Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Qupperneq 18
18
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FIMMTUDAGUR1. JULl 1982.
FÉLAGSFUNDUR
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur félags-
fund að Hótel Sögu, Súlnasal í kvöld fimmtudag-
inn 1. júlí 1982 kl. 20.30.
Dagskrá: Nýir kjarasamningar.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Staða forstöðumanns
við nýtt skóladagheimili í Breiðagerðisskóla er
laus til umsókna.
Laun samkvæmt kjarasamningi borgarstarfs-
manna.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 11941 í dag
og og á morgun frá kl. 16—18.
Umsóknir sendist fræðsluskrifstofu Reykjavíkur-
borgar, Tjarnargötu 12, fyrir 10. júlí nk.
Skólastjóri
Auglýsing
um skoðun léttra bifhjóla í lög-
sagnarumdæmi Reykjavíkur.
Fimmtudagur 1. júlí R-1 tilR-300
Föstudagur 2. júlí R-301 til R-600
Mánudagur 5. júlí R-601 til R-900
Þriðjudagur 6. júlí R-901 til R-1182
Skoðunin verður framkvæmd fyrrnefnda daga
viö bifreiöaeftirlitið að Bíldshöfða 8, kl. 08.00 til
16.00.
Sýna ber við skoðun, að lögboðin vátrygging sé í
gildi. Tryggingargjald ökumanns og skoðunar-
gjald ber að greiða við skoðun.
Skoðun hjóla, sem eru í notkun í borginni, en
skrásett eru í öðrum umdæmum, fer fram fyrr-
nefnda daga.
Vanræki einhver að koma hjóli sínu til skoðunar
umrædda daga, verður hann látinn sæta sektum
samkvæmt umferðarlögum og hjólið tekið úr um-
ferð hvar sem til þess næst.
Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinii í Reykjavík,
25. júni 1982.
HVÍTIR REIMAÐIR
Sumarskór
Stærðir: 36—41.
Póstsendum
Uaugavegi 89. Sími 22453.
Áusturstrœti 6. Sími 22450.
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ og Páll Sigurjónsson formaður VSI takast í hendur eftir að samningar voruundir-
ritaðir í gærmorgun. Á milli þeirra stendur Guðlaugur Þorvaidsson ríkissáttasemjari og bak við þá Gestur Jónsson.
DV-mynd GVA.
Samningur
ASÍ og VSÍ
I dag tekur gildi samningur sá sem
undirritaður var í gærmorgun milli
Alþýðusambandsins og Vinnuveit-
endasambandsins meö venjulegum
fyrirvara umsamþykkifélagsfunda.
I samningnum er gert ráð fyrir að
öll laun hækki í dag um 4%. Þá verða
starfsaldurshækkanir samræmdar og
PANTANIR
SÍMI13010
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.
Húsbyggjendur - leiga - tilboð -
steypumót - loftmót
Tökum að okkur alls konar verk í uppslátt og steypu á veggj-
um og loftum, grunnum o.fl. Einnig gerum við tilboð í jarð-
vegsskipti og útvegum fylliefni. Gerum tilboð samkvæmt
teikningum.
Fljót og vönduð vinna, unnin af fagmönnum.
Framtíðarhús hf. Símar: 11614 og 11616.
SUMIR VERSLA DÝRT -
AÐRIR VERSLA
HJÁ OKKUR
Tómatar Agúrkur Paprika
'HVso ÍQo° ">Q.50
^jjpr.kg. ^jjpr.kg.
NÝR LAX Ný egg AjC
DAGLEGA x----x “Vf
AUSTURSTRÆTI 17
STARMÝRI 2
— fyrirvari settur
um uppsögn ef
samið verður
við BSRB
um meiri
launahækkanir
miðist viö starf innan sömu starfs-
greinar, þannig að hækkanir miðað við
byrjunarlauaverðieftirfarandi: eftirl
ár 2,5%, 2 ár 5%, 3 ár 7,5% og 5 ár 10%.
Þann 1. marz næstkomandi komi til
nýtt starfsaldursþrep er miðist við 6
ára starf í sömu starfsgrein, þar af t vö
síðustu árin hjá viðkomandi vinnuveit-
anda og veröi laun þá 12.5% hærri en
byrjunarlaun viðkomandi launaflokka.
Hins vegar munu þeir sem njóta
meiri starfsaldurshækkunar á
viðkomandi starfsaldursþrepi en
samningurinn gerir ráð fyrir, halda
þeirri hækkun þar til næsta starfs-
aldursþrepi samkvæmt nýja
samningnum er náð. Þar segir einnig
að þar sem síðast gildandi samningar
kveði á um meiri starfsaldurs-
hækkanir á lokaþrepi. skulu þær hald-
ast óbreyttar.
Næsta launahækkun kemur síðan
1. janúar á næsta ári, en þá flytjast
allir launþegar upp um einn launa-
flokk. Hlutfallslegt bil milli byrjunar-
launa hvers launaflokks helzt hins veg-
ar óbreytt. Á sama tíma er gert ráð
fyrir að lágmarkstekjur hækki um
2%.
Ákvæðisvinnutaxtar munu taka
sömu hlutfallslegu breytingum og
tímavinnutaxtar við sömu eða sam-
bærileg störf eftir fyrstu starfsaldurs-
hækkun. Undanskildir að þessu leyti
eru þó síldarsöltunarsamningar.
Um greiðslu verðbóta á laun segir
að draga skuli 2,9% frá útreikningi
verðbótavísitölu 1. september næst-
komandi. Viðræðum um nýtt
viðmiðunarkerfi verðbóta verður fram
haldið í viðræðunefnd ríkis-
stjórnarinnar.
I síðustu grein samningsins segir aö
hann gildi til 31. ágúst 1983, en sé
uppsegjanlegur af hálfu beggja aðila
með eins mánaðar fyrirvara. Sé
honum ekki sagt upp framlengist hann
um þrjá mánuði í senn meö sama
uppsagnarfresti.
Kaupgjaldsákvæðum samningsins
er heimilt að segja upp á samnings-
tímabilinu með eins mánaðar fyrir-
vara, ef annars vegar verða sett lög
sem breyta ákvæðum um greiðslu
verðbóta á laun eða hins vegar ef
launahækkanir í aðal- og sérkjara-
samningum opinberra starfsmanna
verði meiri en í sarriningi ASI og VSl
felast.
t
-ÓEF.