Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1982, Qupperneq 15
DV. FÖSTUDAGUR 6. ÁGUST1982.
15
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
S*22ir
,Hótel Saga er vin i eyðimörkinni,” segir bréfritari.
Hótel Saga:
„V/n ireykvísku skemmtanatífí”
E.A. 1789-9538 skrifar:
Mig langar með þessu stutta bréfi að
vekja til umræöu skemmtanamál full-
orðins fólks á höfuðborgarsvæðinu um
þessarmundir.
Okkur hjónunum þykir bæði gaman
og gott að geta fariö eitthvað út um
helgar og þá helzt á þægilegan og
skemmtilegan stað. Undanfamar
vikur hefur framboð á skemmtunum
fyrir fólk á okkar aldri verið alltof lítið,
og er það miöur. Leikhúsin eru í sum-
arleyfi og þeir skemmtiflokkar sem
höfuðstaöurinn hefur getað státað af
eru nú á þeysingi um landið þvert og
endilangt.
Því bar svo við að um síðustu helgi
fengum viö hjónin óvæntan glaöning.
Veðrið var svo gott að við ákváöum að
fara eitthvaö út að skemmta okkur og
varð Hótel Saga fyrir valinu því
reynslan hefur kennt okkur að þar er
hægt að vera í skemmtilegum félags-
skap og hlusta á tónlist við okkar hæfi.
Við innganginn var okkur sagt aö við
þyrftum að greiöa smá aukagjald
vegna þess að það væri sýning á kabar-
ett í Súlnasalnum. Nú urðum við hissa
því að viö áttum ekki von á neinu slíku.
Við héldum sem sagt að allir skemmti-
kraftar væru úti á landi og við þyrftum
að láta okkur leiðast hér í bænum.
En raunin varð svo sannarlega
önnur því að frá því að kabarettinn
hófst og þar til honum lauk máttum við
vart mæla fyrir kátínu og hlátri.
Því vil ég nota þetta tækifæri til að
þakka aðstandendum þessarar
skemmtidagskrár og um leið að
hvetja það fólk sem situr heima og
heldur að því þurfi aö leiðast til þess
að notfæra sér þessa vin í reykvísku
skemmtanalífi.
ÞESS VEGNA
KVENNA-
A THVARF
Eftirfarandi bréf hefur borizt frá
kynningarhópi samtaka um kvennaat-
hvarf:
Kynningarhópur samtaka um
kvennaathvarf vill gera eftirfarandi
leiðréttingu og athugasemdir við skrif
Herberts Guðmundssonar í DV þann
20.7. ’82.
Þörfin á að stofna kvennaathvarf
hefur verið til umræðu hér á landi í að
minnsta kosti 4 ár en ekki einungis að
undanförnu. Sú þörf er staðfest í niður-
stöðum könnunar sem gerð var á of-
beldi í heimahúsum. Könnunin var
unnin úr skýrslum slysadeildar Borg-
arspítalans yfir áriö 1979 af Hildigunni
Olafsdóttur afbrotafræöingi, Sigrúnu
Júlíusdóttur félagsráögjafa, og Þor-
gerði Benediktsdóttur lögfræðingi.
Þessar niöurstöður voru kynntar á
stofnfundi um kvennaathvarf 2. júní
s.l. og þær birtast í næsta tölublaði
tímaritsins Geðverndar. Þar kemur í
ijós að íslenzkir karlmenn eru því
miður engir eftirbátar kynbræðra
sinna í Skandinavíu hvaö snertir mis-
þyrmingar á sambýliskonum og eigin-
konumsínum.
Kynningarhópur samtaka um kvennaatbvarf heldur því fram að því miður séu ís-
lenzkir karlmenn engir eftirbátar kynbræðra sinna í Skandinavíu hvað snertir
misþyrmingar á sambýliskonum og eiginkonum sínum.
Ágúst
m í" 2 m 3 M 4 F S F 6
í 9 10 11 mm 13
16 17 18 iiii 20
23 24 25 26 27
1301 31 Igllf |l 11
L
li
Ferdaáætlun SAS DC-8 flugs til Narssars-
suaq og Kaupmannahafnar. Hafid sam-
band við ferdaskrifstofurnar, eda SAS,
Laugavegi 3,2 hæð
- Búnadarbanka-
húsinu - símar:
21199/22299.
S4S
FÖSTUDAGSKVÖLD
IJIIHUSINU11JUHUSINU
OPK) DEILDUM TIL KL10 I KVOLD
Fullt hús matar
Munið okkar stóra
og
Lokað laugardaga f sumar.
MATVÖRUR RAFLJOS
FATNAÐUR REIÐHJÓL
HÚSGÖGN
RAFTÆKI
JIBí
'A A A A A A »■
CCj 23 I—: Cj l_í EUtJQtjLj ■
LiL_JL_
lUHriUUHHIillÍllllii
Jón Loftsson hf. __
Hringbraut 121 Sími 10600