Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1982, Side 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 6. OKTOBER1982.
5
'Sr BÚID AÐ SALTA í 25
ungar
stúlkur”:
ÞUS. SÍLDARTUNNUR
virðist sem nótabátum hafi ekki
gengið vel á vertíðinni vegna þess
hve síldin hefur haldið sig djúpt.
Á Höfn í Hornafirði er búið aö salta
í um 1000 tunnur. Hjá Fiskimjóls-
verksmiðju Homafjarðar starfa 83
að söltuninni. Um 20 bátar róa frá
Höfn.
Svo virðist sem síldarsöltunin fyrir
norðan ætli að vera i daufara lagi og
var hljóðið í mönnum þar eftir þvi.
Húsvíkingar hafa saltaö í 1600
tunnur hjá Fiskiðjusamlagi Húsavík-
ur hf. Fimm dekkbátar stunduðu
veiðina en nú hafa 2 hætt, trillu-
karlamir hafa róið talsvert líka. Við
söltunina starfa 20—25 manns.
Á Dalvík er síldin söltuð hjá
Söltunarfélagi Dalvíkur. Jóhann
Antonsson framkvæmdastjóri sagði
að rólegt hefði nú veriö í viku og
aðeins saltað í 800 tunnur. Á allri
vertíðinni í fyrra var þar saltað í 2600
tunnur. Lítil veiði hefur verið í Eyja-
firöinum nema mjög utarlega og því
hafa litlu trillumar lítiö getaö
athafnað sig. Jóhann sagði þó að
Dalvíkingar væm ekki búnir að gefa
upp alla von, hringnótabátar myndu
ef til vill flytja þeim síldina aö
austan. Hjá Söltunarfélaginu hafa
starfað um 30 manns viö söltunina.
Sú síld sem nú er veidd virðist feit
og góð eftir því sem heyra mátti frá
nýju síldarkóngunum. Hún er mikil
búbót, einkum á þeim stöðum sem
urðu harðast úti þegar loðnan
kvaddi. -JBH
Saltaö hefur verið í um 25 þúsund
tunnur það sem af er síldarvertíðinni
í ár. Helstu söltunarstaöirnir em
Vopnafjörður og Neskaupstaður.
Samkvæmt upplýsingum Sigurjóns
Þorgeirssonar, forstjóra Tanga h/f á
Vopnafirði hefur þar verið unnið á
fullu í rúma viku og alls saltað í 4700
tunnur. Stutt er fyrir sildarbátana að
fara þar sem aðalveiðisvæðið er nú
sunnan við Langanes. Mikið líf og
fjör hefur færst yfir mannfólkið og
orðaði Sigurjón það svo að „kerbng-
ar sem em komnar á eftirlaunaaldur
em orðnar eins og ungar stúlkur”.
Á Neskaupstað er búið aö salta í
3400 tunnur, að sögn Guðmundar
Bjarnasonar hjá Síldarvinnslunni
h/f. Nótabátar þar hafa litið fengið
en reknetabátar nokkuð. Vfirleitt
DV-mynd Ragnar Imsland.
Á planinu hjá Fiskimjölsverksmiðju Homaf jarðar. Sama gamla stemmning in.
Ný heilsugæslu-
stöð, sjtíira-
deildogham■
iE fyrir aldr-
aða í ÓbfsRiti
Horabrekka, nýja heilsugæslustöðin í Ölaf sfirði, sem verið hefur í byggingu í nær áratug.
DV-mynd GS/Akureyri
BREYTING Á LAUSASKULDUM
ÚTGERÐARFYRIRTÆKJA
—Vantar tilfinnanlega
hjúkrunarfræðinga til starfa
„Það er veriö að flytja heilsugæslu-
stööina inneftir og sjúkradeildin tekur
til starfa innan skamms. Þar með er
nýja heilsugæslustöðin, sem fengið
hefur nafniö Hombrekka, komin í fulla
notkun”, sagði Jón E. Friðriksson,
bæjarstjóri í Olafsfirði, í samtali við
DV.
Starfseminni í Hombrekku má
skipta í þrjá meginþætti. Á efri hæð-
inni er dvalarheimili aldraðra og þar
verður sjúkradeild með 8 rúmum, sem
í megindráttum verður langlegudeild
fyrir aldraða. Á neðri hæðinni veröur
heilsugæslustöðin og þar er einnig
þjónustuaðstaða fyrir allt húsið.
Stefán Björnsson læknir er nýlega
tekinn til starfa í Olafsfiröi, en hann
sérmenntaöi sig í heimilislækningum í
Svíþjóð. Stefán er Olafsfirðingur að
uppmna og gera heimamenn séi vonir
um að hann ílendist þar lengur en þeir
kollegar hans sem þjónaö hafa Olafs-
firði undanfarin ár. Hafa þeir flestir
ráðið sig í stuttan tíma. Þess á milli
hafa Olafsfirðingar verið læknislausir.
Tannlæknir í Olafsfirði er Egill
Kolbeinsson og hefur hann aðstööu í
nýju heilsugæslustöðinni.
Erfiðlega gekk aö ráða hjúkmnar-
fræðinga að Hombrekku. I því sam-
bandi gerði stjórn Hornbrekku eftir-
farandi bókun:
„Samþykkt var að neyta allra
ráða til aö útvega hjúkrunarfræðinga
og var í því sambandi rætt um aö hafa
samband við þá hjúkrunarfræðinga,
sem héðan eru ættaðir, svo og að birta
auglýsingar í blaði hjúkrunarfræðinga
og í skóla þeirra.” Þrátt fyrir þessar
aðgerðir tókst stjóminni einungis að fá
einn hjúkrunarfræðing í 40% starf til
stöðvarinnar, en hins vegar hafa verið
ráðnir 3 sjúkraliöar.
-GS/Akureyri
Vegna fyrirhugaörar breytingar á hluta af vanskilum og lausaskuldum útgeröar í lán til lengri
tíma skulu fyrirtæki og einstaklingar, sem útgerð stunda og óska aðstoðar með ofangreindum
hætti senda hagdeild viðskiptabanka síns eða sparisjóði sínum umsókn um skuldbreytingu
studda eftirtöldum gögnum:
1. Lista yfir alla skuldunauta og lánadrottna pr. 30. sept. 1982.
2. Efnahags- og rekstrarreikningi fyrir árið 1981 ásamt sundurliðuðum lista yfir alla skuldu-
nauta og lánadrottna í árslok 1981.
3. Staðfestingu á vátryggingarverði fiskiskipa.
4. Nýju veðbókarvottorði fyrir eignir í rekstri, og yfirliti um eftirstöðvar áhvílandi veðskulda.
Umsóknir berist viðkomandi stofnun hið fyrsta og eigi síðar en 31. október n.k. Umsóknir
sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til meðferðar.
Reykjavík, 1. október 1982
iSz&'.'i'
''/.ASO'
SEÐLABANKI ISLANDS