Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1982, Blaðsíða 8
8
DV. MIÐVIKUDAGUR 6. OKTOBER1982.
Útlönd
Útlönd
Utlönd
Útlönd
ITALSKA MAFÍAN
STARFAR í NOREGI
Lögreglan í Bergen telur sig nú
hafa sprengt fyrsta glæpahringinn
sem tengir ítölsku mafíuna viö
Noreg. Var upphaf málsins það að
25 ára gamall Itali var handtekinn í
sambandi við umfangsmikla sölu á
Fíkniefni þau sem lögreglan leggur
hald á eru brennd í ofni við 1000 gráða
hita. Hér sjáum við lögreglumenn
fylgjast með brunanum.
fíkniefnum í Bergen.
— Margt bendir til þess að maður-
inn tilheyri mafíunni, segir lögreglu-
fulltrúi sem unnið hefur að málinu í
Bergen. — Við höldum jafnframt að
hér sé kominn forsprakki þeirrar
stærstu glæpaklíku sem stundað
hefur iðju sína á vesturlandi.
Jafnframt sitja 8 Bergenbúar í
fangelsi, grunaðir um að hafa til-
heyrt glæpahringnum. Talið er að
Italinn hafi komið flugleiðis frá ein-
hverju hinna Norðurlandanna og
álítur lögreglan þvi að máliö nái líka
til þeirra.
Italinn er kærður fyrir að hafa selt
1,2 kiló af amfetamíni og 75 kíló af
hassi aö andvirði 20 milljónir krónur.
Grunar lögregluna að hann hafi
byggt upp þessa starfsemi í Bergen á
sl. 5 árum.
Við rannsóknina hefur lögreglunni
aöeins tekist að leggja hald á lítið
brot þeirra fíkniefna sem glæpa-
hringurinn er talinn hafa dreift á
norskanmarkaö.
Andófsforingi handtek
inn i Póllandi í gær
Pólska öryggislögreglan hefur til-
kynnt að vel hafi borið í veiði hjá henni
í viðureign hennar við neðanjarðar-
hreyfingu Einingar sem stjómin býr
sig nú undir að banna alveg.
Pólska sjónvarpið greindi frá því í
gærkvöldi að Wladyslaw Frasyniuk,
einn aðalskipuleggjandi neðanjaröar-
hreyfingarinnar í Neðri-Sílesíu, hefði
veriö handtekinn í Wroclaw. — Hann
var ákæröur fyrir aö skipuleggja ólög-
legar mótmælaaögerðir.
Hinn 28 ára gamli Frasyniuk skipu-
lagði neðanjarðarsamtökin, sem í
apríl tóku upp andóf við herlagayfir-
völd, á meöan flestir forvígismenn
Einingar voru í haldi. Tíöindin um
handtöku hans ber að um leið og fréttir
af því að pólska þingið býr sig undir að
samþykkja ný lög á laugardaginn, sem
gera ráð fyrir að Eining og önnur
verkalýðssamtök verði endanlega
leyst upp.
Er mikill uggur í mönnum í Póllandi
vegna hinnar væntanlegu lagasetning-
ar og hefur Jozef Glemp erkibiskup
aflýst fyrirhugaðri heimsókn sinni í
páfagarö, þar sem taka átti látinn
pólskan prest (raunar föður hans) í
dýrlingatölu. Biskupinn hefur látið í
ljós kvíða fyrir að nýju lögin muni
kalla f ram óeirðir.
Fransyniuk, Zbigniew Bujak frá
Varsjá, Bogdan Lis frá Gdansk og
Wladyslaw Hardek frá Kraká stýrðu
saman neðanjarðarhreyfingu Eining-
Parísarlögreglan vinnur að rann-
sókn á ákærum um, að leynierindrekar
frá Marokkó hafi rænt konu einni úr
liöi stjómarandstæðinga Hassans
Marokkókonungs. Þessi Marokkókona
hvarf úrFrakklandi.
Vinir Khadiju Allabuah-Bourquat
(37 ára) segja að hún hafi horfið af
heimili sínu í París 27. sept., en síð-
ast spurðist til hennar á leið til tann-
læknis.
Sendiherra Marokkó í París hefur
borið á móti því að Marokkóstjórn viti
nokkuð til hvarfs konunnar. Segir hann
konuna franskan ríkisborgara og al-
gerlega óviðkomandi Marokkó. Heldur
hann því fram að þarna sé uppi áróður
til þess að spilla fyrir áætlunum um
heimsókn Mitterrands Frakklandsfor-
seta til Marokkó 27. október.
Khadija stóð fyrir samtökum sem
reyndu að vernda hagsmuni fanga í
Marokkó. Hafði hún marglagt aö
ar en þeir voru allir meöal fárra for-
vígismanna verkalýössamtakanna
sem sluppu viö handtökur þegar her-
lögin voru leidd í gildi í desember í
fyrra og hafa farið huldu höfði síöan.
frönsku stjóminni að láta til sín taka
örlög þriggja bræðra hennar, sem
handteknir vom í Rabat 1973, en aldrei
hefur spurst til síðan.
Sendiherrann segir aö Hassan
konungur muni afhenda Mitterrand
forseta skýrslur um hvarf þessara
þriggja bræðra.
Ambrosiano-
hneykslið
Fyrir helgina framdi aðstoöar-
bankastjóri Ambrosiano bankans á
Italíu sjálfsmorð með því að kasta sér
út um glugga. Er þetta þriðja sjálfs-
morðið sem tengist hinum umfangs-
miklu hneykslismálum í sambandi við
bankaveldi þetta.
Bankastjórinn, Giuseppe della Cha,
54 ára, skildi eftir stutt kveð jubréf:
— Þetta er allt mér að kenna. Ástar-
kveðjur til Milenu, Susi og Gabriellu,
pabbi.
Ambrosiano-hneykslið hófst í júní sl.
með því að sannaðist að bankinn hafði
stundað dularfulla lánastarfsemi í
Suður-Ameríku. Er banki páfagarðs
einnig flæktur í máliö.
Forseti bankastjórnarinnar, Robert
Calvi, hengdi sig skömmu síðar undir
brú í London. Daginn eftir framdi
ritari hans einnig sjálfsmorð með því
að kasta sér út um glugga á
bankanum.
Þýskartúrbín-
urtilSovét
Vestur-þýska fyrirtækið AEG-
Kanis hefur nú afhent fyrstu
túrbínurnar til notkunar viö hina
umdeildu gasleiöslu frá Síberíu
til V-Evrópu. Er hér um að ræöa
47 túrbínur.
Þær eru byggðar eftir heimil-
uðum fyrirmyndum frá banda-
ríska fyrirtækinu General
Electric og eru að verömæti 4,5
milljaröa króna.
I kjölfar þessa hefur Banda-
ríkjastjórn boðaö bann á allan
innflutning í USA á vörum frá
AEG-Kanis og eins frá þrem
öðrum þýskum fyrirtækjum sem
selja tækjabúnað í gasleiðsluna.
Fólkismyglað
til USA
Fjórir menn frá E1 Salvador, sem
smyglað hafði verið inn til Bandaríkj-
anna, fundust látnir í læstri vörubif-
reið, sem staðiö haföi yfirgefin í 18
klukkustundir í brennandi Texas-sól-
inni.
Tólf landar þeirra lifðu þennan
hrakning af, en þeir fundust allir um
320 km suður af San Antonio. Fjóra
þeirra þurfti að leggja inn á spítala.
Upphaflega hafði hópurinn verið 13
menn og 13 konur og höfðu þau vaðið
Rio Grande frá Mexíkó. Tíu höföu
verið fluttir eitthvað burt í sendibíl
áður en lögreglan kom að.
Þetta fólk hafði farið frá E1 Salvador
í síðustu viku og voru þá 50 saman sem
öllhöföu greitt 1.500 dollara hvert fyrir
að láta smygla sér inn í Bandaríkin.
Misheppnaðargetnaðarvamir
— Mennirnir eta getnaðarvama-
pillur kvenna sinna eða setja smokk-
ana á puttana, segir í nýútkominni
skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum
þar sem f jallað er um ástæður þess
að svo illa gengur að draga úr bam-
eignumfólksí Asíu.
1 skýrslum þessum segir að íbúum
afskekktra þorpa í Asíu hafi verið
kennt að nota smokka með því að
setja þá á bambusstaf. Þegar kenn-
ararnir komu til baka mörgum
mánuðum síðar til að athuga
árangurinn af kennslunni tók hópur
öskureiöra kvenna á móti þeim. Þær
voru allar vanfærar.
Við athugun kom í ljós að karl-
mennirnir höföu annaðhvort látið
smokkana á bambusstaf eða ein-
hvern fingurinn í stað þess að nota
hann á þaö eina sanna líffæri sem sér
um f jölgun mannkynsins.
Annað Ben Barka-
mál í uppsiglingu
í Frakklandi