Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1982, Page 3
3
DV. MIÐVIKUD AGUR 6. OKT0BER1982.
YFIRVINNU-
BANN TEFUR
FLUGID
Nokkrar tafir hafa oröiö á innan- morgunflugi af þeim sökum sernkað
landsflugi Flugleiöa þaö sem af er umrúmlegahálftíma.
þessum mánuði vegna yfirvinnu- Einar Helgason yfirmaður innan-
banns hlaömanna og afgreiðslu- landsflugs Flugleiða taldi aö þetta
manna Skeljungs á Reykjavíkurflug- mál gæti leyst á næstu dögum þar
velli. Hafa afgreiðslumenn verið í sem samningar við hlaðmenn um
yfirvinnubanni frá 20. september en breyttan vinnutíma vegna vetrar-
seinkanir á flugi hafa fyrst orðið eftir áætlunar stæðu nú yfir. Hins vegar
að vetraráætlun tók gildi 1. október. hafa Flugleiðir ekki beina samninga
Afgreiðslumenn mættu áður til við starfsmenn Skeljungs sem sér
vinnu klukkan sjö á morgnana en um afgreiðslu á eldsneyti á Reykja-
mæta nú klukkustund síðar. Hefur víkurflugvelli. -ÓEF.
Á myndinni ern Jón Þór Þórhallsson, forstjóri Skýrsluvéla ríkisins og Reykja-
vikurborgar (lengst tii vinstri) ásamt stjórn stofnunarinnar: Haraldur
Sigurðsson, yfirverkfræðingur, Haukur Pálmason, yfirverkfræðingur, Stefán
Ingólfsson, deildarverkfræðingur og Sigurður Þórðarson, deildarstjóri sem er
formaður.
DV-mynd Bjarnleifur.
Skýrrþrjátíuára:
Þvottavélin ALDA
sem þvær og þurrkar
Þrjátiu ár eru liðin frá stofnun
Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkur-
borgar, SKÝRR Markmiðið með
stofnun fyrirtækisins var að standa
sameiginlega að rekstri vélbúnaðar og
ná þannig fram hagkvæmni í rekstri
sem yrði báðum aðilum til hagsbóta.
Fyrsta eiginlega tölvan sem SKYRR
festi kaup á kom svo ekki fyrr en 1964
eða 12 árum seinna. Síðan hefur gaum-
gæfilega verið fylgst með framþróun
tækninnar og nú ræöur fyrirtækið yfir
tveim miklum tölvum af gerðinni IBM
4300.
Áður fyrr var kostnaður við gerð
hugbúnaðar eða forrita tölvanna lítill
en tækjabúnaöurinn á hinn bóginn dýr.
Nú hefur þetta snúist við og því er æ
hagkvæmara fyrir eignaraðila að sam-
einast um að nota sama hugbúnaðinn
til að leysa svipuð verkefni. Þau verk-
efni sem tölvur inna af hendi verða
sífellt flóknari og hönnun hugbún-
aðarins þar af leiðandi líka flóknari.
Hjá SKÝRR eru unnin um 1000
verkefni í hverjum mánuöi. Hin helstu
þeirra eru: Þjóðskrá og félagaskrá,
fasteignaskrá, bifreiðaskrá, launa-
kerfi ríkis og Reykjavíkurborgar, bók-
hald ríkis og Reykjavíkurborgar,
reikningakerfi Rafmagnsveitu
Reykjavikur, Rafmagnsveitna ríkisins
og nokkurra smærri rafveitna utan
Reykjavíkur, tekjubókhald ríkisins
(innheimta opinberra gjalda),
álagning og innheimta, Gjaldheimtan í
Reyk javík og póstgíróbókhald.
Fram til ársins 1977 var öll vinnsla
hjá SKYRR í formi runuvinnslu, upp-
lýsingar gataðar í spjöld eða skráðar á
disklinga og niöurstööunum skilaö
prentuðum á pappír. Síðan þá hefur
svokölluð sívinnsla stööugt aukist.
Notandinn er þá við skjá á vinnustað
sínum, skjárinn er svo tengdur við
tölvu SKÝRR um símalinur. Nú eru á
annað hundraö þannig skjáir. Línur
eru aðeins frá Reykjavík til Keflavíkur
og til Akureyrar en áformað að tenging
hringinn í kringum landið komist á
1983. Helstu skrár ríkisins verða þá
peim sem á þurfa að halda mjög
aðgengilegar, hvar sem þeir eru
staddir á landinu. Skattaskrá, fast-
eignaskrá, þjóðskrá eða bifreiöaskrá
— með því að ýta á nokkra takka
verður hægt að fá það sem óskaö er
eftir á örskammri stund.
Starfsmenn Skýrsluvéla ríkisins og
Reykjavíkurborgar eru um 90 talsins.
Stofnuninni er skipt í 5 deildir, vinnslu-
deild, þjónustudeild, kerfisfræðideild,
ráðgjafardeild og skrifstofu. Forstjóri
SKYRR er dr. Jón Þór Þórhallsson.
-JBH.
HANN
Verið Velkomin
Skeifan 8. sími 85822
UMBOÐSMENN
REYKJAVlK:
Vörumarkaðurinn hf.,
AKRANES:
Þóröur Hjálmsson,
BORGARNES:
Kf. Borgfiróinga,
GRUNDARFJORÐUR:
Guóni Hallgrímsson,
STYKKISHOLMUR:
Húsiö,
PATREKSFJÖRÐUR:
Rafbúð Jónasar Þ<>rs,
FLATEYRI:
Greipur Guðbjartsson,
ISAFJÖRÐUR:
Straumur hf.,
BOLUNGARViK:
Jón Fr. Einarsson,
BLÖNDUÓS:
Kf. Húnvetninga,
SAUÐÁRKRÓKUR:
Radlo og sjónvarpsþjónustan
SIGLUFJÖRÐUR:
Gestur Fanndal,
ÓLAFSFJÖRÐUR:
Raftækjavinnustofan,
AKUREYRI:
Akurvlk hf.,
HÚSAVÍK:
Grlmur og Árni,
KÓPASKER:
Kf. N-Þingeyinga,
ÞÓRSHÖFN:
Kf. Langnesinga,
VOPNAFJÖRÐUR:
Kf. Vopnfirðinga,
EGILSSTAÐIR:
Kf. Héröasbúa,
SEYÐISFJÖRÐUR:
Stálbúöin,
REYÐARFJÖRÐUR:
Kf. Héraósbúa,
ESKIFJÖRÐUR:
Pöntunarfélag Eskfiröinga.
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
Verzl. Merkúr,
HÖFN:
K.A.S.K.,
VÍK:
Kf. Skaftfellinga,
ÞYKKVIBÆR:
Fr. Friöriksson,
HELLA:
Mosfell sf.,
SELFOSS:
G.Á. Böövarsson,
VESTMANNAEYJAR:
Kjarni sf.,
GRINDAVÍK
Verzl. Báran,
KEFLAVÍK:
Stapafell hf.,
ÞUSUND
VERKEFNI
í MÁNUÐI