er brúnaö í smjöri. Setjið hveitið
saman við og bætiö soðinu í smám
saman. Hrærið vel í, þar til sósan er
jöfn. Bætið karrýi saman við ef sósan
er ekki nógu bragðsterk. Borið fram
með soðnu kinda-, hænsna- og kálfa-
kjöti. Þessi sósa er sérlega góð með
steiktu beikonL
STERK TÓMATSÓSA:
2 þunnar beikonsneiöar, 1 lítii gulrót,
3—4 matsk. sterk tómatsósa, 1 laukur,
30 g smjörlíki, 1 matsk. hveiti, 3—4 dl
kjötsoð, salt og pipar. Skeriö beikonið í
litla bita og brúniö það vel á pönnu.
Bætið niöurskornu grænmetinu saman
við. Látið smásteikjast við vægan hita
í 5 mín. Bætið hveitinu saman við og
siðan soðinu og tómatsósunni. Látið
sósuna malla í 15 mín. Þessi sósa er
mjög góðmeöfiski og spaghetti. -RR.
TILBOÐ
Tauskór
litir: svart — beige
rautt — blátt
Kr. 99.00
Kvenstærðir.
litir: hvitt — biátt — rautt
Kr. 149.00
Kvenstœrðir.
Domus Medica
s* 18519.
pÓS'
Barónsstígur 19 s. 23566
*sen'
TOPPSKÓRINN
Vðltusundi s. 21212.
Það er sjálfsagt að bera fram nýjar sósutegundir, láta epli í karrýsósuna og
beikon í tómatsósuna.
HÚSRÁÐ
Klór hressir upp
á gamalt leirtau
Hrá kartafta I
of heita feiti
Þegar steikt er úr feiti verður að
gæta þess að hún ofhitni ekki. Gott er
að hafa hráar kartöQur við höndina
og setja í feitina, þær koma í veg
fyrir aðeldurkomiupp.
Rjómaskeiðin
í kalt vatn
Tii þess að þeyttur rjómi tolli ekki
um of á skeiðinni, er gott að setja
hana í kalt vatn, rétt áður en rjóminn
erlagðuráborðiö.
Blekblöttir burt
með srtrónusafa
Blekblettum er hægt að ná burt
meö sítrónusafa. Fari bletturinn
ekki við þaö, er gott að sjóöa flíkina í
sítrónusafa og þvó síöan á venjuleg-
an hátt. Mjólk er einnig ágæt á
sítrónubletti.
Brún húð í
Ijósum bollum
Bæði kaffi og te mynda brúna húö í
bolia, sem fer ekki við venjulegan
þvott. Brúna litinn má leysa upp með
því að hræra matarsóda í vatn og
láta standa í bollunum. Einnig er
hægt að nota klór, sé það óblandað,
þá fer brúna skánin strax. Klór má
ekki standa í drykkjaríláti, gæta
þarf þess að þvo bollana vel á eftir.
Þeir verða eins og nýir að innan.
Sama gildir um glös sem eru orðin
mött (oft eftir uppþvottavélar) þau
er gott aö leggja i klór en aðeins í
stuttastund.
-RR.
/ K-BUXUR
MEÐOGÁN TEYGJU! (Þ.e.a.s. ,,STRETCH“)
BANKASTRÆTI 7
AÐALSTRÆTI4
Auövitað í öllum stœröum.
Auðvitað í nýju sumarlitunum
Auðvitað gott úrval efna.
Auðvitað enn og aítur;með-og án
„STRETCH"