Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1982, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1982, Side 4
4 DV. LAUGARDAGUR14. AGUST1982. Enn um bókmenntir nm og eftir spíritista: Sé tilvernstigid liátt t þessari grein, sem er nokkurn veg- inn sjálfstætt framhald greinar sem birtist hér um síðustu helgi, verður fjallað um lækningasögur spiritista, hugmyndafræðina sem birtist i dul- rænum frásögnum og Örlítið vikið að afstöðu þeirra Þórbergs Þórðarsonar og Halldórs Laxness til spíritismans. Lækningarnar Sögur um lækningar eru stofninn í bók Eiriks Sigurðssonar, Skyggna kon- an, sem fjallar um Margréti frá öxna- felli. 1 bókunum um Láru og Hafstein miöla er lækninga getið. Það er hins vegar athyglisvert að lækningartil- raunar Indriða miöils er ekki getið í bókinni um hann. Tilraunin olli miklu fjaðrafoki á sínum tíma en þótti ekki takastvel. Margrét hafði á sínum snærum framliðinn lækni, Friðrik að nafni, sem sá um lækningarnar. Mjög mikið var leitað til hennar, bæði af sjúklingunum sjálfum og aðstendendum þeirra. Form frásagnanna af þessum lækn- ingum er mjög fast. Sjúklingurinn hef- ur yfirleitt leitað til jarðnesks læknis án þess aö fá bót meina sinna. Þá er honum bent á Margréti. Oft er þess getið að hann hafi haft litla trú á þessu ai látið þó til leiðast Lækning veröur yfirleitt algjör. 1 meiri hluta frásagn- anna er þess getið að sjúklingur hafi á einhvern hátt orðiö lækningarinnar var. Margir vitna um að lækningin hafi orðiö án þess að þeir vissu að hennar væri leitað. „Hann strýkur hana.. Meiri hluti þeirra sem verða lækning- arinnar varir er konur, eða 22 á móti 5 körlum. „Huldulækningin” er óljóseft- irmynd jarðneskrar lækningar. Oft er getið um notkun einhverra dularfullra áhalda sem hafa einkennileg áhrif: „Þá kom hann með dökkt, kringlótt áhald og lagði á sárið. Fannst mér það verka svæfandi á mig, og enda eins og kæmi þoka í herbergið.”(Skyggna kon- an, bls. 214 ) Sumir þurfa meira: „Eina nótt finnst henni hún vakna um klukkan tvö og sjá hurðina opnast og mann koma inn með tösku í hendinni. — Svo snýr maðurinn sér að töskunni, festir eitthvað á rúmgaflinn, sviptir af henni sænginni og fer að strjúka hana. Hann strýkur hana niður brjóstin og kviðarhoÚð, fastar og fastar. Hún fann mikið til á meöan á þessu stóð. — Ekki vissi hún, hvaö það var, sem hann hafði á rúmgaflinum, en datt í hug ljós- lækningatæki. (Skyggna konan, bls. 148-9 ) Hér er augljós lotningin fyrir lækna- stéttinni með sínar dularfullu aðgerðir og tæki. Alls konar ljóslækningatæki eru mjög algeng í þessum frásögnum. Má ef til viU rekja það til þess að þá var röntgentæknin nýkomin tU sögunn- ar og menn bundu miklar vonir við geislalækningar. Sókn eftir sjúkdómum? Margt það fólk sem vitnar um lækn- ingar hefur mikið yndi af að segja frá sjúkdómum sínum. Þennan áhuga á sjúkdómum áUtur sálar- og félags- fræðingurinn Erich Fromm sérstakt taugaveiklunareinkenni nútíma- mannsins: „I vissri gerð taugaveiklun- ar er að finna hneigð tU að verða lík- amlega veikur og bíöa, meðvitað eða ómeðvitað, eftir sjúkdómi eins og guös- gjöf. Oft leiðir þetta tU slysa sem ekki hefðu orðiö ef ekki hefði verið að verki ósjálfráð hneigð tU að lenda í þeim.” (The Fear of Freedom, London 1975, bls. 123.) Samfara þessu er svo sterk hneigð tU að geta gefið sig einhverjum á vald, þurfa ekki sjálfur að taka á sér ábyrgðina. Eg held að þessa hneigð megi greina hjá sumum þeirra sem leita sér huldulækninga. SjúkUngurinn þarf ekkert að gera annað en trúa, þarf í raun ekkert að leggja á sig sjálfur og getur gefið sig fullkomlega á vald hinu óþekkta. Hugmyndafræðin Hér nota ég hugtakið hugmynda- fræði í merkingunni kerfi skoðana sem einkennir sérstaka stétt eða hóp manna, bæði meövitað og ómeðvitað. Kristindómurinn Einn veigamesti þátturinn í hug- myndafræði spiritista er hinn hefð- bundni kristindómur. I öUum bókunum er það algengt að fólk vitni um kristna trú sína um leið og trúna á miðlana. Sálmasöngur og bænalestur á miðils- fundum hafa gefið þeim kristilegt yfir- bragð og komið í veg fyrir að á þá væri Utið sem syndsamlegt kukl. Þá má ekki gleyma því að hluti prestastéttar- innar aðhyUtist spíritisma. Þaö er auðséö að Hafsteinn og Margrét eru mjög háð öllum kristnum dómum og bera mikla lotningu fyrir þeim. Margrét segist hafa séð Krist sjálfan í e.k. kirkju þar sem var hörpu- sláttur og bjöUuhljómur. (Skyggna konan bls. 64.) Hún sér konur viöaltari sem tákna fyrir henni Mörtu og Maríu. (Sama rit, bls. 65—66.) Þeir sem leita til hennar leggja áherslu á kristUegt hugarfar hennar og heita trú: „Hún er trúkona í þess orðs beztu merkingu, trúir kenningum Jesú Krists um eilíft Uf, mátt bænarinnar og helgi sannleik- ans.” (Sama rit, bls. 166.) Á Margréti er þannig litið sem sporgöngumann Krists. Sýnir Hafsteins miðils við andlát og útför Einars H. Kvarans eru fuUar af kristnum hugmyndum og hlutum. Hann sér t.d. kapeUu með altari, klæðum, dúkum og stjökum og vængj- aöar engilverur. (MiðUlinn Hafsteinn Bjömsson I, bls. 20—21 ) Þessi lotning fyrir hlutum og táknum tengdum kristninni minnir á katólsku. Sama er á kreiki í hinni sterku trú manna á aö kraftaverk gerist enn. Lára og Lidriði virðast ekki jafnháð kristnum hugmyndum. Þó verður þeirra vart í frásögnum af fundum Indriða. Þetta er haft eftir draugnum Jóni Einarssyni: ,,Hann kvaöst vera í neðsta víti og ganga á glóandi brenni- steini, og þeir væru alltaf á eftir sér þarna úr efri byggðum.” (Indriði miðill, bls.39 ) Þarna er hin gamla helvítishugmynd lifandi komin. Annars má vel vera að frásögnin sé þarna eitthvaö krydduð af skrásetjaranum. Hversdagslrfið Annar mikilvægur þáttur í byggingu hugmyndafræðinnar er tengslin við hversdagslífið. Hinn jarðneski þáttur fundanna hefur laðað fólk að og gert það opnara fyrir því sem geröist og ófeimið. Sama gildi hefur það að láta fólk hvaöanæva að vitna um reynslu sína. Þetta vekur hjá fólki þá trú aö þetta séu fyrirbæri sem hent geti hvern sem er. Þetta getur líka orðið til þess að fólk fari aö túlka atvik úr eigin reynslu sem dulræn fyrirbæri, nokkuð sem það hefði ekki gert annars. Bókmenntirnar Hugmyndir úr bókmenntum gægjast víða f ram, þó að erfitt sé að f esta hend- ur á þeim. Eg hef það á tilfinningunni að hugmyndir þeirra Láru og Margrét- ar um álfa séu nokkuð litaðar erlend- um áhrifum, þá frá ævintýrum. Þannig talar Margrét um e.k. blóm-' álfa og ljósálfa (Skyggna konan, bls. 53), tröllaukna loft- og náttúruanda (bls. 55) og búálf (bls. 56). Lára talar um skógarálfa, blómálfa og búálfa sem virðast greinast aö eftir stærö og búningi. (Lára miðill, bls. 173—4.) Hér sjáum við enn viðleitni spiritistanna til að sýna fram á að dularfullu fyrir- brigðin séu allt í kringum okkur. I rauninni viðurkenna þeir öll þau. fyrir- brigði sem hafa verið rakin tU þjóðtrú- ar og þar með ímyndunar fólksins; þetta á aUt aö hafa átt sér stað og gera það enn. I dulrænum frásögnum er viss tU- hneiging tU að gefa efninu skáldlegt yfirbragð. Stundum verður þetta að hálfgerðu „melódrama”. Gott dæmi um þetta er lýsingin á því er „franska söngkonan” hans Indriða hittir fyrr- verandi eigmmann sinn í fyrsta sinn eftir dauöann. (Indriði miðUl, bls. 79— 81 ) Hjúin voru skiUn og því urðu engir fagnaðarfundir. Því er ekki að neita að það er af þessu dáUtið reyfaralegt bragö. Vísindin Spíritistar bentu sí og æ á upp- götvanir og þróun í raunvísindum máli sínu til stuðnings. Þeir töldu þaö kenn- ingu sinni mjög til gUdis að virtir vís- indamenn væru að rannsaka fyrirbær- in. Eitt aöalvopnið í baráttunni fyrir vísindalegri viðurkenningu var svo- kaUað útfrymi eöa ektoplasma, dular- fullt efni sem miðlar áttu að geta fram- leitt í vissu ástandi. Þórbergur Þórðar- son gerir mUdö úr því í formála sínum aö Indriða miðU. Eg fletti aö gamni mínu upp á fyrirbærinu í Handbook of Parapsychology (New York 1977). Þar er þess eingöngu getiö í sambandi við spíritismann, svo að eitthvað virðist það hafa faUið í áUti hjá vísindamönn- um. Smásjáin og það sem hún opnaði mönnum er notað sem hálfgUdings sönnun fyrir dularfuUum fyrirbærum. Sveinn Víkingur segir í formála að / Heimsljósi Halldórs Laxness er að finna frábœra skopstælingu af miðtfs- fundi. Sá sem talar þer i gegnum miðiiinn er „Friðrik huldulœknir i öðrum heimi". ars þegar hann dró saman þá vitneskju sem hann hafði aflað sór um af- leiðingar þessa iifs i hinu. Textt: Helga Jónsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.