Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1982, Page 6
6
DV. MANUDAGUR4.OKT0BER 1982.
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í eftirfarandi: RARIK—
82044.132 kV Suðurlína, forsteyptar undirstööur, svæöi 0.
I verkinu felst framleiösla á forsteyptum undirstööum og stagfestum
ásamt flutningi á þeim til birgöastööva. Fjöldi eininga er 875, magn
steypu 420 m3 og járna 44 tonn. Verkiö er hluti af byggingu 132 kV línu
frá tengivirki viö Hóla í Hornafiröi aö tengivirki í Sigöldu.
Verki skal ljúka 1. apríl 1983.
Opnunardagur: Mánudagur 18. október 1982 kl. 14:00.
Tilboöum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi
118,105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og veröa þau opnuð aö viöstödd-
um þeim bjóðendum er þess óska.
Utboösgögn veröa seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins,
Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og meö mánudeginum 4. október
1982 og kosta kr. 200,- hvert eintak.
Reykjavik 30. september 1982
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
FRAM
TÖLVUSKÓLI
TÖLVUNÁMSKEIÐ
Tölvuskólinn Framsýn innritar nú á
almenn grunnnámskeiö er hefjast í
byrjun október.
Nánari upplýsingar í síma 39566 milli kl. 13
og 18.
Tölvunám er f járfesting í framtíð þinni.
TÖLVUSKÓLINN FRAMSÝN, SÍÐUMÚLA 27,
PÓSTHÓL.F 4390,124 REYKJAVÍK, SÍMI: 39566.
Til sölu
BMW 520 árg. 1980
BMW 518 árg. 1980
BMW 518 árg. 1977
BMW 323i árg. 1981
BMW 320 árg. 1980
BMW 316 árg. 1980
BMW 320 árg. 1981
BMW 320 autom. árg. 1980
Renault 20TL árg. 1978
Renault 20TL árg. 1977
Renault 18TS árg. 1980
Renault 18TL árg. 1979
Renault 14TL árg. 1978
Renault 14TL árg. 1977
Renault 12TS árg. 1978
Renault 12 station árg. 1979
Renault 12TL árg. 1977
Renault 5TL árg. 1973
Renault 4 Van árg. 1977
Renault4 Van árg. 1978
Renault 4TL árg. 1980
Opið:
laugardaga ki. 1—6.
Cf?hPT
[I^achines
Ti/MKRIT i
á ensku
fiQKA
HUSIÐ
LAUGAVEGI 178 sími 86780
L KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
Neytendur Neytendur Ne
Sitthvað
um
sláturgerð
Þessi töng er hentug til að loka pokunum. Hún kostar 72.25, 120 stykki
af stáihringjum kosta krónur 10.60, en einn hring þarf tii að loka
hverjum poka. DV-myndirGVA
Innmat er hægt að kaupa ilausasölu, kilóverð i Hfur er 50 kr., hjörtu og
nýru kosta 41 krónu kilóið.
AUt sem þarf til sUturgerðar, einnig eru
Sláturtíðin er hafin og eru margir
þegar búnir að setja birgðir í frysti-
kisturnar. Slátursala fer fram í
Afurðasölunni á Kirkjusandi þó mest
fyrir þá sem hafa þar frystihólf. Þar er
slátrið afgreitt í kössum, 5 slátur á 325
krónur og 3 slátur á 195 krónur.
Afgreiðslan stendur yfir frá klukkan
13—18 virka daga. Sláturfélag Suður-
lands er með slátursölu á tveimur
stöðum, í Sparimarkaði SS Austurveri
og í Kjörbúð SS Iðufelli í Breiðholti.
Slátursala á vegum SS hefur í mörg ár
verið við Skúlagötu, en er nú hætt
vegna plássleysis.
Ekki þarf lengur að hafa þvottabala
með sér við sláturinnkaup eöa fötu
undir blóöiö. Allt slátur er nú afgreitt í
pokum og kössum. Hjá Sláturfélagi
Suöurlands er hægt aö kaupa allt í
lausasölu, eöa 5 slátur saman, sem
flýtir mjög f yrir afgreiöslunni.
„Algengasta er aö fólk taki 10—15
slátur,” sagöi Olöf Siguröardóttir sem
afgreiöir slátur í Sparimarkaðnum
Austurveri. „Það er heldur algengara
að konur kaupi inn, en karlmennimir
koma og kaupa aukavambir og blóö ef
vantar upp á. 5 slátur kosta tæplega
400 krónur og þá meö öllu sem með
þarf,”sagði Olöf.
Blm. tók niður verö á slátrinu. Kíló-
verö á sviöahausum er 35,35 krónur og
innmatur fylgir meö þeim. Blóö fyrir
fimm kíló kostar 6 krónur, það eru
rúmir þrír lítrar. Vambir eru á 8,80
stykkiö, eöa 44 krónur pokinn meö
fimm vömbum. 50 krónur kostar kílóið
af lifrinni í lausasölu, hjörtu og nýru 41
krónu kílóið, 10 krónur kilóið af
þindum og hálsæðar krónur 2,50.
Hrútspungar eru á 50 krónur kílóið.
Þá er þaö ýmislegt sem með þarf,
rúgmjöl, hafragrjón, salt og sumir
nota einnig rúsínur. Upplýsingar um
allt til sláturgerðar fást gefins hjá SS-
Austurveri, einnig er þar til
uppskriftabók sem kostar 29 krónur og
hefur aö geyma ótal sérréttatillögur í
sláturmatreiðslu. Sem dæmi má nefna
lambanýru á teini, nýmasmásteik í
hrísgrjónabúðingi, lambahjörtu meö
sveskjum, grillsteikta lambalifur og
fleira.
Mikilvægt i upphafi
sláturgerðarinnar
Markaðsnefnd landbúnaðarins hefur
dreift í verslanir blaöi sem ber heitiö
Dilkur. Þar skrifar Jenný Sigurðar-
dóttir mikla grein um sláturgerö,
einnig eru þar margar uppskriftir á
innmat og fleiri gagnlegar upplýsingar
eru þar umkindakjötið.
Fyrir þá sem aldrei hafa tekiö slátur
er vert að geta fáeinna atriða sem
kunna aö koma aö gagni. Þaö er mjög
mikilvægt að undirbúa sláturgeröina
vel áöur en hafist er handa, einnig
skiptir miklu máli á hverju er byrjað.
Mikilvægt er aö hafa allt tilbúiö þegar
blóði, haframjöli, rúgmjöli og mör er
blandaö saman. Þaö þolir enga biö því
gerjun hefst mjög fljótt þegar búiö er
aö blanda blóöi og mjöli saman, þá
rýma gæðin aö mun. Einnig er mikil-
vægt aö slátriö sé soöiö eöa fryst strax
aðlögunlokinni.