Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Side 7
DV. MIÐVKUDAGUR 27. OKTOBER1982. 7 Neytendamál í kennaramenntun var umræðuefni á fundi fulltrúa frá norrænum neytendastofnunum og kennaraháskólum í Hasselbyhöll í Stokkhólmi dagana 4.-6. október síðastliðinn. Anna Guðmundsdóttir hússtjórnarkennari var fulltrúi Kennaraháskóla Islands á f undinum. Norræn embættismannanefnd um neytendamál sá um fundinn og var hann Uður í norrænni könnun á því hver væri staða neytendamála í kennaramenntuninni á Norðurlöndum. Könnun var gerð í samvinnu kennara- háskóla og neytendastofnana og stóð yfir frá 1979 til 1982. TaUð er áríðandi að ala upp þjóöfélagsþegna sem kunna aö skipu- leggja neyslu sína, þar sem fram- leiðsla og neysla verða að haldast í hendur. Hvort tveggja hefur áhrif á afkomu og lífshamingju þeirra. Markmið fundarins var að gera sér grein fyrir hvernig mætti koma þessu máli inn í menntun grunnskóla- og framhaldsskólakennara. Umræður um neytendamál þurfa því að fara fram á Neytendur Neytendur Neytendur Neytendamál snerta flestar námsgreinar öllum skólastigum, aUt frá forskóla. Þær umræður eiga að vera eðUlegur þáttur í kennslunni, enda snerta neyt- endamál aUar námsgreinar að heita má. Kennarar verða því að hafa undir- stöðuþekkingu á sviði neytendamála. MikU þörf virðist vera á góðu kennsluefni svo unnt sé að efla umræður um neysluna. Á undanförnum árum hefur verið mikU samvinna miUi Norðurlandanna varöandi neytendafræöslu í skólum og var það mál manna á fundinum í Hasselby höU að þetta norræna sam- starf sé mikilvægt tU að unnt verði að koma á þeirri hugarfarsbreytingu sem með þarf. -ÞG. Raddirneytenda Fékk snitchel f stað rif ja Kona í Innri-Njarðvík (Nnr. 3924— 2338) hafði samband við neytendasíð- una og vUdi koma á framfæri þakklæti til kaupmannsins í VUcurbæ, Keflavík. „Eg keypti lambarif fyrir nokkru í Víkurbæ. Þegar ég kom heim og ætlaði að matreiöa lambarifin sá ég aö það var farið að slá í þau. Hringdi ég þá í kaupmanninn og kvartaði undan því að ég hefði fengið lélegt hráefni í verslun- inni. Hann brást vel við kvörtun minni og vildi senda mér eitthvað annað í kvöldmatinn, sem ég afþakkaði. Næst þegar leiö mín lá í verslunina gaf ég mig fram við kaupmanninn og hann leiddi mig að kjötborðinu og bauð mér að velja kjötmeti í staðinn fyrir lamba- rifin. Á endanum valdi ég lamba- snitchelsem varmUtludýrara en rifin. ÖU framkoma kaupmannsins, og reyndar alls starfsfólksins í verslun- inni, var alveg sérstaklega jákvæð. Vil ég þakka þessu ágæta fólki fyrir góða og lipra þjónustu.” -ÞG. IELDHUSINU: PYLSUR í VATNSDEIGI Vatnsdeig 2dlvatn 100 g smjörlíki 100 g hveiti 1/2 tsk. lyftiduft 4egg salt. Vatn og smjörlíki látið í pott. Þegar suðan kemur upp er hveitið látið saman við og hrært vel þar tU deigið loðir ekki við pottinn. Deigið er kælt svolítið og eggjum blandað saman við, eitt í einu. Deigið er hrært vel, það má ekki vera mjög lint. Deigið er flatt út og skorið í stykki sem unnt er að rúUa utanum pylsur. pylsur sinnep skinka ostur egg Sinnepi er smurt á deigið, hálf skinkusneið og ein ostsneið lögð á hvert stykki, sem síðan er vafið utan um pylsu. Deigið dugði utanum 6—8 pylsur. Það á að hylja pylsuniar alveg, loka vel fyrir endana, raða á ofnplötu og pensla með eggi. Bakað í tUbúnar þegar þær eru farnar aö 225 gráöa heitum ofni og ofnplatan brúnast. Boriö fram með hrærðum höfð í miöju. PylsurúUumar eru kartöflumoghrásalati.ef viU. Danmörk NOTAÐAR JÁRNSMÍÐA- VÉLAR OG VERKFÆRI BR0DREIME HANSEN A/S STRANDSKADEVEJ 14 RENNIBEKKIR FRÆSIVÉLAR BORVÉLAR BEYGJUVÉLAR P. HANSEN VÆRKTOJMASKINER CARLJAKOBSENS VEJ 16 KANTPRESSUR RADIALBORVÉLAR SÖX PLÖTUSKURÐARVÉLAR ROBERT PETERSEN VERKTOJMASKINER CARLJAKOBSENS VEJ 16 PRESSUR SAGIR SUÐUVÉLAR SLÍPIVÉLAR AXEL ERIKSEN A/S MILEPAREN 29 STÆRSTI VERKFÆRALAGER NORÐURLANDA EINNIG NOTAÐAR OG NÝJAR VÉLAR UNITRUK RUGVÆNGET 22 TÁSTRUP ALLAR STÆRÐIR LYFTARA DÍSIL, BENSÍN OG RAFKNÚNIR. MITSUBISHI CLIMAX ADLI Fyrirhuguð er skoðunar- og verslunarferð ofannefndra fyrirtækja, sunnudaginn 14. nóvember nk. Ferðir milli fyrirtækja ókeypis. ÍSLENSKUR LEIÐSÖGUMAÐUR. Ekkert atriði að menn geri kaup I ferðinni. ALLUR KOSTNAÐUR Í LÁGMARKI Upplýsingar milli kl. 9 og 12 EINKAUMBOÐ: IVPTARPOG vctAÞJónuiTiin Ármúla 8. — Sími 84858.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.