Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1982, Blaðsíða 15
DV. MIÐVIKUDAGUR 6. OKTOBER1982.
15
Menning Menning Menning
Litli sótarínn —
frumsýning
önnur
únnur frumsýning Litla sótarans hjá
íslensku óperunni, 3. október.
Þýöing, hljómsvoitarstjórn, leikstjórn, leik-
mynd, búningar, lýsing og hljómsveit í
höndum sömu manna og í fyrri sýningu.
Hlutverkaskipan: Bagga: Elísabet Waage,
Rúna: Signý Sœmundsdóttir, Surtur: Ámi Sig-
hvatsson, Klunni: Siguröur Pótur Bragason,
Silja: Marta Guörún Halldórsdóttir, Bjartur:
Gunnar Freyr Árnason, Glói: Þorbjöm Rúnars-
son, Soffía: Guöbjörg Ingólfsdóttir, Tinna:
Steinunn Þórhallsdóttir, Hildur: Ragnheiður
Þórhallsdóttir, Anna: Steinunn Þorsteinsdóttir,
Nonni: Arnar Helgi Kristjánsson.
Því var lítt haldið á lofti í kynningu
að Islenska óperan réði yfir tvöföldu
gengi til að flytja Litla sótarann. I
genginu, sem söng á fyrri frumsýn-
ingu voru nokkrir af þekktustu og
jafnframt einsöngsvönustu kröftum
hússins. Seinna gengið var hins
vegar að mestu skipað meölimum
kórs Islensku óperunnar, en flestir
þeirra hafa að vísu verið bendlaðir
við einsöng þótt ekki hafi það verið í
óperunni.
Ástæðu/aus ótti
Það sýnir ótvíræðan styrk hins
unga fyrirtækis að geta leitað á
heimamið eftir nýjum einsöngvur-
um. — Því eins og fyrr hefur verið
sagt: Það má alltaf fá söngvara, en
góður kjami verður ekki keyptur að.
Ég verð nú samt að viðurkenna að
ótti viö að þurfa að gera óþægilegan
samanburð átti sinn þátt í því að ekki
var tíunduð frammistaða einstakra
söngvara í umfjöllun um fýrri
sýninguna. Sá ótti reyndist
hins vegarástæðuiaus.
Tónlist
Eyjólfur Melsted
Það er fyrst og fremst hljóm-
sveitarstjóra og leikstjóra fýrir að
þakka að allur samanburður á
sýningunum innbyrðis verður gjör-
samlega óþarfur,já, raunar út í hött.
I sýningunum báðum er gætt fyllsta
jafnvægis og jafnræöis með flytj-
endum. Þannig skyggir skólaður
söngvari aldrei á bam. Enginn fær
að hælast um á kostnaö annars, en þó
er þess gætt að uppfylla ströngustu
listrænar kröfur. Siöari sýningin er
því fyllilega jafnoki hinnar fyrri og
engin ástæða fyrir væntanlega
óperagesti að gera sér rellu út af því
hvort gengið syngi á þeirri sýningu,
sem þeir sækja, nema að þeir stundi
persónudýrkun af hæstu gráöu.
Seinna gengið skartar lika lítilli
stjörnu í hlutverki Bjarts litla
sótaradrengs, Gunnari Frey Áma-
syni.
Að rækja sínar sky/dur
Um leið og Islenska óperan sýnir
ótvíræðan styrk sinn með uppfærsl-
unni á Litla sótaranum lýsir hún yfir
ákveðinni stefnu. Hún er íslensk
ópera. Hún er ekki afmarkað
menningarfyrirbæri, ætlað hópi
fárra útvaldra, heldur telur hún sig
eiga erindi við Islendinga alla. Hún
ætlar greinilega ekki að skorast
undan skyldum við óperagesti
framtíðarinnar. Nú er aðeins að bíða
og sjá hvort Islendingar kunna að
meta slíka skyldurækni. -EM.
Landið og Landnáma
— Nýtt rít eftir dr. Harald Matthíasson
„Upphaf bókarinnar má rekja allt til
þess er ég var í háskóla, en þá skrifaði
ég ritgerð um staðfræði Landnámu
milli Þjórsá og Hvítár,” sagði dr.
Haraldur Matthíasson á Laugarvatni í
tilefni af útkomu verksins Landið og
Landnáma. Verkið er tvö bindi, rúm-
lega 600 blaösiöur, með 13 stórum kort-
um er sýna mörk allra landnámanna
og rúmlega 60 ljósmyndum frá einstök-
um landnámsjörðum.
Þá er í ritverki dr. Haralds Islands-
kort er sýnir ferðir hans og konu hans
um landiö er hann vann að undirbún-
ingi þess. Ernst Bachmann hefur
myndskreytt bækumar.
„Árið 1953 hóf ég ferðir um landið
ásamt konu minni til að rannsaka stað-
hætti. Þær voru öðram þræði skemmti-
ferðir en á árunum 1976—80 vora fam-
ar skipulegar rannsóknarferðir og
lauk ég verkinu í janúar 1981,” sagði
dr. Haraldur um undirbúningsvinnu
við bókina en viðfangsefni hennar er
staðfræði Landnámabókar, saman-
burður á texta Landnámu og landinu
sjálfu. 1 henni eru í fyrsta sinn sýnd
á kortum möik landnáma. Einnig eru
athuganir á landnámsbæjum og
ömefnum. Um niðurstöður sínar sagði
dr. Haraldur:
„Staðþekking er furðulega traust og
skekkjur ótrúlega fáar. Ohugsanlegt
er að einn maður hafi ritað þetta held-
ur hafa verið að verki fjöimargir
heimildarmenn, sem hafa ritað lýsing-
ar og sent aðalhöf undi sem síðan hefur
gengið endanlega frá verkinu.
Sumum hefur dottið i hug aö
Landnáma hafii veriö samin vegna
tiundarlaganna og jafnvel búnir til
landnámsmenn. En miðað við
Landnámu sjálfa er það fræðimennsk-
an sem er aöaltilgangur bókarinnar og
þess engin merki að búnir hafi veriö til
landnámsmenn,” sagði dr. Haraldur
aölokum. -gb.
Dr. Haraldur Matthiasson moð tvaggja binda ritverk sitt: Landið og
DELMA
QUARTZ
Spádu í DELMA-quartz
þau eru í sérflokki.
Svissnesk
gæði.
Póstsendum.
Jón og Úskar
Laugavegi 70, sími 24910.
HJÓLBARÐA-
VERKSMIÐJA
Óskum eftir að ráða duglega menn til starfa í hjól-
barðaverksmiðju vorri,
helst eldri en 20 ára.
Mikil vinna framundan.
Góð laun í boði.
BANDAGhjólbaróasólunin hf.,
Dugguvogi 2.
Sími 84111.
Tréval hf. auglýsir:
BAÐINNRÉTTiNGAR
í ÚRVALI
Ath.: Nýtt heimilisfang:
Smiðjuvegur 32 Kópavogi
Símar 40800 — 79800.
TRÉVAL HF.
Smiðjuvegi 32, Kópavogi.
Símar 40800 - 79800.
STYRKIR TIL NÁMS
í SAMBANDSLÝÐVELDINU ÞÝSKALANDI
Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt íslenskum stjóm-
völdum að boðnir séu fram eftirtaldir styrkir handa islending-
um til náms og rannsóknastarfa í Sambandslýðveldinu Þýska-
landi á námsárinu 1983—84:
1. Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur skulu hafa
lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi.
2. Nokkrir styrkir til að sækja þýskunámskeið sumarið 1983.
Umsækjendur skulu hafa lokið eins árs háskólanámi og
hafa góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu.
3. Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og rann-
sóknarstarfa um allt að fjögurra mánaða skeið.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6, 1011 Reykjavík, fyrir 30. október nk.
Sérstök umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í ráðu-
neytinu.
Menntamálaráðuneytið,
30. september 1982.
1 1x2-1 1x2-1 I x 2
6. leikvika — leikir 2. okt. 1982.
Vinningsröð: 2XX — 1X1 — 111 — 111
1. vinningur: 12 réttir — kr. 100.950,-
5565(1/12, i;i1) 13260
2. vinningur: 11 réttir - kr. 3.328,-
1040 5585 14954+ 60348 80401 + 94447
1042 10312+ 19448 67067 9326S 94449
1150 14859 21021 + 73856+ 93481 95994
3416 14922+ 60337 74239 94355 6648212/11)+
Kærufestur er til 25 október kl. 12 á hádegi. Kærur
skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá um-
boðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík.
Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða
teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að fram-
vísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsing-
ar til Getrauna um nafn og heimilisfang fyrir lok
kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK