Alþýðublaðið - 13.06.1921, Blaðsíða 3
ALÞVÐUBLAÐlÐ
Hm lagtaa og vegtaa.
Bannlagabrot. Fyrir nðkkru
urðu menn ian á Kleppi varir við
ískyggilegan farangur, sem verið
var að bera neðan frá sjó upp í
bifreið sem beið á veginum; grun-
aði þá að hér væri ekki alt með
feldu og gerðu lögreglunni aðvart.
Náði hún í bílinn og rannsakaði
fiutninginn, sem reyndist að vera
ýmsir hiutir, þar á meðal víb. Við
rannsókn kom það í Ijós, að Ja-
kob Havsteen heiidsali hér í bæ
átti fiutninginn og var hann sekt-
aður um 200 kr.
Þá hafði áfengi verið tekið af
botnvörpungnum Ara, þegar hann
síðast kom frá Englandi, en um
sektir höfum vér ekki heyrt
Skátaféiag stofnaði hinn áhuga
sami og dugiegi barnakennari Eyr-
bekkinga, Aðalsteinn Sigmunds-
son, á Eyrarbakka í haust. Kom
hann á laugardaginn að austan
ásamt 5 lærisveinum sínum og
ætlar að dvelja hér um tíma með-
an þeir læra að synda. Þeir fé-
lagar komu á þremur hjólhestum,
gengu til skiftis, og ætla að halda
til í tjaldi inni bjá iaugum, meðan
þeir standa hér við.
Fylkir, 6. hefti, er nýkomið
út. Er þar sitt af hverju og ekki
ait sem áreiðanlegast. Verður síð-
ar vikið nánar að ritinu.
Lögrétta er nú flutt að fullu
og öllu inn í ísafoldarprentsmiðj-
una og búin að fá á sig Morgun-
blaðsletur og einkenni. Þó er ekki
síðasta Lögréttublaðið nema að
hálfu leyti uppprentun úr Morgun-
blaðinu. —
Eggert Stefánsson söngvarl
hélt koncert í Nýja Bío í gærdag
kl. 4 e. h. Söngskráin var fjöl-
breytt mjög og mörg lögin prýð-
isfalleg. Aheyreudurnir virtust hin-
ir ánægðustu og klöppuðu söngv-
aranum óspart lof í lófa. Bezt
tókst hónum við Iögin eftir Sigfús
Einarsson, „Gígjan" og „Drauma-
landið", svo og annað lagið á
söngskránni, „Seren&ta" eftir Tosti.
Laglega meðfarin var „Nótt" eftir
Árna Thorsteinsson, þó verður
breytiag sú er söngvarinn gerði í
enda þess lags, að teljast til
E.s. Sterling
fer héðan á þriðjudeg 14. juní kl. 10 árdegis,
> austur og norður kringum land.
skemdar á því og hæpið að hún
sé leyfileg. Annars vantðði víða
þrótt í rödd hans, og kom
það einkum tilfinnanlega fram
í „Erlkönig" éftir Schubert. Eins
átti söngvarinn fremur erfitt með
háu tónana. Er líklega ekki jafn-
góður af kvéflnu ennþá.
Skipstjóraskifti verða nokkur
á skipum landssjóðs Og skipum
Eimskipafélagsins. Þórólfur Bech
tekur við Steriing, Júlíus Jáliníus-
son tekur við Lagarfossi, Jón Ei-
ríksson, sem um tíma hefir verið
skipsíj. á Lagarfossi tekur um
stund við Villemoes, en Einar
Stefánsson, áður á Sterling, tekur
hinn nýja Goðafoss.
Knattspyrnan í gær íór svo,
að Valur vann Víking með 3 : o.
Leikurinn var fjörugur og ýmsir
leikarar efnilegir í báðum flokkum.
Sj6manna|élags|ttniur
var í gær í Bárunni. Bættust 116
nýir félagar í hópinn. Jón Bald-
vinsson alþm. sagði helstu fréttir
af þinginu og að því loknu kom
fram eftirfarandi fundarályktun,
sem samþykt var í einu hljóði:
„Sjómannaféiagið þakkar einum
rómi þingmanni Alþfl., hr. Jóni
Baldvinssyni, fyrir góða og ötula,
framgöngu á alþingi og sérstak-
Iega fyrir þann dugnað og lægni,
að bera fram til sigurs frv. tii laga
um hvíldartíma háseta á fslenzkum
bota vörpuskipum."
Ríkislánið.
Ræðismaður Ðana hér hefir seht
blaðinu eftirfarandi athugasemd í
tilefni af ummælum þess um rík-
islánið, og birtum vér hana hér,
enda þótt hún í sjálfu sér sé óþörf,
því blaðið hefir aldrei haldið því
fram að Danir vilji faindra oss í
því að taka lán í t. d. Englandi
eða Araeríku; hitt dyist engum,
að dönskum auðmönnum er hag-
ur að því, að halda í viðskiftiu
við ísland í lengstu lög.
„í tilefni af greinum yðar í
„Alþýðubíaðinu" 6. og 10. þ. m.
viðvíkjandi væntanlegu ríkisláni í
Danmörku viidi eg mega benda
á, að það er svo iangt frá þvf,
að menn í Danmörku æski þess,
að binda meira fé hér á Iandl.
Sem sjá má af yfiriýsingu dönsku
stjórnarinnar, sem birt er í AI«
þýðublaðinu 30. aphl þ. á., þá er
það langt frá því, - að Danir óski
að koma í veg fyrir að ísland fáí
margra ára lán í Englandi eða
Bandaríkjunum, til þess að leysa
með því út hið d&nska auðmagn
sem er í íslandsbanka, eða tii
annara þarfa."
Hvirfilbylur
fór yfir suðurhluta Arkansas. í
Ameríku í apríimánuði, eyðilagði
fjölda húsa, skemdi akra og drap
50 manns.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ólafur Friðriksson.
Fientimiðjan Gutenberg.