Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1982, Qupperneq 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR 6. OKTOBER1982.
KVÍSLAVEITIJVEGUR BÆTIR
LEIDINA UM SPRENGISAND
væntanleg línulögn mun opna nýja leið úr Eyjafirði
Greiöfær vegur yfir hálendiö milli
Noröur- og Suðurlands, jafnvel hraö-
braut sem opin yrði stóran hluta úr
ári, hefur veriö draumur margra.
Ekki eru horfur á því að dreymendur
sjái draum sinn rætast en nú standa
yfir framkvæmdir sem væntanlega
koma til meö aö bæta mjög Sprengi-
sandsleiö.
Landsvirkjun er nú að byggja svo-
kallaöan Kvíslaveituveg vegna
áveituframkvæmda á hálendinu
milli Vatnajökuls og Hofsjökuls.
Veröur þetta uppbyggður og
traustur vegur enda ætlað aö taka
viö mikilli umferö vegna fram-
kvæmdanna.
Frá brúnni á Köldukvísl vestan
Þórisóss mun Kvíslaveituvegur
þræöa landið alla leið upp í
Háumýrar sem eru í austurátt frá
Arnarfelli. Mun vegurinn liggja
nokkru vestar en sú leið sem nú er
oftastfarin yfir Sprengisand.
„Eg tel Kvíslaveituveginn
skynsamlegan,” sagði Steingrimur
Ingvarsson, umdæmisverkfræöingur
Vegageröar ríkisins á Selfossi.
„Kvíslaveituvegurinn er mikiö
skemmtilegri leið en sú sem nú er
farin, mun gróöursælli og fallegri,”
sagöi Steingrímur. Taldi hann að
Vegagerðin myndi óska eftir aö fá aö
nota veginn.
Steingrímur sagöi aö slóöi sem
liggur frá Háumýri yfir í Nýjadal
(Jökuldal) myndi tengja Kvísla-
veituveginn við Sprengisandsleiöina.
Væntanleg linulögn Lands-
virkjunar yfir Sprengisand hefur
komið inn í umræöur um vegi og
slóöa milli Noröur- og Suðurlands.
Ákvöröun hefur ekki verið tekin um
þá línulögn né línunni valin leiö. Hins
vegar eru rannsóknir komnar vel á
veg.
Aö sögn Agnars Olsen, verk-.
fræðings hjá Landsvirkjun, er lík-
legast aö línan muni liggja frá
Hrauneyjafossvirkjun upp meö
Köldukvísl, fara yfir Köldukvísl
nokkru fýrir neöan brúna vestan
Þórisóss. Þaöan mundi línan liggja
sem næst Kvíslaveituveginum upp í,
Háumýrar. Síðan fylgja gömlu
Sprengisandsleiöinni, liggja töluvert
fyrir vestanFjóröungsvatn. ogsíöan
í stefnu á Bleiksmýrardal. Niöur
Bleiksmýrardalinn, yfir Gönguskarö
og yfir í Garösdal í Eyjafiröi.
Vegaslóði sá, sem gerður veröur
vegna línunnar, mun koma til með
aö nýtast feröalöngum. Opnast þar
■meö ný leiö frá Norðurlandi og upp á
Sprengisand, leiöin um Garösdal,
Gönguskarö og Bleiksmýrardal. Er
hún um 30 kílómetrum styttri en
leiðin um Bárðardal, sé ekiö frá
Akureyri.
Aö sögn Agnars Olsen mun Lands-
virkjun kom til með aö nýta Kvísla-
veituveginn sem kostur er vegna
línulagnarinnar.
Áætlaö er aö lagningu Kvíslaveitu-
vegar veröi lokið næsta haust.
Áætlanir um línulögnina gera ráð
fyrir aö framkvæmdir hefjist árið
1984 en ljúki áriö 1987. Sem fyrr
sagði, hefur endanleg ákvöröun ekki
veriö tekin um línulögnina. Meðal
annars er eftir aö ræða viö landeig-
endur og Náttúruvemdarráö.
I stórum dráttum má segja, ef fer
sem horfir, að framkvæmdir Lands-
virkjunar á hálendinu, milli Hofsjök-
uls og Vatnajökuls, muni koma
feröalöngum að gagni á tvennan
hátt. I fyrsta lagi meö 50 til 60 kíló-
metra greiöfærum vegi frá Þóris-
vatni upp á Sprengisand og í ööru
lagi meö sæmilegum vegarslóöa úr
Eyjafiröi yfir í Bleiksmýrardal og
þaðan upp á Sprengisand.
-KMU.
MÚSAVINIR VIUA
TOMMA OG JENNA
— Músa vinaf élagið f ordæmir kröf u
Kattavinafélagsins
, JMúsavinafélagiö” hefur sent frá
sér fréttatilkynningu þar sem for-
dæmd er harölega „furöuleg krafa”
Kattavinafélagsins umaöhætt veröi
sýningum á sjónvarpsþáttunum um
Tomma og Jenna. Fyrir hönd Músa-
vinafélagsins rita undir frétta-
tilkynninguna Haukur Már Haralds-
son formaður, Lárus Sólberg
Guðjónsson, formaður húsamúsa-
deildar og Guðlaug Haildórsdóttir,
formaöur hagamúsadeildar.
Hér fer á eftir fréttatiikynning
Músavinafélagsins:
Skyndifundur í fulltrúaráöi Músa-
vinafélagsins fordæmir harðlega
furöulega kröfu svokallaös „Katta-
vinafélags” um aö hætt veröi
sýningum á sjónvarpsþáttunum um
Tomma og Jenna. Einkum lýsir
fundurinn vanþóknun sinni og furöu
á því aö „kattavinir” skuli beita
fyrir sig uppgerðarumhyggju fyrir
börnum í þessu sambandi, ekki síst
meö tilliti til þess mikla hlutverks
sem músin hefur gegnt í uppeldi
barna hér á landi frá ómunatíð.
Nægir þar aö benda á hinn hugljúfa
og uppbyggilega þátt Lilla klifur-
félagsins á að mýs hafa lifað hér á
landi mun lengur en kettir og þreyö
þorrann og góuna ásamt tvífættum
ibúum þessa lands í hungri, kulda,
veröbóigu og öörum þrengingum,
svo lengi sem sögur herma, á
meöan kettir eru innflutt gæludýr,
uppaldir í stofuhita á sérstöku
innfluttu fæði, sem eytt er í dýr-
mætum gjaldeyri, og eru því mjög
verðbólguhvetjandi.
Þótt ekki væri nema vegna þess-
arar sögulegu heföar er því réttur
músarinnar ótvíræður. Fulltrúaráö
Músavinafélagsins hvetur því til
aukinna sýninga á þáttunum um
Tomma og Jenna svo bömum þessa
lands megi verða enn ljósari þeir
hugljúfu eölisþættir sem músina
prýöa.
Ekki fara söguraf afrekum katta í
þróun vísinda og tækni. Þar hefur
músin aftur á móti gegnt forystuhlut-
verki. Otöldum litrum af lyfjum og
hvers kyns vímugjöfum hefur veriö
dælt í líkama þessara dýra sem
æðrulaust hafa fórnaö sér fyrir
framfarir, heill og hamingju mann-
Hugljúfir eðlisþættlr prýöa músina, segja músavinir. A innfelldu myndinni er
formaður Músavinafélagsins.
músar, hjálparhellu og eftirlætis
allra dýra í Hálsaskógi, en þaö verk
Torbjöms Egners hefur átt stóran
þátt í því hve vel hefur tekist til um
uppeldi bama á Islandi síðustu ára-
tugina.
Þá bendir fulltrúaráö Músavina-
kynsins. Einnig má benda á braut-
ryðjendastarf músa í könnun himin-
geimsins — i geimferöir hafa farið
mýs, mannfólk og hundar, en engar
sögur fara þar af köttum. Segir þaö
sína sögu.
-KMU.
Margt hefur breyst á hafnarsvæðinu í seinni tið. Austur-
bakki hafnarinnar hefur verið breikkaður að hluta til en
þar hafa Hafskip nú athafnasvæði sitt og færa varninginn
heim svo sem sjá má á þaki vöruskemmunnar sem eitt
sinn var i eigu Eimskipa. Á myndinni má einnig sjá hluta
af grunni nýja Seðlabankans sem eflaust á eftir að setja
mikinn svip á svæðið. DV-mynd: GVA.
■ •'. ..'•' S: ■ •■ i: U - i nfW
: y \ '* - _ lllilHI ;1;vJC . «■ * *»**-''■ m&meaEft r _■ \-i .. ■ . ■ -1—J
. ■ • \ ' f ^ ■r . ■“'W ' : - .. '
\l« 1 ..' • ’ ! y ■j sL —
£ m« -—<c. ‘~|mP L - P
? >:■ ■-.**■ , Mjir_
'W <■■ •
K* * Wlo iT ff. \$
P £ > W
; h**Æ*?*.-
\ - \ -
Starfsár Sinf óníunnar hafið:
Margar nýjungar í vetur
Umtalsverðar breytingar hafa oröiö
á málefnum Sinfóníuhljómsveitar
Islands. Sett hafa verið ný lög um
hljómsveitina. Samnkvæmt þeim er
hún nú sjálfstæö stofnun með sjálf-
stæðan fjárhag og lýtur sérstakri
stjórn.
I júlí síðstliönum tók til starfa ný
stjóm og skipa hana Hákon
Steingrímsson form., Haukur Helga-
son, Jón Þórarinsson, Guömundur
Jónsson og Gunnar Egilsson. Fram-
kvæmdastjóri er sem fyrr Sigurður
Björnsson.
Aukning hefur verið á áskrifenda-
fjölda sinfóníutónleika og eru þeir
núna í upphaf i starfsárs 600 en voru 513
ífyrra.
Ýmsar nýjungar eru fyrirhugaðar á
starfsárinu. Auk áskriftartónleikanna
eru fyrirhugaðir fjölskyldutónleikar,
skólatónleikar, kammertónleikar, tón-
leikaferðir út á land, heimsóknir I
grunnskóla, sjúkrahús og á vinnustaði.
Alls eru því fyrirhugaöir rúmlega 70
tónleikar á starfsárinu auk hljóðritana
fyrir útvarp og sjónvarp.
Stjórninni til aðstoöar er verkefna-
valsnefnd. Hana skipa nú Jón Stefáns-
son form., Jean-Pierre Jacquillat,
Guðný Guðmundsdóttir, Einar
Jóhannesson, Jón örn Marinósson og
Páll Ásmundsson.
Þegar nýja stjórnin og verkefna-
valsnefndin tóku til starfa var þegar
búið að skipuleggja áskriftar-
tónleikana fyrir þetta starfsár.
Aðalhljómsveitarstjóri í vetur verður
Jean-Pierre Jacquillat en auk hans
munu Páll P. Pálsson, Leif Segerstam,
Klauspeter Seibel, Guömundur Emils-
son og Nicolas Braithwaite stjórna
hljómsveitinni. Innlendir einleikarar
veröa Lárus Sveinsson, Edda Erlends-
dóttir, Siguröur I. Snorrason, Rut
Ingólfsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir
og Sigríður Vilhjálmsdóttir. Erlendir
einleikarar verða píanóleikararnir
Peter Donohoe, Eugen List, Philip
Jenkins, og Gabriel Tacchino,
Konstantín Kulka fiöluleikari,
sellóleikararnir Gisela Depkat og Nina
Flyer, trompetleikararinn vestur-
íslenski Rolf Smedvig og einsöngv-
arinn David Rendall. Ennfremur mun
Söngsveitin Fílharmónia syngja á
einum tónleikum og taka þátt í
konsertflutningi óperunnar Tosca.
-«b.
óperunni Tosca í vetur.