Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1982, Síða 40
NÝJA
AGFAFILMAN
ÓTRÚLEGA SKÖRP
OG iNIÆM FYRIR LITUM
ÓDÝRARI FILMA SEM
FÆST ALLS STAÐAR
Hinir hamingjusömu foreldrar, Sue
Ellen og J.R. Óneitanlega geðsleg
hjón.
Dallasíkvöld
I kvöld hefjast Dallas-þættirnir aö
nýju eftir nokkurt hlé. Þættirnir hafa
veriö meö umræddara efni sjónvarps-
ins og valdið miklum blaöaskrifum.
Svo sem flestum er kunnugt fjalla
þeir um hina auðugu Ewing-fjölskyldu
í Texas og sérstaklega pretti hins illa
innrætta J.R.
Síðasta Dallas-þætti lauk meö því að
J.R. og eiginkona hans, Sue Ellen,
eignuöust erfingja og veröur nú þráö-
urinn tekinn upp þar sem frá var horfið
í janúar síðastliönum.
Þeir sem saknað hafa Dallas-þátt-
anna geta því varpað öndinni léttara
því þeir geta notiö þeirra á hverjum
miövikudegi í allan vetur.
-gb.
íslendingur
íhaldi íNoregi
Liölega tvítugur maöur situr nú í
gæsluvaröhaldi í Noregi vegna smygls
á hassi þangaö siðastliöinn sunnudag.
Maöurinn hefur veriö úrskurðaöur í 6
vikna gæslu varðhald.
Maöurinn var aö fara frá
Kaupmannahöfn til Oslóar. Við
venjulega tollleit hjá honum á Fomef u
flugveliinum í Osló fundust 95 grömin
af hassi. Hann átti flugmiöa til Islands
í gær frá Danmörku, en haföi ákveöið
aö skreppa yfir til Noregs í stutta
heimsókn. Hann hefur komiö við sögu í
fikniefnamálum hérlendis.
Þá má geta þess að ungt par er ný-
komið til fslands eftir aö hafa setiö í
gæsluvaröhaldi í allt sumar í Kaup-
mannahöfn vegna fíkniefnamisferlis.
Og þá sat ungur piltur í gæslu varöhaldi
fyrri part sumars vegna fíkniefnamis-
ferlis þar í landi.
-JGH
LOKI
Hvort skyldi áfallið vera
meira fyrir þjóðina eða
Ingvar?
86611
AUGLÝSINGAR
SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR
SKRIFSTOFA
AFGREIÐSLA
RITSTJÓRN
SÍÐUMÚLA 12—14
27022
HamborgarakðnnunNeytendasamtakanna:
OMARKTÆK
—segireinn
dómendanna
„Sú könnun sem Neytendasamtök-
in geröu nýlega á kjötkökum frá níu
veitingastöðum í Reykjavík á ekkert
skylt viö gæðaprófun,” segir Haukur
Hjaltason framkvæmdastjóri og
nautabóndi. Haukur hefur gagnrýnt
skyndikönnun Neytendasamtakanna
og sérstaklega þann þátt könnunar-
innar er snýr aö bragögæöakönnun-
inni. Haukur Hjaltason var einn fjög-
urra manna sem sátu í dómnefnd NS
(bragðgæðakönnuninni).
„Ég gerði athugasemd áöur en
prófunin fór fram og benti á aö
endurhitun hamborgaranna í geisla-
ofni væri vafasöm,” segir Haukur.
„Eg tel aö könnunin sé ekki marktæk
meö tilliti til gæöa vegna þessarar
aðferöar, sem veldur seigju. Fitu-
mæling er ekki marktæk, þar sem
hamborgaramir eru mismunandi
steiktir. Þaö er nauðsynlegt að fitu-
mæla kjötiö hrátt. Þegar bragðgæði
eru könnuð er öll samsetning, þ.e.
hvemig varan er framreidd meö t.d.
kryddi og sósu, ákaflega mikilvæg.”
„Ég vil fyrst þakka Hauki Hjalta-
syni fyrir þann áhuga og þá auglýs-
ingu sem hann hefur kosið að gefa
Neytendasamtökunum fyrir það
framtak þeirra aö framkvæma
skyndikönnun á hamborgurum,”
segir Jón Ottar Ragnarsson dósent í
svari fyrir hönd NS, viö athugasemd-
um Hauks.
„Þaö er mikið í húfi fyrir íslenska
neytendur að þeir fái sem bestar
upplýsingar um þær vörur sem þeir
þurfa að kaupa. Kannanir af þessu
tagi eru eitt tæki til þess. Ég vil taka
fram varöandi bragöprófun í
könnuninni aö fæðan var snögghituð
áöur í örbylgjuofni. Aö þetta atriði
geri könnunina ómarktæka er rangt
vegna þess aö hér er verið að meta
innbyrðis bragögæöi og allir ham-
borgarar hlutu sömu meðferð. Auk
þess ofmetur Haukur eyðingarmátt
örbylgjuhitunar. Þessi þáttur var
ekki metinn meö í heildareinkunn.
Varðandi fitumælinguna, þá sýna
ummæli Hauks aðeins aö hann botn-
ar h'tiö í því sem um er aö ræöa. Þaö
var einmitt tilgangurinn meö svona
könnun aö meta hve mikla fitu
neytandinnfæríkaupunum.” -ÞG.
ÞVERHOLTI 11
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982.
Gull í mund hefur glatt hlustendur útvarpsins undanfarna
morgna. Á stóru myndinni sór i bak Þorbirni Sigurðssyni
tæknimanni, Stefán Hafstein og Runólfur Þorláksson
tæknimaður ráða róðum sínum og ó innfelldu myndinni er
Sigriður Árnadóttir, einn umsjónarmanna, með Stefáni.
Þriðji umsjónarmaðurinn er HHdur Eiríksdóttir.D V-mynd:E.Ö.
Hellufundur
hiá flialdinu
„Það voru fjórir þingmenn fjar-
verandi, þrír staddir erlendis og einn
bundinn í k jördæmi sínu, en allir aör-
ir þingmenn flokksins í stjómarand-
stööu mættir, ásamt varaþingmönn-
um, framkvæmdastjórum flokksins
og fleiri forystumönnum hans,”
sagði OlafurG. Einarsson, formaöur
þingflokks Sjálfstæðisflokksins, um
vinnuf und á Hellu í vikubyrjun.
„Þessi vinnufundur var löngu
ákveðinn, sem óformlegur fundur og
undirbúningur okkar vegna starfa á
nýju Alþingi, sem hefst á mánudag-
inn,” sagði Olafur, „viö ræddum öll
helstu mál, sem nú eru á döfinni, en
gerðum engar ályktanir eins og gef-
ur aö skilja um óformlegan fund.”
Geir Hallgrímsson, formaður
flokksins, var ekki á fundinum, þar
sem hann situr þing Sameinuöu þjóö-
anna. Hann kemur heim á sunnudag.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson og
Guömundur Karlsson voru einnig er-
lendis og Matthías Bjarnason var
bundinn önnum i kjördæmi sínu.
„Jú, aö sjálfsögöu voru bæöi Albert
Guðmundsson og Eggert Haukdal á
fundinum,” sagði Olafur, „hins veg-
ar voru þeir þingmenn flokksins sem
styöja ríkisstjóminaekkiboðaðir.”
HERB
Eldurí
rafmagnstöflu
Eldur kviknaði í rafmagnstöflu á
Víöimel 32 laust eftir klukkan tíu í gær-
kvöldi.
Rafmagnstaflan er í k jailara hússins
og var mikill reykur í kjallaranum er
slökkviliöiö kom á vettvang. Greiðlega
gekk aö slökkva eldinn og uröu engar
skemmdir nema á rafmagnstöflunni
sjálfri.
-JGH
Lágboðílkarus
Borgarráöi þótti öll tilboöin sem bár-
ust í Ikarus-strætisvagnana of lág. Var
ákveðið að hafna þeim öllum.
Þess í stað samþykkti borgarráö aö
kanna hvort hægt sé að nota strætis-
vagnana þrjá til annars í borgarkerf-
inu en semstrætisvagna.
-KMU.