Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1983, Blaðsíða 35
DV. MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRUAR1983.
35
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
Hver og einn starfar eftir sérstöku
æfingaprógrammi.
En ég er sannfærður um það að eftir-
spumin verður ávallt næg eftir því sem
við eram að gera hér — á þvi er enginn
vafi.
Konur á biðlista
— Hafiðþiðhaftnógafviðskiptavin-
um?
„Nú er tæpt ár liðið frá því aö við
opnuðum og má segja að við höfum
ekki getað sinnt þeim öllum sem leitað
hafa til okkar. Það hefur verið fullt frá
upphafi og sýnir það best áhugann og
þörfina semfyrir þessa þjónustuer.”
— Hvers konar fólk leitar hingað til
ykkar?
„Þaö er alls konar fólk á öllumaldri,
frá tvítugu til sextugs, held ég aö
megisegja.”
— Hvort kynið hefur vinninginn
hvaö áhugann snertir?
„Áhuginn er miklu meiri hjá konun-
um. Enda er þaö svo að allar konur
sem skrá sig verða að fara á biðlista,
engin gengur hér beint inn og byrjar
æfingar. En körlunum höfum við getað
sinnt fyllilega og getum bætt viö okkur
enn. Áhuginn hjá þeim virðist vera
eitthvaðminni.”
— Hversu oft kemur þetta fólk til
ykkar?
„Flestir koma tvisvar til þrisvar í
viku og eru rúmlega klukkustund í
senn.”
— Hversumargaþjálfiöþiðíeinu?
„Við reynum að hafa ekki fleiri í
salnum í einu en tíu til fimmtán. Fleira
má þaö ekki vera svo að við getum
sinnt hverjum og einum með góðu
móti. Það hefur nefnilega komið í ljós
að þjálfun er mjög mikilvæg og þörfin
á aðstoð og leiðbeiningu er miklu meiri
en mig óraði fyrir.”
Einn eigenda líkamsræktarstöðvar-
innar Gáska er Hilmir Ágústsson
sjúkraþjálfari. Hann stóöeinmitt vakt-
ina þegar við litum inn og var að kanna
þrek ungrar konu sem var að byrja í
meðferð, ef svo mætti aö orði komast.
Hilmir var beðinn um að lýsa starf-
seminni sem þaraa fer fram nánar:
„Við byrjum á því í upphafi að skoða
viðkomandi. Allir eru þrekprófaðir.
Hreyfanleiki er metinn og styrkur. Við
könnum hvort einhver veikur blettur
er ívöðvakerfifólksins.
Að þeirri könnun lokinni er gert pró-
gramm sem hæfir viðkomandi ein-
staklingi og hann æfir sig svo eftir því
undir eftirliti okkar sjúkraþjálfar-
anna.”
— Þið starfið því á öörum grunni
en sams konar fyrirtæki önnur?
„Já, ég held ég megi fullyrða að
Gáski sé eina líkamsræktarstöðin hér
þar sem einstaklingurinn er metinn á
þennan hátt og samiö fyrir hann sér-
stakt æfingaprógramm og einnig að
allir þjálfarar séu menntaðir sjúkra-
þjálfarar.”
— En hvernig er líkamlegt ástand
hjá fólki almennt — er einhver þörf á
þessari starf semi?
„Alveg tvímælalaust þörf fyrir
þetta, á því er ekki nokkur vafi. Al-
mennt er líkamlegt ástand fólks mjög
slæmt. Og helst er það úthaldsleysi og
máttleysi sem hrjáir fólk.
Vegna einhæfra hreyfinga verða
ákveðnir vöðvar slakir og hætta að
sinna hlutverki sínu. Misvægi skapast í
vöðvakerfinu. Og er það einmitt
tilgangurinn að koma í veg fyrir að
þetta misvægi aukist og að eyða því í
gegnum æfingamar.”
— Hvaða svæði líkamans efu það
semeru verst útleikin?
„Tvímælalaust herðamar en einnig
gæti ég nefnt magann og lærvöðvana.
Þetta eru þeir staöir sem eru oftast í
slæmu ásigkomulagi.Þaö er ekkert ein-
kennilegt þó aö ástandið sé slæmt þvi
aö segja má aö nútímamaðurinn
stirðni í sitjandi stellingu og er vöðva-
styrkurinn í samræmi við það. Við
setjumst sex ára og stöndum varla upp
fráþví.”
— Þú ert ekkert smeykur um að
þessar líkamsræktarstöðvar séu fyrir-
bæri sem líði undir lok innan skamms
tíma?
,,Eg skal ekkert segja um það hvað
verður um kollega okkar í greininni.
Himir Ágústsson sóst hór ieiöbeina einum viðskiptavini sínum.
Miðum ekki við
hámarksálag
— Enhvaðskyldiþjónustankosta?
„Kostnaðurinn er svona á bilinu 550
til 650 krónur á mánuði eftir því hversu
oft fólkið kemur, þ.e. eftir því hvort
maður kemur tvisvar eða þrisvar í
viku "
— Eru einhverjir fjölskyldutímar
hérhjáykkur?
Nei, því miður, viö höfum ekki getað
boðiö upp á slíkt. Það eru einungis sér-
tímar fyrir karla og aörir fyrir konurn-
ar.”
Þessi æfingaprógrömm sem þið
semjið, eru þau mjög stíf ?
„Þaö álag sem við veljum er ekki
hámarksálag sem hægt er að bjóða
viðkomandi upp á. Við reynum að
finna það sem hæfilegt er hverju
sinni,” sagði Hilmir Ágústsson að
lokum. Hann hafði ekki tíma til að
sinna okkur lengur en sneri sér í þess
stað að viðskiptavinunum og leiðbeindi
þeim um réttu aðferðirnar. Við fengum
þó að labba um saiinn og fylgjast með
kvenfólkinu og létu þær ekkert raska
ró sinni en æfðu af kappi hver í sínu
tæki.
Besta sem ég hef gert
fyrir mig í mörg ár
— segir Sólveig Karveisdóttir um líkamsræktina
Á einu þrekhjólinu í Gáska sat kona
sem hjólaði af kappi. Kvaðst hún heita
Sólveig Karvelsdóttir og starfa sem
framkvæmdastjóri skiptinemasam-
takanna AFS á Islandi. Við báðum
hana að svara nokkrum spurningum
og hélt hún áfram að hjóla án þess þó
að hreyfast úr stað. Hraðamælirinn
gaf til kynna aö hjólað væri á 50 kíló-
metrahraða.
„Við byrjum æfingarnar hér á
hjólunum. Það mýkir okkur upp og
þegar maður hefur hjólað í um
fimmtán mínútur þá snýr maður sér
að hinum æfingunum. Hjólið getur
maður svo stillt eftir vild.”
— Hvenær hófstu æfingar hér, og
hvers vegna?
„Það var í september á síðastliönu
ári sem ég byrjaði hér. Ástæðan var sú
að ég haföi þá ekkert hreyft mig —
engar slíkar æfingar stundað í fjögur
ár. Hafði verið sjúklingur hér áöur fyrr
og reyndar ráðlagði læknir mér að fara
ekki í æfingar, ég þyldi þær ekki. Ég
dreif mig nú samt og sé ekki eftir því.
Þetta er án efa það besta sem ég hef
gert fyrir sjálfa mig í langan tíma.
LÍKAMSRÆKT
Texti: GunnlaugurS.
Gunnlaugsson
Myndir: Bjamleifur
Bjarnleifsson
Kem andlega
uppgefin
Eg er undir miklu álagi í starfi mínu
og því alveg nauðsynlegt fyrir mig að
fara í þessa leikfimi. Eg vinn langan
vinnudag, er oft ekki komin heim fyrr
en um sjö-leytið og á því erfitt með að
finna smugu fyrir áhugamál sem
þetta. En það tekst þó alltaf og sýnir
það best hversu mikils ég met þetta.
Það er vitaskuld oft freistandi aö
setjast niður fyrir framan sjónvarpiö
og láta sér líða vel að loknum erfiöum
vinnudegi. Samt sem áður er þaö nú
svo að maður velur frekar að koma
hingað.
Ég kem hingað andlega uppgefin
eftir erfiðan vinnudag. Og að loknum
æfingum sný ég héðan þreytt og dösuð,
en andlega vel á mig komin.
— Ætlarþúaðhaldaþessuáfram?
„Já, það hef ég hugsað mér því að
eins og ég sagði áðan þá er þetta það
besta sem ég hef gert fyrir sjálfa mig í
mörgár.
Að minnsta kosti vona ég að þessi
heilsuræktarstöð haldi áfram því að
fólkið hér vinnur gott starf. Þjálfar-
arnir fylgjast ótrúlega vel með manni,
því hef ég fengið að kynnast. Beri
maður sig rangt að við æfingarnar er
maöur leiddur á rétta braut um leið.
Þetta tel ég afar mikilvægt,” sagði
Sólveig Karvelsdóttir að lokum. Viö
sáum ekki ástæðu til að tefja hana
frekar því aö hún var að ljúka
hjólreiðunum og þurfti því að snúa sér
að öðrum æfingum.
Sóiveig Karveisdóttir hitar sig upp á
þrekhjólinu.
iirti tdorrus