Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Síða 12
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER1982.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjómarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON.
Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON.
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM.
Aðstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON.
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON.
Augtýsingastjórar: PÁLLSTEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON.
Ristjóm: SÍÐUMÚLA12—14. SÍMI86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI27022.
Afgretðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI27022.
Sími ritstjómar: 86611.
Setning, umbrot, mynda- og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA12. Prentun:
ÁRVAKUR HF„ SKEIFUNNI1».
Áskriftarverö á mánuði 130 kr. Verð í lausasölu 10 kr. Helgarblað 12 kr.
Övæntúrslit
Hin óvænta niðurstaða prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík hlýtur að draga dilk á eftir sér. Sjöunda sætið
er engan veginn frambærileg útkoma fyrir formann
flokksins og leiðtoga stjórnarandstöðunnar, Geir Hall-
grímsson.
Ekki er hægt að sjá, að flokkadrættir hafi ráðið miklu í
þessari niöurstöðu, því að tíu efstu menn náðu bindandi
kjöri, rúmlega helmingi greiddra atkvæða. Svo mikil
samstaða um efstu menn er sjaldgæf í prófkjöri.
Úrslitin eru svo eindregin, að kjörnefnd er skylt að gera
tillögu um tíu efstu menn framboðslistans i Reykjavík í
sömu röð og tölurnar sýna. Samkvæmt því yrði Geir í
baráttusætinu, næst á eftir Pétri Sigurðssyni.
Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins getur breytt tillögu
kjörnefndar eða hafnað henni. Því er hugsanlegt, að upp
komi hugmyndir um að lagfæra stöðu formannsins á list-
anum, ef menn telja slíkt ekki bara vera salt í sárin.
Albert Guðmundsson varð efstur í prófkjörinu með 6027
atkvæöi af 8155 mögulegum. Þessi útkoma hlýtur að
teljast mikill sigur Alberts, sem greinilega er ekki eins
umdeildur í flokknum og hann hefur oft áöur veriö.
Næst á eftir Albert fylgja varaformaður flokksins,
Friðrik Sophusson, með 5670 atkvæði, og fyrrverandi
borgarstjóri Reykjavíkur, Birgir ísleifur Gunnarsson
með 5608 atkvæði. Þeir fá góða traustsyfirlýsingu.
I fjórða og fimmta sæti komu svo Ellert B. Schram og
Ragnhildur Helgadóttir með glæsibrag á ný inn í stjórn-
málin eftir nokkurra ára hlé. Ellert hlaut 5386 atkvæði og
Ragnhildur 5137, hvort tveggja öflugt fylgi.
Sinn hvorum megin við sjöunda sæti Geirs Hallgríms-
sonar urðu svo Pétur Sigurðsson í sjötta sæti með 4698
atkvæði og Guðmundur H. Garðarsson í áttunda með 4199
atkvæöi. Hvort tveggja er mjög frambærilegt í saman-
burði við 4414 atkvæði Geirs.
Síðastir með bindandi kosningu urðu tveir af ungu
mönnunum. Jón Magnússon hafði vinninginn meö 4173
atkvæði, en Geir H. Haarde fékk 4107 atkvæði. Aörir
frambjóðendur í prófkjörinu hlutu innan við 3000 atkvæði.
Allir þessir tíu menn, sem hér hafa verið nafngreindir,
hlutu yfir helming atkvæða og þar með almennt traust
stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins. I þessum hópi er
Geir Hallgrímsson, svo að ósigur hans er alls ekki alger.
Of snemmt er að gera því skóna, að úrslitin muni leiða
til, að Geir leggi niður formennsku í flokknum. I próf-
kjörinu var veriö aö velja þingmannsefni, en ekki flokks-
forustu. En niðurstaðan veikir stöðu hans.
Þátttaka í prófkjörinu reyndist verða eftir vonum og
gefur Sjálfstæðisflokknum tilefni til bjartsýni á fylgi í
alþingiskosningum, þveröfugt viö Alþýðuflokkinn, sem
náði ekki einu sinni 2000 manns í prófkjöri um helgina.
Þannig voru bæði skin og skúrir í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins. Til að byrja með munu skúrirnar vekja mesta
athygli, meðan flokksforustan í Reykjavík er að átta sig
á, hvernig beri að bregðast við breyttum aðstæðum.
Til langs tíma verður þó meira skin af góðri þátttöku
kjósenda og glæsilegri útkomu ýmissa frambjóðenda,
sem greinilega munu láta að sér kveða á næsta kjörtíma-
bili alþingis, næsta tímabili stjórnmálasögunnar.
Jónas Kristjánsson
FLUORBLÖNDUN
VATNSER
FEIGDARFLAN
Þá eru flúoráhangendur aftur
komnir á kreik, eftir góða hvíld sem
þeir töldu sig hafa unnið vel fyrir
með flúorþinginu. En þetta þing átti
aö ryöja þeim braut með þá
hættuiegu áætlun að flúorblanda
drykkjarvatn okkar.
Fyrir nokkrum árum voru baráttu-
menn fyrir hreinu vatni taldir af
þessum aðilum vera fámennur öfga-
hópur. Nú bregður svo við að einn
talsmaður þessara afla segir: „Þaö
vekur furðu hve margir vilja reyna
flúorbætingu drykkjarvatnsins”.
Áður sögöu þessir menn að þeir væru
málsvarar hins þögla meirihluta en
fengju ekki komið málum fram
vegna háværra og vökulla öfga-
manna!
„Stóri bróðir"
Sverrir Einarsson segir í grein
Sigurður Herlufsen
Kansas. Lafayetta og Monroe í Louisi-
ana. New Bedford í Massachusetts.
Bellaire, Houghton, Mancelona og
Pentwater í Michigan. Clarksdale í
Mississippi, Columbia Falls og Kali-
spell í Montana. Grand Isiand, Ver-
digne og West Point í Nebraska.
Berlin i New Hampshire, Vineland í
New Jersey. Accord, Fredonia, New
Paltz, Onondaga County, Baldwin
Village, Tully Village og Victor Vill-
age í New York ríki. Claremore í
Oklahoma .Portland í Oregon, Athens
og Palestine í Texas, La Center í
Washington-ríki, Landers í Wyom-
ing.
Fregnir af slikum atkvæðagreiðsl-
um frá öðrum löndum eru einnig
handbærar t.d. 5 borgum í Kanada
og tveim í Nýja-Sjálandi.
Mergur málsins er hins vegar sá,
Vilji yfirgnæfandi
meirihluta:
Engan flúor
í drykkjar-
vatnið
— samkvæmt skoðanakönnun DV
spuróor/ ffúor*önnun/nni.
a mn ftrfiuliui mMm mvl," «*g<V a/nn m&-
Yfirgnæfandi meirihluti lands-
inanna er þvi andvígur aö flúor veröi
settur i drykkjarvatn. Þetta cru
niöurstööur skoöanaköruiunar sem
DVhefurgert.
Af-heildinni voru 18,8 af hundraöi
þvi fylgjandi, aö flúor yröi settur i
vatniö. 53,7 af hundraöi voru þvi and-
vigir. 22.8 af hundraöi voru óákveön-
ir og4,7 vilduekkisvara.
Þetta þýðir aö 74% eöa þrir af
hverjum fjómm þeirra, sem tóku af-
Tugir milljóna manna um viöa ver-
öld neyta nú vatns í fæðu með flúor-
innihaidi. Alþjóöaheilbrigöismála-
stofnunin (WHO) mælir meö flúor-
bætingu neysluvatns. Bandaríkja-
mcnn tiafa um 50 óra reynsiu af
flúorblöndun. A Irlandi var flúorbæt-
ing neysluvatns lögboöin fyrir um
tuttugu árum. Utvortis flúormeöferö
fer fram með flúorburstun, skolun
eöa penslun. Hafa Danir til aö
mynda lagt mikla
grunnskóla fyrir 500 nemendur,
hvort tveggja með öllum búnaöi. Eöa
þá 4 stór kcppnisíþróttahus. Hér er
ekki talinn meö kostnaöur borgar-
anna og öll þau óþægindi sem af
tannskemmdum stafa.
Flúorþing var haldiö hér á landi i
sept. sl. Þátttakendur voru innlendir
og erlendir visindamenn. Þeir er-
lendu frá Noröurlöndunum, Irlandi
og Bandaríkjunum. Alit meömælend-
ur flúors i drykkjarvatn.
Töluvert þekkingarleysi er um
hættur af f lúor, hvort heldur er i töfl-
um, tannkremi eöa munnskoli og
flúorblöndum drykkjarvatns. En sá
reginmunur er á aö drykkjarvatnið
er sameign okkar aUra en hver ein-
staklingur ræöur sinni flúor-inntöku
þegar þaö er í töfluformi, tannkremi
eða munnskol.
Náttúrulegur flúor nefnist
kalsium-flúor. Hann er úti um allt í
náttúrunni og oftast I eölulegu sam-
ræmi viö önnur efni sem halda eitur-
áhrifum hans í skefjum. Þessi efni
eru kalk, fosfór, og magnesium en öU
eru þaumikUsverðnæringarefnL
Tilbúinn flúor nefnist natrium- j
fiúor. Hann er talinn um 20 sinnum j
eitraöri en kalsiumflúor.
1 Noregi er kalksnautt bergvatn j
eins og hjá okkurogþar erflúoit
Höfundur þakkar DV fyrir að h/eypa af stað skoðanakönnun um f/úormá/ið.
sinni í DV þann 15. nóvember aö í
Bandaríkjunum hafi þessum málum
verið skipaö af fólkinu sjálfu, en stóri
bróðir hafi ekki veriö með puttana í
spilinu. Þarna er staðreyndum alveg
snúið við. Stóri bróðir (Bandaríska
heilbrigðisráöið) bauð hverjum og
einum sem vildi blanda flúor í
drykkjarvatnið svimandi fjárupp-
hæðir til að koma þessu fjárfreka
„heilbrigðisframtaki” á laggirnar.
Árið 1979 var ráðgert að eyða
6.200.000 dollurum til að flúorblanda
drykkjarvatn fyrir 435 borgir og 1000
skóla. Það þekkja allir að borgir eru
aldrei ofhaldnar af fjármunum og
siíkar greiðslur eru oft vel þegnar og
eru það afl sem úrslitum ræður hvort
flúorherferð yfirvaldanna (stóra
bróður) nái fram að ganga. Þegar
þessi flúorherferð hófst á sínum tíma
(um 1944), var opinber umræða eða
skoöanakannanir um vilja fólksins
alls ekki til. En svo gerðist það með
árunum að fram komu sannanir um
skaðsemi þessarar aðgerðar og fólk
fór að kynna sér hvað væri á seyði.
Þegar raddir fólksins fóru að verða
háværari gegn þessum ósóma fóru
svo aö fara fram atkvæðagreiöslur
um hvernig ætti aö skipa þessum
málum.
Atkvæðagreiðslur
Samkvæmt því sem ég hef í hönd-
um hefur þessum atkvæðagreiðslum
lyktað þannig að flúorblöndun hefur
veriö hafnað víðast hvar.
Árið 1980 var flúorblöndun hafnað
meö atkvæðagreiðslum, annaðhvort
almennings eða borgarstjóma/sveit-
arstjóma á eftirtöldum stöðum:
I Show Low í Arizona, Garden
Grove í Kalifomíu, Boca Raton í
Flórída, Port Wentwarth og Macon í
Georgiu, Evansdale, Nashue og West
Union í Iowa, Abilene, Augusta,
Desoto, Endora, Humboldt Union,
Wamego, og Winfield, allt borgir í
að þar sem flúorblöndum hefur verið
þröngvað inn á fólkið, hefur sjálfs-
ákvörðunarréttur einstaklinga verið
fyrir borð borinn. Það var vel að ein-
hver sem lagði orð í belg fyrir
skömmu í flúorumræðunni komst
þannig aö orði að flúoráhangendur
væru öfgafullur minnihluti sem vildi
skipa málum eftir sínu höfði án tillits
til annarra sjónarmiöa. Þaö er sem
betur fer ekki í tísku þessa stundina
að stóri bróðir stjómi öllu okkar lífi.
Ó/yfjan
í vatnið?
Á Sverri Einarssyni mátti
skilja að vatnið okkar væri alls ekki
þetta gæðavatn sem látið væri að
liggja og lesa mátti milli línanna að
þess vegna væri í góðu lagi aö blanda
ólyfjan(flúor)íþað!
Því hefur verið haldiö fram ámm
saman af vísindamönnum að saman-
lögö flúomeysla manna væri of há. I
tímaritinu Science 2. júlí 1982 er því
haldið fram aö þau mörk sem áöur
þóttu ömgg væm í það minnsta
tvisvar sinnum lægri en talið hafði
verið. Kemur það heim og saman við
flúorslysið í Japan þar sem 6000
börnum voru dæmdar skaðabætur
vegna flúorskemmda, þó svo að
börnin fengju aðeins hálfan þann
flúorskammt sem talið var öruggt að
innbyrða (þau fengu 0.5 ppm en 1.0
til 1.2 ppm var talið öruggt).
Að lokum vil ég færa DV þakkir
fyrir að hleypa af stað skoðanakönn-
un um afstöðu fólks til þessa máls.
Sigurður Herlufsen
„Samkvæmt því sem ég hef í höndunum
™ hefur þessum atkvæðagreiðslum lyktað
þannig að flúorblöndun hefur verið hafnað
víðasthvar.”