Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1982, Blaðsíða 32
Frjáist, óháð dagblað
Fékk Grace
slag undir
stýri?
Hin sautján ára gamla Stefanía
prinsessa, sem ekki hefur ökuleyfi
(aldursins vegna), mun hafa gert
örvæntingarfulla tilraun til þess að
taka við stjórn á bifreið fjölskyld-
unnar þegar móðir hennar, Grace
furstafrú, sem sat undir stýri, fékk
slag.
Nýjar skýringar eru nú að koma
fram á tildrögum slyssins og þeim
orðrómi að Stefanía hafi ekið bifreiö-
inni. Hún mun hafa reynt að draga úr
hraða bílsins, þegar móðir hennar
var ekki lengur við stjórnina, með
þ ví aö taka í handbremsuna.
Talsmenn fjölskyldunnar höfðu
áður sagt að bílslysiö hefði orðið
vegna þess að hemlar bifreiðarinnar
hafi bilaö. Þeir vilja ekki staðfesta,
að furstafrúin hafi fengið slag undir
stýri.
Löggan samþykkti
tilboð ríkisins
Um 300 lögreglumenn víðs vegar
af landinu komu saman á Hótel Sögu
síðdegis í gær til að ræða tilboö sem
ríkið haföi lagt fram í yfirstandandi
samningaviðræðum um sérkjara-
samning lögreglumanna. A fundin-
um var samninganefnd lögreglu-
manna gefin heimild til aö taka til-
boðinu.
I tilboöi ríkisins, sem kom fram á
samningafundi í gærmorgun, er
meðal annars gert ráð fyrir að allir
lögreglumenn hækki um einn launa-
flokk til viðbótar þeirri launahækkun
sem fékkst í nýgerðum kjarasamn-
ingi BSRB. Auk þess felur tilboðið í
Lögreg/umenn fjölmenntu á fund-
inn i gær tilað ræða kjaramái sin og
þeir sem voru i vinnu lótu það ekki
aftra sór fró mætingu. Þessir stóðu
i viðbragðsstöðu úti við dyr.
DV-mynd: EÓ.
sér nokkrar frekari flokkatilfærslur
og örari aldurshækkanir. Lögreglu-
menn féllu því frá því að grípa til rót-
tækra aðgerða í kjarabaráttu sinni
en rætt hafði verið um að þeir beittu
fjöldauppsögnum. Að mati samn-
inganefndar lögreglumanna hafa
þeir dregist verulega aftur úr öðrum
opinberum starfsmönnum í launum
á síðustu árum.
Að sögn Einars Bjamasonar, for-
manns Lögreglufélags Reykjavíkur,
kom f ram meiri samstaöa meðal lög-
reglumanna á fundinum en búist
hafði verið við og hafði ekkert mótat-
kvæði komið gegn þeirri tillögu að
taka tilboði rikisins enda þótt það
væri langt frá því sem allflestir
hefðu viljað sætta sig við. Sagði hann
að í tilboðinu fælist þó smávægileg
leiðrétting og góðar líkur á að samn-
ingar tækjust innan skamms. Enginn
samningafundur hefur enn verið
boðaður. ÓEF
—segir
Albert um
Lands-
virkjunar-
samninginn
Fró borgarstjórnarfundinum i gær. Davið Oddsson borgarstjóri til vinstri, Albert Guðmundsson, forseti borgarstjórnar, og i ræðustól er
Sigurjón Pétursson. Á minni myndinni er Ingibjörg Sólrún Gisladóttir, annar af fulltrúum Kvennaframboðs. Hún prjónaði um leið og hún
fylgdist með umræðum. DV-mynd: GVA.
Q Æ Æ RITSTJÓRN
1 SÍÐUMÚLA12-
AUGLÝSINGAR
SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR
SKRIFSTOFA
AFGREIÐSLA
ÞVERHOLTI 11
27022
— Sprungið basalt
tefur borunina
Borun rannsóknarholunnar á
Flatey á Skjálfanda gengur heldur
hægt, enn sem komið er, samkvæmt
upplýsingum Guðmundar Sigurös-
sonarhjá Jarðborunum ríkisins.
Borun holunnar hófst á föstudag-
inn, eins og sagt var frá í DV á mánu-
daginn. Á þriðjudaginn var borinn
kominn á um 30 m dýpi en sprungið
basalt hefur gert borunina tafsama.
Að öllu eðlilegu á borinn að bora um
20 m á dag, með núverandi vinnu-
fyrirkomulagi, en fyrirhugað er að
taka upp vaktavinnu viö borunina
eftir næsta helgarfrí. Veröi þaö úr
ætti jarðborinn Drifandi að bora um
30 m á sólarhring ef allt gengur vel.
Bormennimir halda í helgarfrí á
föstudaginn. -GS/Akureyri
Innbrotíbíl
á Brávallagötu
Rannsóknarlögreglunni var til-
kynnt um innbrot i Mazdabíl við Brá-
vallagötu klukkan sjö i gærkvöldi.
Ekki er vitaö nákvæmlega hvenær
brotist var inn í bílinn en segulbands-
tæki og nokkrum kassettum var
stolið úr bilnum. Ekki var það látið
duga þvi megnið af því bensíni sem
var á bilnum var einnig tekið. Málið
er óupplýst. -JGH.
„Þetta er andstætt öllu því sem ég
hef haldiö Sjálfstæðisflokkinn stefna
að,” sagði Albert Guðmundsson,
borgarfulltrúi og þingmaður Reyk-
víkinga, um Landsvirkjunarsamn-
inginn svokallaða sem samþykktur
var í borgarst jórn í gær.
Albert var sá eini sem greiddi at-
kvæði gegn samningnum en átján
fulltrúar samþykktu. Tveir sátu hjá,
fulltrúar K vennaf ramboðs.
„Ástæðan er sú að það er verið að
setja yfir á herðar Reykvíkinga
ábyrgð á því að reisa og reka virkj-
anir, ábyrgð á erlendum Iánum sem
tekin eru til aðstandaundirþessum
framkvæmdum. Einnig koma inn í
þetta byggðalínur og fleira,” sagði
Albert um andstööu sína.
Albert sagði að Reykvíkingar, sem
beinir eignaraöilar og óbeinir í gegn-
um rflcið, bæru um 70 prósent ábyrgð
á Landsvirkjun. Albert sagði enn-
fremur að sú miðstýring, sem fælist í
Landsvirkjun, væri andstæð stefnu
Sjálfstæðisflokksins. Hann sagði aö
allir borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins hefðu á sínum tíma verið
sammála um landshlutaorkufyrir-
tæki. „Nú hefur þetta eitthvað snú-
ist,” sagði Albert.
-KMU.
NÝJA
AGFAFILMAN
ÓTRÚLEGA SKÖRP
OGNÆMFYRIR LITUM
ÓDÝRARI FILMA SEM
FÆST ALLS STAÐAR
„Olíuleitin”
íFlatey
gengur hægt
LOKI
Nú vill íhaldið Lands-
virkjunarsamninginn.