Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1982, Qupperneq 33
DV. MIÐVUÍUDAGUR 6. OKTOBER1982.
33
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Olof Palme
kratapáfí
„Ölafur Pálmi er mtettur til
leiks á ný í forystu ssenskra
stjórnmáia. Þaö gustar af
honum enn sem fyrr, þegar-
hann leiddi Svía til velferðar
og Svíþjóð varð fyrirmynd
margra ríkja Vesturianda.”
Svo segir Alþýðubiaðið í
formála að þýddu viðtali við
sænska forsætisráðherrann
Olof Palme. Það vekur
athygli að krataleiðtoginn er
aldrel kaliaður annað en
Óiafur Pálmi í viðtalinu.
Hingað til hafa aðeins stór-
menni eins og páfinn og
konungborið fólk notið þess
heiðurs að fá nafn sitt
islenskað. Við tölum um
Jóhannes Pál páfa, Jóbann
Karl Spánarkonung, Olaf
Noregskonung og Karl
Bretaprins.
Erlendir stjóramálamenn
hafa hins vegar mátt búavið
sin eigin skiraaraöfn (saman-
ber Ronald Reagan, Káre
Willock) þar til nú að Oiof
Palme verður Ölafur Pálmi á
síðum Alþýðublaðsins.
Líklega eru islenskir krat-
ar farnir að líta á Olof Palme
sem kratapáfa eða krata-
kóng.
Spilað með
kerfið
Þegar réttarhléi lauk í
Hæstarétti núna á dögunum
kom meðal annars fyrir
frestunarbeiðni í máli, sem er
all sérstætt. Maður nokkur
var kominn með mikinn iög-
mannaher á eftir sér, vegna
vanskila hingað og þangað.
Hafði þeim orðið nokkuð á-
gengt og voru búnir að gera
skuldarann að þrotamanni og
fá selt ofan af honum dýrindis
einbýlishús á þokkalegu
verði. Maðurinn er þó enn
harður af sér og lét áfrýja
málarekstri til Hæstaréttar.
Sem þýðir, vegna seinagangs
í réttarkerfinu meðal annars,
að maðurinn getur nú búið
svona tvö ár í viðbót í sioti
sínu, en þar sem það hefur
verið selt ofan af honum, þó
sem leigjandi, án þess að
þurfa að borga húsaleigu!
Við þetta verða lánardrottnar
og húskaupandi að sætta sig,
þótt hart þyki.
Harka mannsins þykir
ekki einleikin og þótti það
kóróna allt spilverkið, þegar
frestunarbeiðni hans kom
fyrir í Hæstarétti. Samkvæmt
hefðum gátu lögmenn lánar-
drottna ekki annað en sam-
þykkt. Það þurftu þeir að
gera hver fyrir sig og stóðu
því upp 10 hæstaréttar-
lögmenn í röð til þess að sam-
þykkja beiðni mannsins. Mun
það vera einsdæml, að ein-
staklingur stjórai kór Lög-
mannafélagsins við réttar-
hald í Hæstarétti.
Eysteinn leggur til
rigninguna
Bergur Pálsson fyrrum
fulltrúi kom þar að um
daginn þar sem Jónas Guð- j
mundsson ritböfundur með j
meiru var að kaupa
sviðakjamma i Kjötbúðinni
Borg við Laugaveg. Bergur
spyr Jónas hverju það sæti að
góður og gildur framsóknar-
maður versli í matinn hjá
kaupmanninum á horainu en
ekki í kaupf élaginu.
„Jú, sjáðu nú til,” svaraöi
Jónas: „Kjötbúðin Borg er nú
miklu frekar kjötversiun
Framsóknarflokksins heldur |
en kaupfélögin. Þegar
fiokkurinn fer í sumarferðir
þá leggur Þorbjöra í Borg
nefnilega til nestið en
kommarnir fararstjórann og
Eysteinn rigninguna.”
Forsetinn
og „Good
morning America"
í síðasta Helgarpósti var
dylgjað um það að „ábyrgir”
starfsmenn utanrikis-
ráðuneytisins hefðu komið i
veg fyrir það að Vigdís
Finnbogadóttir forseti gæti
komið fram í vinsæium
bandariskum sjónvarpsþætti
„Good Moraing America”
meðan á heimsókn hennar
þar i landi stóð. Samkvæmt
frásögninni átti að hafa
komið boð frá stjóraendum
þáttarins, en þeir síðan hætt
við þegar starfsmenn
ráðuneytisins fóru að setja
skilyrði um hveraig mætti
spyrja forsetann.
Staðreyndin er hins vegar
sú, að starfsfólk forsetans
leitaði eftir þvi að Vigdís
kæmi fram i fyrrgreindum
þætti. Upphafiega mun hafa
komið boð um að Vigdís kæmi
fram i öðrum sjónvarpsþætti
sem sendur er út í kapal-
kerfum og nefnist „Freeman
Report”. Það var álit manna
að ekki væri vlðeigandi að
forsetinn kæmi þar fram, en i
stað þess var boðið upp á að
hún kæmi fram i „Good
Moraing America”. Stjóra-
endur þáttarins þágu ekki
það boö.
Umsjón: Kristján Már'
Unnarsson.
Kvikmyndir Kvikmyndir
Bíóhöllin, Félagamir á Max bar:
Kvikmyndir
Kvikmyndir
HEILLANDI
PERSÓNUR
Bióhöllin, Fólagamir ó Max bar CThe Guys
From Max's Bar („Inside Movos").
Stjórn: Richard Donner.
Handrít: byggt ó sögu Todd Walton.
Kvikmyndahandrit: Valerio Curtin £r Barry
Levinson.
Kvikmyndun: Lazslo Kovacs A.S.C.
Aöalhlutverk: John Savage, David Morse,
Diana Scarwid,, Amy Wríght, Bill Henderson,
Steve Kahan.
Tónlist: John Barry ft Bette Midler.
Fromloiðandi: Mark M. Tanz ft R. W. Goodwin.
Hversu stórtæk er þörfin fyrir vin-
skap í „tristum” heimi? Og ef hún er
ekki fyrir hendi, hver er þá tilgang-
urinn með lífinu? Eöa er maðurinn
svo mikil félagsvera að hann getur
ekki lifað án stuðnings annarra?
Allar þessar spurningar mynda
umgjörð um kvikmyndina „Félag-
arnir á Max Bar”, sem nú hefur
verið tekin til sýninga í Bíóhöllinni.
Vissulega er þetta viðfangsefni
sem áður hefur verið tekið fyrir á
breiðtjaidi. En alveg að óvörum
kynnumst við nýjum fleti á hugtak-
inu vinátta í nefndri mynd. Fleti sem
er það mannlegur og vel afmarkaður
og áhorfandinn getur ekki annað en
hrifist. Um fram allt er fjallað um
manneskjuna, um fram allt er leitast
við að lýsa viðbrögðum hennar og at-
ferli, um fram allt fáum við að kynn-
ast sérstæðum en jafnframt einlæg-
um og elskulegum manneskjum,
sem þrá þaö heitast að lifa iifinu
lifandi. Þetta er hreint ágæt kvik-
mynd leikstjórans Richard Donner.
Honum hefur tekist að skapa alveg
sérlega skemmtilega og áhorfsverða
mynd og þá ekki síst sérstaklega vel
agaöar persónur, sem einar sér gera
þessa mynd m jög eftirminnilega.
Söguhetjan Roary Tepper
(Savage) hyggur á sjálfsmorð sakir
lífsleiða síns. Hann tekur sig til og
stekkur út um glugga af tíu hæöa háu
skrifstofuhúsi — en iifir fallið (og
lendinguna) af. Eftir ianga
sjúkdómslegu er Roary einmana og
ráðvilltur. Hann hefur bæklast viö
falliö og er hann útskrifast af sjúkra-
húsinu á hann ekkert að hverfa að.
Hann ráfar af tilviljun inn á bar í ná-
grenni við endurhæfingarstöðina er
hann flytur á eftir sjúkrahúsvistina.
Þar fyrir hittir hann sérstakt mann-
líf fólks sem á sér það nokkurn veg-
inn sameiginlegt að vera allt meira
og minna fatlað, enda býr þaö flest
á nefndri endurhæfingarstöð.
Þannig er áhorfandinn leiddur inn
í samfélag, sem við fy rstu sýn viröist
heldur hjákátlegt, en eftir aö filman
hefur rúllað lengur i gegn kemst sá
hinn sami að því að þrátt fyrir bækl-
un allra, er hér um óskaplega venju-
legt fólk að ræða. Fólk sem á sínar
tilfinningar, sínar þrár, sinn vilja,
sorgir og gleði. öllum þessum þátt-
um manneskjunnar fær áhorfandinn
að kynnast eftir ýmsum leiðum í
þessu þrönga mannfélagi, sem bar-
inn hansMax er.
Það er í rauninni óþarfi að tíunda
söguþráöinn frekar. Hann er upp-
fremst mannlegur og það er þessi
myndöll.
. Ástæða er til að fjalla nánar um
persónusköpun myndarinnar, en hún
er aö mati undirritaös það helsta
sem heldur þessari mynd uppi. Eftir
á að hyggja er eins og áhorfandinn
hafi þekkt persónur myndarinnar
um árabil, svo sterklega koma fram
einkenni hverrar þeirra um sig. Inni-
legur og vandaður ieikur hjálpar þar
vitanlega mikið. John Savage fer á
'kostum í hlutverki hins bæklaöa
Roary Tepper og afgangurinn af
félögunum á Max bar standa honum
líttaöbaki.
Ég mæli hikiaust með þessari
mynd. Hún er ekki hið einasta vel
gerð, heldur líka fyndin og sannfær-
andi lýsing á tilfinningum fólks í
eigin garð og annarra.
John Savage far i kostum í hlutverki sinu sem Roary Tepper i kvik-
' myndinni um fálagana á Max bar.
Nýjar bækur Nýjar bækur
Góður 3ja vikna megrunarkúr
meö Ijúffengum
og næringarríkum matseðli
BÁRA WIAGNÚSDÓTTIR
þýddi og staðfærði
Léttirog
Ijúffengir
réttir
Setberg hefur sent frá sér bókina
Léttir og ljúffengir réttir, bók með
góðum 3ja vikna megrunarkúr og ljúf-
fengum og næringarríkum matseðli.
Hér er hvatt til þess að borða reglu-
lega, sleppa ekki úr máltíð, en í fæð-
unni veröi sem minnst af kolvetni og
sem mest af próteini, en prótein er
aðallega í kjöti, fiski, fuglum, osti og
sýrðum mjólkurafurðum.
Bókin Léttir og ljúffengir réttir er
dönsk að uppruna, en Bára Magnús-
dóttir, sem um 15 ára skeið hefur rekið
likamsrækt í Reykjavík, hefur þýtt og
staðfært bókina. Bára hefur því ára-
tuga reynslu í umfjöllun um heilsu- og
megrunarfæði fyrir fólk á öllum aldri.
Lrfiðá
jorðinm
eftir David Attenborough
Hjá Máli og menningu er nýkomin út
bókin Lífið á jörðinni, Náttúrusaga í
máli og myndum eftir David Atten-
borough. Þýðandi er Oskar Ingimars-
son.
Lifið á jörðinni er byggt á samnefnd-
um náttúrusöguþáttum sem David
Attenborough gerði á vegum breska
sjónvarpsins, BBC. Þættir þessir hafa
verið sýndir um allan heim og hafa fáir
sjónvarpsþættir þótt öðrum eins tíðind-
um sæta. Þar var leitað fanga í
jarðlögum, gróðurfari og dýralífi um
gervalla jörð og óhemju mikili fróð-
leikur settur fram með frábærlega
skýrum og skemmtilegum hætti.
Hér er sögð saga plánetu okkar í
3.500 milljón ár, með hliðsjón af þeim
dýrum og plöntum sem enn lifa.
Skemmtilegar sögur úr heimi dýranna
eru auövitaö með og skýr og f jörlegur
stíll Attenboroughs nýtur sín til fulls.
Bókinerprýddmeiraen500myndum. t
Lífið á jörðinni er 224 bls. i stóru
broti. Setningu og filmuvinnu annaðist
Prentsmiðjan Oddi hf., en bókin er
prentuðíBretlandi.
Ágrip af
jarðfræði íslands
eftir Ara Trausta
Guðmundsson jarðf ræðing
Bókaútgáfan örn og örlygur hefur
gefið út bókina Ágrip af jarðfræði
íslands eftir Ara Trausta Guðmunds-
son jarðfræðing. Bókinni er ætlað að
vera kennslubók í jarðfræði fram-
haldsskóla, en um leið getur hún verið
almenningi handhægt fræðslurit. I bók-
inni eru fleiri tugir ljósmynda og
skýringateikninga.
1 Ágrip af jarðfræði íslands er fjallaö
um nýjustu hugmyndir og rannsóknir í
íslenskri jarðfræði. Landreks- eða
plötukenningin hefur opnað ótal nýja
vegu í jarðfræðinni og ekki hvað síst á
Islandi sem gegnir lykilhlutverki í
nútímajarðvísindum. Helstu kaflar
bókarinnar eru: Jarðsaga, Jarðvirkni,
Eldvirkni — Jarðhiti, Landrek —
plötukenningin, Landmótun: Frost og
jöklar, Ágrip af jarðsögu.
Ágrip af jarðfræði tslands fæst bæði
innbundin og í kiljuformi. Bókin er aö
öllu leyti unnin í Prentsmiðjunni
Hólum, nema myndamót vegna kápu,
þau eru unnin hjá Myndamótum hf.