Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1982, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1982, Blaðsíða 1
FYLGIFRUMVÖRPINISALTI beðið eftir fyrirmælum forsæiisráðherra um hvenær þau skuli tilbúin Sáralítiö hefur veriö unnið aö vísi- tölufrumvarpi og frumvarpi um lág- launabætur síðustu vikur, en þau áttu að fylgja framlagningu bráöa- birgöalaganna á Alþingi ásamt or- lofsfrumvarpi. Aö sögn embættis- manna hafa engin fyrirmæli borist frá forsætisráöherra um aö ljúka við frumvörpin. „Þaö væri hægt aö ljúka gerð þess- ara frumvarpa á nokkrum dögum,” sagöi einn embættismannanna sem DV ræddi viðummálin.Annarkvað það þó taka 10—15 daga, en þá mætti raunar ekkert út af bera. Viðmældendum blaðsins bar sam- an um aö ýmsar aöstæður hefði dregið úr öllum krafti við samningu frum- varpanna. „Talsmenn launþega hafa veriö ákaflega óhressir undanfarið yfir veröhækkunarskriöunni. Þeir eru tregir til þess aö fjalla um breytt- an visitölugrundvöll í allri þessari súpu, enda má telja víst aö ný og rétt vísitala raski nokkuð kaupmætti launa þá frekar niður á viö,” sagði embættismaöur nákunnugur visi- tölumálinu. „Menn hafa hinkrað við þar sem alger óvissa hefur ríkt um þaö hvenær ætlunin er að leggja bráða- birgðalögin og fylgifrumvörpin fram á Alþingi. ÞaÖ hefur ekki verið talin ástæöa til þess aö flýta sér ef fram- lagning dregst, hugsanlega þangaö tilundirvor.” „Þaö sker þó úr að forsætisráö- herra hefur engin fyrirmæli gefiö um þaö hvenær samningu frumvarp- anna skuli lokiö. Viö bíðum rólegir eftir þeim fyrirmælum.” HERB YLRÆKTARVER í SVARTSENGI? — til stendur að kaupa 4ra hektara gróðurhúsabreiðu frá Svíþjóð Ylrækt gæti oröiö næsta stóriöja Islendinga. Miklar líkur eru reyndar á því og stofnun félags til kaupa og reksturs á ylræktarveri er í buröar- liönum. Helstu frumkvöðlar í málinu eru Þorsteinn Garðarsson fram- kvæmdastjóri og Steingrímur Steingrímsson, sem rekur eigið fyrirtæki í Svíþjóö. Fyrir nokkrum árum voru geröar umfangsmiklar athuganir á hag- kvæmni ylræktar á Islandi og voru niðurstööur jákvæöar. Ekkert varö þó úr framkvæmdum, „máliö var reiknað í hel” eins og einn embættis- maöur Reykjavíkurborgar oröaöi þaö. Nú þykja aðstæöur allar jafnvel enn betri vegna hækkandi olíukostn- aðar erlendra f ramleiðenda. Af þeim sökum býöur sænskt fyrirtæki nú til sölu gróöurhúsabreiöu sem er 4 hekt- arar eöa 40 þúsund fermetrar aö stærö. Breiðuna er hægt aö fá keypta fyrir 15—16 rrtilljónir sænskra króna eöa 30—32 milljónir íslenskra. Stofn- kostnaöur er helmingur af því sem ráö var fyrir gert í áöur nefndum athugunum. Breiöan er fullbúin tækjum og er niöurrif í Svíþjóö og uppsetning hér einnig innifalin í veröinu. Húsin voru reist á árunum 1950— 1960 en þykja í fullkomnu ásigkomu- lagL Leigusamningur, um landiö sem ylræktarverið í Svíþjóö stendur á, rennur út næsta haust og þurfa húsin aö vera farin fyrir þann tíma. For- kaupsréttur aö kaupunum hefur þegar veriö tryggður. Ef fer sem horfir ættu húsin að geta risið hér þegar næsta vor. Samkvæmt lauslegum athugunum er stór markaöur fyrir framleiöslu íslensks ylræktarvers: I Skandinavíu fyrir græölinga og blóm og í Hollandi fyrir græölinga. Veröið er sagt mjög hagstætt. Engar ákvaröanir hafa veriö teknar um staösetningu ylræktar- versins, en þau mál eru í athugun. Svartsengi þykir vænlegasti kostur- inn en Krísuvík kemur einnig til greina. -JBH. Flugvélin lent heilu og höldnu. Menn athuga hreyfilinn, en á innfelldu myndinni sést olíu- baðið á hreyflinum. DV-myndir S. Kötturínn! — sjá Dægradvöl bls. 37 og 38 Norðmenn undirbjóða skreiöina — sjá bls. 3 Lestirkónga- fólksins — sjá Sviðsljós bls. 34 og35 Hveráaðráöa áskrifstofunni — sjá bls. 2 Hábölvaðað verasmábóndi — sjá viðtalið bls. 11 Strókurinn stóð aftur úr vélinni Mönnum varð heldur bilt viö á hefja sig til flugs. Flugvélin, sem er í inskomþegará vettvang.eníljóskom það mikinn olíuleka. Vélin missti þó Reykjavíkurflugvelli á mánudaginn eigu Flugfélags Norðurlands, sneri aö ekki var mikil hætta á feröum. ekki aflið. Hún var aö leggja upp til þegar gríöarlegur reykjarstrókur stóö snarlega viö og var lent innan tíu Boltafestingar í einum strokk annars Olafsfjaröar meö 8 farþega. Engan úr öörum hreyfli vélar sem var að mínútna frá flugtaki. Slökkvilið vallar- mótorsins höföu slitnað og orsakaði sakaði um borð. -PÁ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.