Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1982, Síða 10
10
DV. MIÐV1KUDAGUR6. OKTOBER1982.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Þótt nú sé tæpur mánuöur liðinn
frá andláti Graciu Patriciu fursta-
frúar af Mónakó eru enn uppi mikil
heiiabrot í sambandi viö dauöa henn-
ar. Einkum ræöa menn þann mögu-
leika aö hún hafi ekki fengið nógu
góöa læknishjálp eftir aö hún kom á
sjúkrahús þaö sem kennt er viö hana
sjálfa í Mónakó, stórslösuð eftir bíl-
slys.
Þann örlagaríka mánudag er slys-
iö skeði var furstafrúin á leið frá
sumarsetri fjölskyldunnar, Roc
Agel, til hallarinnar. Haföi einkabíl-
stjóri hennar komiö farangri hennar
og dóttur hennar, Stephanie, fyrir í
bílnum og bjóst viö aö hann mundi
aka þeim mæðgum.
Seinna sagöi, Antoinette prinsessa,
61 árs gömul systir Rainiers fursta,
aö skömmu síöar heföi Gracia komiö
út með hvítan samkvæmiskjól og
breitt úr honum í baksæti bílsins.
Eins og flest önnur föt furstafrúar-
innar var kjóllinn frá Dior og haföi
hún síöast boriö hann á dansleik sem
haldinn var af Rauða krossinum í
Monte Carlo 31. júlí. Sagöi Gracia viö
bílstjórann aö vegna kjólsins væri
ekki pláss nema fyrir tvo í bílnum og
ætlaði hún því sjálf aö aka.
Frá sumarsetri furstafjölskyld-
unnar liggur bugðóttur fjallavegur
niöur aö strönd Miöjarðarhafsins. Og
það var á þessum hættulega vegi
sem furstafrúin missti stjórn á bíln-
um, 10 ára gömlum Rover, meö þeim
afleiöingum að hann valt eina 40
metra og hafnaði á eignarjörö bónd-
ans Sestio Lequio, 61 árs.
„Hefur eitthvað
komið fyrir hana?"
— Eg hélt aö flugvél heföi hrapað
niöur í garöinn minn, sagöi Lequio
síðar. — Bíllinn lá á hliðinni og eldur
kom upp í honum.
Lequio tókst aö slökkva eldinn meö
slökkvitæki. Hann reif svo upp dym-
ar á bifreiðinni og hjálpaöi Stephanie
prinsessu til aö komast út úr honum.
Þaö leiddi síöar til þeirra staöhæfu-
lausu sögusagna að hin 17 ára gamla
og próflausa prinsessa heföi verið
viö stýriö.
I sömu stund bar aö vörubílstjór-
ann Dominiq ue Toci:
— Prinsessan grét og kallaði ákaft
á móður sína, segir hann. — Hún
endurtók í sífellu: „Hefur eitthvaö
komiöfyrir hana?”
Gracia furstafrú lá klemmd í
aftursæti bílsins. Hún hreyfði sig
ekki, hárið þakti andlit hennar.
— Eg æpti: Heyrið þér ekki til mín?
segir Toci. — En hún svaraöi ekki.
Nokkrum mínútum síöar knmu
björgunararmenn á slysstað. Þeim
tókst að ná hinni slösuöu furstafrú úr
flakinu og kl. 11 var hún komin á
Monte Carlo sjúkrahúsiö. Þaö ræður
yfir 400 rúmum og var tekið í notkun
1958.
Seinna sagöi yfirlæknir skurðdeild-
ar, dr. Jean Chatelain, í viðtali viö
„New York Times” aö Gracia hafi
þá ekki getaö talaö, ekki getaö hreyft
sig og ekki sýnt nein viöbrögð. Hún
var meövitundarlaus. Dr. Chatelain
lýsti nokkrum sinnum í augu hennar
með ljósi. Augasteinarnir drógust
saman og þöndust út á eðlilegan hátt
sem sýndi aö heilinn var skemmdur
en ekki dauður.
Rannsókn með
tölvusneiðmyndatæki
8—12 klst. eftir slysið
Ef komiö er meö slasaöan mann
meövitundarlausan á spitala í
Bandaríkjunum og Þýskalandi
a.m.k. er hann umsvifalaust rann-
sakaöur meö tölvusneiömyndatæki
(CAT-Scanner). Þ.e.a.s. ef slíkt tæki
er fyrir hendi. Tekur tæki þetta
sneiðmyndir af heilanum sem sýna
innri gerö hans og æöar. Slíkt er ekki
hægt aö gera meö venjulegu röntgen-
tæki nema kontrastefni sé sprautaö í
heilann. Auk þess getur tækiö mælt
þéttleika hinna ýmsu vefja og sýnir
þannig mjúka vefi heilans. Meö
þessu tæki geta læknar t.d. greint
storknaö blóð frá vatni og öðrum
vefjahlutum.
Furstafrú-Gracia-sjúkrahúsiö í
Monte Carlo á slíkt tæki ekki til. Eina
tölvusneiömyndatækiö sem til er í
Mónakó á taugasérfræðingurinn dr.
Michel Mourou.
í
.
.
— Hlð sviplega fráfall fursta-
ynjunnar af Mónakó hefur
stað nokkrum
verið að bjarga lífi hennar með
réttri læknismeðferð.
Er Chatelain hafði kannaö ástand
hinnar slösuöu furstafrúar hringdi
hann strax í þann fræga heilasérfræð-
ing dr. Jean Duplay en hann er yfir-
læknir Pasteur-sjúkrahússins í
Nizza, 35 km frá Monte Carlo. Og þaö
er ekki fyrr en 8—12 klukkustundum
síöar (Gatelain og Duplay ber ekki
saman um tímann) sem Gracia er
flutt á einkasjúkrahús dr. Mourous,
sem er þó aðeins nokkrum húslengd-
um ncðan viö Furstafrú-Gracia-
sjúkrahúsiö.
Rannsóknin meö tölvusneið-
myndatækinu sannaöi það sem
báöum læknunum haföi boðið í grun:
Furstafrúin haföi fengið mikla heila-
blæöingu viö slysiö. En jafnframt
urðu þeir varir við aðra blæðingu
sem stafaði frá æö í innri hluta heil-
ans.
En hvernig stóö á þessari blæö-
ingu? Var hún afleiðing af heilablóö-
falli sem olii slysinu eðg kom hún
eftir slysið?
Slysið afleiðing
af heilablóðfalli
Eftir að læknamir höföu yfirheyrt
Stephanie um öll smáatriöi i sam-
bandi við slysið úrskurðaði dr. Ðup-
lay aö furstafrúin heföi mLsst stjórn
á bíl sínum vegna afleiöinga heila-
blóöfalls. Þaö hefði þó ekki þurft að
leiða til dauða hennar ef hún hefði
ekki veriö stödd í bil á þessum hættu-
lega vegi.
Um nóttina versnaði ástand f ursta-
frúarinnar. Næsta morgun var henni
haldið á lífi í hjarta- og lungnavél.
Um hádegisbil viðurkenndi dr.
Chatelain að engar vonir stæöu til að
hún gæti lifað.
— Þá var svo komið aö heili fursta-
frúarinnar sýndi engin merki um
rafvirkni, segir dr. Chatelain. Heila-
bylgjurnar höföu hætt fyrir nokkrum
klukkustundum Þess vegna ákváöu
aöstandendur hennar þá um kvöldiö
að hætt skyldi öllum tUraunum tU að
bjarga henni. Læknir sá er fjaUar
um slysiö í New York Times veltir
þar einkum fyrir sér þremur spum-
ingum:
Af hverju var ekki fariö fyrr með
furstaynjuna tU rannsóknar meö
tölvusneiðmyndtækinu?
Af hverju var kaUaður til svæf-
ingarlæknir úr því aö hún var meö-
vitundarlaus?
Af hverju var ákvörðunin um aö
taka hjarta- og lungnavéUna úr sam-
bandi tekin svona stuttu eftir slysiö?
Dr. Duplay segir að rannsóknin
meö tölvusneiömyndatækinu hafi
ekki getaö farið fram fyrr af því aö
læknar þurftu fyrst að rannsaka önn-
ur meiösU hennar. Nefnir hann þar
m.a. brákun á viðbeini, hægri
mjaömarmeini og rifbeini. Hann
bætir því jafnframt viö aö þaö heföi
ekki haft nokkra þýðingu fyrir fram-
vindu mála þótt rannsókn meö tölvu-
sneiðmyndtæki heföi fariö f yrr fram.
Stephanie og Gracia á Rauða kross dansleik ijúii. Gracia er i hvíta Dior-
kjóinum sem hún hafði með sór f biinum og varjörðuð í.
Engin
krufning
Læknamir Chatelain og Duplay
gefa enga skýringu á því af hverju
svæfingalæknir var kallaður á vett-
váng. Þeir segja aöeins aö fursta-
frúnni hafi veriö gefin deyfilyf.
Dr. Chatelain staðfestir aö hann
hafi á þriöjudagskvöldi tUkynnt
Rainier fursta, Karólínu og Albert aö
heUi furstafrúarinnar væri dauður
og nú væru engar vonir lengur um aö
lífga hana viö. Að þeim upplýsingum
fengnum ákvað f jölskylda hennar kl.
10 um kvöldið að véUn skyldi tekin úr
sambandi.
— Samt er einni spumingu enn
eftir ósvarað, segir í New York
Times, sem þó engan veginn kemur
meö beina ásökun á hendur læknum
furstafrúarinnar.
— Hefði valinn hópur sérfræðinga
í slysaskuröaðgerðum og tauga-
skurölækningum getaö bjargað lifi
furstafrúarinnar, ef hægt hefði veriö
aðnáíþá?
Þaö viröist fremur ósennUegt. En
eitt er vist: Viö þeirri spurningu fæst
hvort sem er aldrei svar þar sem lík
Graciu var ekki krufið.
— Viö kryfjum ekkert lík nema aö
ástæðan sé sú að viö vitum ekki
dánarorsök viðkomandi, segir dr.
Chatelain. — Hvaö furstafrúna snert-
ir vissum við alveg nákvæmlega
hver dánarorsökin var.
Gracia furstafrú var borin til
grafar í Monte Carlo meö mikiUi viö-
höfn — í hvíta samkvæmiskjólnum
sem fannst í baksæti bílsins eftir
slysið.
(stytt úr Welt am Sonntag)