Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Page 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER1982.
„Smáárekstrar” um helgar kosta
íbúa Stór-Reykjavíkursvæðisins
Rúmar át ján
milljónir á ári!
Um fimmtíu árekstrar urðu á Stór-
Reykjavíkursvæðinu um helgina,
flestir smávægilegir. Að sögn lög-
reglunnar er þetta vanalegur fjöldi
óhappa í umferðinni miðað við þennan
árstíma, þegar hálka er talsverð og
skammdegi hindrar útsýn.
En þrátt fyrir að flestir árekstrar á
helgidögum teljist smávægilegir í
oröum lögreglunnar, er ljóst að
viðgerðarkostnaður vegna þeirra er
mikill. Saklaus beygla á frambretti,
svo dæmi sé tekið, er nefnilega ekki
svo saklaus þegar í krónum er talið.
Blaðið leitaði til réttingamanns á
einu bifreiðaverkstæði borgarinnar og
innti hann eftir því hver kostnaöur
bíleigenda væri vegna algengustu
„smáárekstra” íumferðinni.
Hann tók dæmi og sagði að ef um
réttingu á einu frambretti og bílhurö
væri að ræöa færi kostnaður vegna
réttingar varla undir fimm þúsund
krónum. Þá væri eftir að sprauta yfir
viðgerðina og væri algengt verð þess
umtvö þúsund krónur.
Ef tryggingum er sleppt kostar hver
„smáárekstur” því að minnsta kosti
sjö þúsund krónur og þaðan af meira ef
skemmdimar eru verri.
Lauslega reiknað kostuðu því þeir
fimmtíu „smáárekstrar” sem lögregl-
an talaöi um hér aö ofan um þrjú-
hundruð og fimmtíu þúsund krónur. Og
þar eð fimmtíu og tvær helgar eru í
árinu má í framhaldi af þessu álykta
aö þessir títtnefndu „smáárekstrar"
kosti íbúa Stór-Reykjavíkursvæðsins
átján milljónir og þrjúhundruð þúsund
krónur á ári og er þá öllum stórá-
rekstrum sleppt svo og bílskemmdum
á virkumdögum.
-SER.
Um fimmtíu smáárekstrar urðu ó Stór-Reykjavíkursvæðinu um helgina.
Það kostar sitt þegar tii viðgerðar kemur.
-DV-mynd S.
Eldavél og vifta
á aðeins kr. 9-813 í hvítu
og kr. 10.923 í lit.
5 litir
Aðalfundur Sambands sparisjóða:
R*ddu skipulagsmál
J1 J ^ og aukna samvinnu
Kanaríeyjaferðir
Við bjóðum
ótrúlegt ferðaúrval til Gran
Canary með viðkomu í hinni
heillandi borg, Amsterdam.
Dvalið verður á hinni sólríku
suðurströnd Gran Canary,
Playa del Inglés, og í boði er
gisting í góðum íbúðum,
smáhýsum (bungalows) og
Só/skinsparadís
allan ársins hring
Kanaríeyjar
hafa frá alda öðli veríð sveipaðar töfra-
Ijóma sakir verðursældar og fagurrar
náttúru og hafa notið mikilla vinsælda
sem vetraroríofsstaður.
Skipulagsmál sparisjóðanna og
hugmyndir um aukna samvinnu þeirra
voru aðalmálin á aöalfundi Sambands
íslenskra sparisjóða sem haldinn var
fyrir skömmu.
I ræöu Baldvins Tryggvasonar, for-
manns, kom fram að innlánsaukning í
innlánsstofnunum er verulega minni
en var á síðasta ári. Lausafjárstaða
flestra sparisjóöanna gagnvart Seðla-
banka Islands er eins og stendur betri
en flestra viðskiptabankanna.
Á aðalfundinum kom fram ein-
dreginn vilji til aukinnar samvinnu
milli sparisjóðanna og er nýtt
frumvarp um sparisjóði, sem lagt
veröur fram á Alþingi talið skapa
möguleika til þess.
Einnig var rætt um hugsanlega
lánastofnun sparisjóðanna, sem m.a.
væri ætlað að hafa með hendi greiöslu-
miðlun milli þeirra. Þá voru Sambandi
sparisjóða sett ný lög sem kveða á um
rýmri starfsheimildir stjómar, þannig
að styrkja megi samstarf spari-
sjóðanna. -JBH.
Lýst eftir vitnum
Lýst er eftir vitnum að utaníkeyrslu
sem varð undir Hafnarfjalli á milli
kiukkan 6 og 7 síðastliðinn sunnudag.
Málavextir eru þeir að tveimur bílum,
hvítum Benz og svartri Toyota
Cressida var lagt við vegarbrún undir
Hafnarfjalli. Höfðu þeir verið á leið i
bæinn.
Tvær bifreiöir komu akandi á leið í
Borgames. Annar bíllinn, líklega gulur
Saab, keyrði utan í Toyotuna en hélt á-
fram. Hugsanlegt er talið að ökumaður
brúns, amerísks bíls sem keyrði í
humátt áeftirbílnumsemkeyrðiutan
í geti boriö vitni. Hann eða þeir sem
hugsanlega hafa séö utaníkeyrsluna
eru beðnir um að snúa sér til lög-
reglunnar í Borgarnesi. -ás.
Óveðríð á sunnudag:
Björgunarsveitir veittu liðsinni
I óveörinu sem geysaði á suðvestur-
landi síðdegis á sunnudag komu
björgunarsveitir lögreglunni í Reykja-
vík til aðstoðar.
Að sögn Bjarka Elíassonar, yfirlög-
regluþjóns, kom Björgunarsveit
Ingólfs með f jóra bíla og tuttugu menn
til aðstoðar. Hjálparsveit skáta var
meö ellefu bíla og þrjátíu og átta menn
og Flugbjörgunarsveitin fjóra bíla og
tuttugu og fimm menn. Þá leigði lög-
reglan sex jeppa og var einnig með
rútuíförum.
„Við emm afskaplega þakklátir
fyrir aðstoö þessara manna svo og
allra er veittu lögreglunni liðsinni í
óveðrinu,” sagði Bjarki Elíasson að
lokum. -JGH.
BROTTFÖR
ALLA
ÞRIÐJUDAGA
Verð frá 11.647,-
VERO MiDAD VID 20/11 '82.
l'ótelum. Á Playa del Inglés
eru góðar baðstrendur, frábærir veitingastaðir og fjöl-
breytt skemmtanalíf fyrir fólk á öllum aldri.
íslensk
fararstjórn.
asi
Ferðaskrifstofan Laugavegi 66.