Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1982, Side 33
DV. MÁNUDAGUR 4. OKTOBER1982.
45
Sviðsliósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
ÁHUGIERLENDRA
TÓNLISTARMANNA
ÁAÐSPILAÁ
ÍSLANDIHEFUR
AUKIST TIL MUNA
—segja Ásmundur og GuðnS Rúnar
hjá Gramminu
Utgáfufyrirtækið Gramm við
Vesturgötu hefur verið nokkuö um-
svifamikið upp á síðkastið. Á dögun-
um kom út á vegum þess plata með
hljómsveitinni Jonee Jonee og einnig
kom í sumar út fjóröa platan með
Purrki Pillnikk sem útgáfan hefur
gefið út. En starfsemi Grammsins er
ekki einungis fólgin í hljómplötuút-
gáfu. I húsnæði Grammsins að
Vesturgötu 53 eru einnig seldar
hljómplötur sem þeir flytja inn. Og
síöast en ekki síst hefur Grammið
séð um tónleikahald erlendra lista-
manna hér á Iandi, til að mynda tón-
leika Eyeless in Gaza og Comsat
Angelsnúísumar.
Aðaldrifsprautan í Gramminu er
Ásmundur Jónsson, en hjá Gramm-
inu starfa ýmsir sjálfboöaliöar að
þeim verkefnum sem fengist er við
hverju sinni. Meðal þeirra sem
starfa þannig við Grammiö er Guðni
Rúnar Agnarsson, en hann og
Ásmundur hafa síðastliðinn 7—8 ár
séö um þáttinn Áfanga í útvarpinu.
Blaðamaður DV hélt til fundar við
þá Ásmund og Guðna í höfuðstöðvar
Grammsins við V esturgötu.
Ásmundur var inntur eftir því
hvað væri á döfinni hjá Gramminu.
Hann sagði að Grammið hefði þegar
gefið út 4 plötur meö Purrki Pillnikk,
sú síðasta kom út í sumar, og einnig
væri komin út plata með Jonee
Jonee. Á næstunni kæmu svo plötur
meö Vonbrigðum og Þorsteini
Magnússyni. Og enn síðar er ráögert
að gefa út plötur með Askeli Mássyni
og Sveinbirni Beinteinssyni. Og ekki
má gleyma því að unnið er áfram að
tónleikahaldi.
Eg spurði hvert væri markmiðið
meö starfsemi Grammsins.
„Allt og í senn ekkert,” svaraði
Guðni. ,,I raun er engin ástæða til að
skilgreina þessi markmið. En það er
sífellt verið að stefna að þeim. Við
vonum auðvitað að starfsemin gefi
af sér einhvern arð, en hann fer ekki
í velsæld okkar heldur til að gera
eitthvaðmeira.”
Næst barst talið að tónleikahaldi
Grammsins. Guðni taldi að það væri
grundvöllur fyrir tónleikahaldi eins
og Comsat Angels og Eyeless in
Gaza. Að vísu heföi orðið nokkurt tap
á þeim, en þaö heföi veriö vegna
utanaökomandi ástæöna. Comsat
Angels hefðu til dæmis ætlað að
koma hingað í sambandi við Banda-
ríkjaferð en oröiö að f resta því vegna
veikinda bassaleikarans. Því hefði
orðið aö kaupa sérstaklega ferö und-
ir þá. Og vegna frestunarinnar uröu
aðsiandendur tónleikanna fyrir
barðinu á gengisfellingu og fleira í
þeim dúr. Ásmundur taldi að ef allt
heföi gengið eins og ætlast var til í
upphafi heföi þetta orðiö taplaust.
Guöni og Ási voru á einu máli um
aö það ætti aö vera grundvöllur fyrir
því að fá hingað erlendar hljómsveit-
ir, jafnvel svo oft sem einu sinni í
viku. Þeir sögðu að mikill áhugi væri
hjá aðilum erlendis að koma hingað
og spila. Ef kostnaði væri haldið í
lagmarki, t.d. aö hýsa hljómlistar-
menn í heimahúsum, þá væri þetta
hægt. „Þessi hópur, sem starfað hef-
ur í kringum Grammið, sýndi þaö á
tónleikunum í sumar að það er hægt
að gera svona án þess að mikið fé sé
fyrir hendi. Þetta fólk gerir ekki
kröfu til launa. Það sýndi sig í sumar
að fólk getur unnið saman að svona
verkefnum. En það er sorglegt að
það eru aðallega unglingar sem hafa
þörf fyrir tónlistarstarfsemi af þessu
tagi, þ.e. að þeir eru fúsastir til að
leggja eitthvað á sig til að þetta verði
aðveruleika.”
Draumur þeirra í Gramminu er að
takast á hendur innflutning á erlend-
um listamönnum í stórum stíl, þ.e.
að reyna að halda uppi mjög reglu-
legu tónleikahaldi. Þeir mundu þá
grípa gæsina þegar hún gefst, t.d.
þegar hljómsveitir eru á leiðinni til
og frá Bandaríkjunum. Þeir búast
við að það yrði 200—300 manns sem
kæmu á slika tónleika og segja að
það sé nóg. Það kom fram í máli
þeirra aö þeir eru ekki hrifnir af því
að vera að reyna að trekkja á slíka
tónleika. Þeir vilja helst kynna shka
tónleika einungis stuttlega í blöðum
og á auglýsingaspjöldum, og þá komi
einungis þeir sem finna hjá sér ein-
hverja raunverulega þörf til að sjá
tónlistarmennina hverju sinni.
ökuníðinga”
— mjöggóðurárangurafnotkunþess,
segir Hilmar Þorbjörnsson varðstjórí
Ásmundur Jónsson og Guðni fíúnar Agnarsson. Aðstandendur Grammsins hafa mörg járn i eldinum um
þessar mundir.
Grammiö hefur leitað hófanna
erlendis um að koma „sínum” plöt-
um á framfæri þar. Er þá ekki
einungis átt við þær plötur sem
Grammið hefur gefið út, eins er
ýmislegt haft með sem þeir hafa trú
á. Þeir í Gramminu hafa haft hönd í
bagga með dreifingu á Þeysplötunni
og eins komið plötum Purrks
Pillnikks í dreifingu hjá Crass merk-
inu. Ásmundur sagði að nokkur
áhugi virtist vera á þessu erlendis.
Grammið stefnir að því að komast
smátt og smátt í samband við fyrir-
tæki í ýmsum löndum sem taki að sér
aö dreifa plötum þess, hvert í sínu
landi.
Er Ási og Guðni voru spurðir að
því hvaða hljómsveitir kæmu næst til
landsins á þeirra vegum, sögðu þeir
aö það væri ekki fastmælum bundiö,
Ásmundur sagði að viðhorf
erlendra tónlistarmanna til tónleika-
halds hér heföi breyst gifurlega mik-
ið. Nú gerðist það æ oftar aö erlendir
tónlistarmenn sýndu áhuga á að
koma hingað, að eigin frumkvæöi.
Og auk þess hefðu ýmsir sem hér
heföu leikið látið í ljós áhuga á að
koma hingað aftur, t.d. The Fall og
Eyeless in Gaza.
Vegaeftirlitsmennirnir Lúðvik Eiðsson, Kari Magnússon, Sigurjón Pálsson, Steinn Karlsson og Óskar Ólason yfirlögregluþjónn.
Hiö fullkomna radartæki vegalögreglunnan
Ógnvaldur
og því höfum við haldið námskeið
fyrir lögreglumenn í vinnu við
radarana. Þetta eru mjög góð tæki,
en þau verða náttúrlega aldrei betri
en mennirnir sem þeim stjórna. En
árangurinn af notkun þessara tækja
ermjöggóður.
— Finnst þér hraðinn í umferðinni
vera meiri þessa dagana en oft áður,
eins og margir vilja halda fram?
„Eg veit ekki hvort hægt er aö
spyrja svona, en það eru alltof
margir teknir á miklum hraöa, og
þaðmjög miklum.”
Nú er feröamannatimanum úti á
landi lokiö og þá eru vegaeftirlitsbíl-
arnir fluttir nær höfuðborgarsvæð-
inu. Eins og mörgum ökumönnum er
kunnugt eru þessir bílar búnir full-
komnum radartækjum sem mæla
hraða bifreiða. En munurinn á
þessum nýju rödurum og þeim
gömlu er sá að nú geta lögreglubíl-
arnir mælt hraða bíla sem á móti
koma, enda þótt lögreglubíllinn
sjálfur sé á ferð.
DV sló á þráðinn tU Hilmars Þor-
björnssonar varöstjóra og rabbaði
við hann um umferðina og radarana.
„Jú, það má segja að þetta tæki sé
ógnvaldur ökuníðinga. En þetta eru
tæki sem eru vandasöm í meöförum Og þetta er sjálft radartœkið.
DV-myndir: S