Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Qupperneq 19
DAGBLAÐIÐ & VISIR. FIMMTUDAGUR1. JULI1982. 19 Menning Menning Menning Menning Kjarval á Kiarvalsstöðum Af trönum Kjarvals nefnist ein af listahátíðarsýningum Kjarvalsstaða, þar sem leitast er viö aö útbúa „fræðandi” sýningu sem sýni þróunar- feril listamannsins. Góð hugmynd Þessi sýning er verulega snjöll hug- mynd og sannarlega var kominn tími til að umbreyta hinu hefðbundna sýningarformi, þar sem listaverkum er oft aðeins raðað upp á smekklegan hátt. Hér er gerö tilraun til að stokka upp og búa til eitthvað umhverfis verk meistarans. Sléttur veggflötur sýningarsalarins er brotinn upp í harmóníkuvegg og ljósmyndir af málverkum listamannsins klipptar út úr listaverkabókum og raðaö haglega innan sameiginlegs ramma. Innan hvers ramma eru því nokkrar myndir af myndum Kjarvals sem eiga að vera einkennandi fyrir ákveðin tímabil í ferli listamannsins. Lestrarstefnan er síðan gefin aðallega með tilvitnunum í ágætan texta Bjöms Th. Björnssonar. Jú, þetta er góð og skemmtileg hug- mynd, svo langt sem hún nær. En því miður vantar nokkur atriði: engin ná- kvæm ártöl, engar stærðir, engin skil- merkileg innbyrðis tengsl milli mynda, ekkert er gert til að aðgreina skissu frá fullunnu verki, ekkert er gert til að sýna breytingar frá skissu til fullgerðrar myndar eða á milli STENSILL ÓÐINSGÖTU 4 -REYKJAVÍK - SIMIZ4250 FJÖLRITUN LJÓSRITUN VÉLRITUN verka. Áhorfandinn stendur því hálf- ruglaður framan viö ,,hiö listræna ferli” meistarans. Verkunum hefur að- eins verið raöað upp í nokkuö sam- fellda tímaröö eins og reyndar er gert þegar um hefðbundnar yfirlitssýning- ar er að ræða. Flott hugmynd, en hér vantar þó augljóslega nákvæmari vinnubrögð. Ráðstöfun I hinum enda salarins em síðan mál- verk eftir Kjarval í eigu Kjarvals- staða, sem faglega er stráð á veggina — portrettin sér. Satt að segja er erfitt aö finna nokkum þráð í þessari Myndlist Gunnar B. Kvaran sýningu. Allt virðist þetta fremur til- viljunarkennt, og maöur fær það á til- finninguna að sýningin hafi ekki veriö „byggð upp”, heldur hafi spumingin aðeins verið að ráöstafa því sem til er. Meö ögn fræðilegum aðferðum hefði ömgglega mátt gera góða hluti. I raun hefi sýningamefndin mátt ganga enn lengra í því aö umbreyta hinu hefð- bundna sýningarformi og búa til eins- konar „Kjarvals smiðju”, þar sem all- ar upplýsingar varðandi verkin kæmu fram. Þá hefði einnig verið hægt að setja inn blaðaúrklippur og ljósmyndir um listamanninn og tíma hans. Þá hefði einnig verið hægt að setja í gang slætukassa eða videcnsjónvarp, þar sem rætt væri viö samtímamenn lista- mannsins eða að boðið væri upp á fræðilega úttekt á verkum Kjarvals. Og þá hefði kannski verið hægt að gefa sýningargestum tækifæri til að fletta og rýna í blöð, tímarit og bækur sem komiö hafa út og fjalla um listamann- inn, — þannig hefði kannski mátt gæða harmóníkuvegginn örlitlu lífi. Kjarval er Kjarval En þrátt fyrir allt er Kjarval ávallt Kjarval, einn af fáum íslenskum lista- mönnum með ákveðinn og skýran listpersónuleika. En þessi listpersónu- leiki hefur ekki mótast átakalaust, við sjáum að listamaðurinn á fjölbreyti- legan feril, hann hefur leitað víða, reynt margt áður en hann fann sinn persónulega stíl, sem er í raun ekki fyrr en á síöari hluta 4. áratugarins og í byrjun 5. áratugarins, þegar lista- maðurinn byrjar að sundurgreina náttúrunna í smæstu eindir og lætur síðan auga áhorfandans um að bianda myndyfirborðið í eina sjónræna heild. I myndum frá þessum árum nær lista- maöurinn af mikilli snilli aö tjá og túlka íslenska náttúru og draga fram fíngerðan og smávaxinn gróður lands- ins, einnig sem landslagið getur verið hlaðið kynjaverum. Víst er að enginn er svikinn af þess- ari sýningu, myndimar standa fylli- lega fyrir sínu og tala jafnt til allra. GBK. |H BETA MYNDBANDALEIGAN | SgJ Barónsstíg 3, viö hliöina á Hafnarbíói. Opnaö næstu daga. Geysilegt úrval af 1. flokks efni. VHtþúverða þinneigin bíóstjórí? ^SAiMYOgggEl myndsegulbandstæki Ótrú/egt verð. Kr. 14.900.- gegn staðgreiðs/u. Gunnar Ásgeirsson hf. Sudurlandsbraut 16 Simi 9135200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.